
3 minute read
Vesturland
ÓLAFSVÍK
SNÆFELLSJÖKULL STYKKISHÓLMUR
3
54 56
Nr. Safn Síða 1 Byggðasafnið í Görðum Akranesi ....... 48 2 Reykholtskirkja ..................... 50 2 Snorrastofa ........................ 50 3 Norska húsið ....................... 52 3 Vatnasafn ......................... 53
60 68
59 1
54
60
54
BORGARNES
1
1
AKRANES 1
50
52
2
47
GLYMUR LANGJÖKULL


Byggðasafnið í Görðum býður gestum einstaka innsýn í liðna tíma en jafn heildstæð sýning er fágæt á landsvísu.
Sýningar safnsins eru fjölbreyttar og eru til húsa í margvíslegum byggingum sem sum hafa verið flutt á svæði safnsins en á safninu eru einnig sérstakt kvikmyndarými og sýningarými fyrir skammtímasýningar. Í fastasýningu safnsins er fjallað um lífið til sjós, í landi, í vinnu og í leik. Hljóðleiðsögn er innifalin í aðgangseyri. Heimsókn á Byggðasafnið í Görðum leikur við öll skilningarvit gesta.
Garðaholt 3, 300 Akranes 433 1150 www.museum.is museum@museum.is Facebook: /akranesfolkmuseum Instagram: /akranesmuseum Opnunartími: 15 maí–15 sept: daglega, 10-17. 16 sept–14 maí: opið eftir samkomulagi Aðgangseyrir: 1.000 kr. Börn: ókeypis aðgangur. Eldri borgarar og hópar (10+): 700 kr.
Sigraðu ferðalagið! Verslanir allan hringinn Sigraðu ferðalagið! Verslanir allan hringinn
Opið allan sólarhringinn Opið allan sólarhringinn í Mjódd og Granda í Mjódd og Granda


Snorrastofa er stofnuð í minningu Snorra Sturlusonar, merkasta sagnaritara landsins, höfðingja og lögsögumanns, sem settist að í Reykholti 1206 og var veginn þar haustið 1241.
Snorralaug er þekktust fornminja frá dögum Snorra. Snorrastofa býður upp á sögusýningar, fyrirlestra og leiðsögn. Auk þess sinnir hún rannsóknum, starfrækir bókhlöðu, minjagripaverslun og annast umsýslu tónleikahalds í Reykholtskirkju. Þekktasti tónlistarviðburðurinn er árleg Reykholtshátíð, síðustu helgina í júlí. Heilsárshótel er í Reykholti.



Reykholt í Borgarfirði, 320 Reykholt 433 8000 www.snorrastofa.is snorrastofa@snorrastofa.is Opnunartími: 1. maí – 30. ágúst: daglega, 10-17. 1.sept – 30. apríl: alla virka daga, 10-17.
Norska húsið er Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla og er fyrsta tvílyfta íbúðarhús á Íslandi. Það var byggt úr tilsniðnum viði frá Noregi árið 1832 og er því rúmlega 180 ára gamalt.

Í safninu er fastasýning á heimili Árna Ó. Thorlacius (1802-1891) og Önnu Magdalenu Steenback (1807-1894) eins og talið er að það hafi verið á seinni hluta 19. aldar. Í risi er opin safngeymsla með munum frá öllu Snæfellsnesi. Á fyrstu hæð eru breytilegar sýningar í Mjólkurstofu og Eldhúsi sem tengjast listum, menningu og/eða sögu svæðisins og safnbúð í krambúðarstíl.


Hafnargata 5, 340 Stykkishólmur 433 8114 www.norskahusid.is info@norskahusid.is Opnunartími: 1. maí – 31. águst: daglega, 11-17. 1 maí – 30 apríl: þri – föst, 13-16.

Vatnasafn/Library of Water, sem er innsetningarverk bandarísku listakonunnar Roni Horn er staðsett í Stykkishólmi.
Þar á hæsta punkti Stykkishólms með útsýni til allra átta hefur gömlu bókasafnsbyggingunni verið breytt í safn vatns, orða og veðurfrásagna. Safnið prýða m.a. 24 glersúlur með vatni úr helstu jöklum landsins.

Bókhlöðustígur 19, 340 Stykkishólmur Opnunartími: 1 júní – 31 ágúst: daglega 11-17. 1. sept – 31 maí: sjá Norskahusid.is. Miðasala í Vatnasafn er í Norska húsinu.