
11 minute read
Miðbær Reykjavíkur
1
2
4 3
41
5 6
8 7
ALÞINGI
RÁÐHÚS
TJARNARGATA TJÖRNIN
10
49
HARPA
11
41
13
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR
12
HALLGRÍMSKIRKJA
9
BSÍ UMFERÐARMIÐSTÖÐIN
FLUGVÖLLUR
PERLAN
41
HLEMMUR
14
LAUGAVEGUR
16
49
40
Nr. Safn Síða 1 FlyOver Iceland ..................... 26 2 Whales of Iceland ................... 24 3 Sjóminjasafnið í Reykjavík ............ 17 4 Aurora Reykjavík .................... 23 5 Ljósmyndasafn Reykjavíkur ........... 17 6 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús ...... 14 7 Landnámssýningin .................. 16 8 Þjóðminjasafn Íslands. . . . . . . . . . . . . . . . 10 Nr. Safn Síða 9 Norræna húsið ...................... 20 10 Listasafn Íslands .................... 12 11 Safnahúsið ........................ 12 12 Listasafn Einars Jónssonar ............ 18 13 Safn Ásgríms Jónssonar .............. 12 14 Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir .. 15 15 Gallerí Fold ........................ 22 16 Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn .. 15
Í Þjóðminjasafni Íslands má skoða grunnsýninguna, Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár, sem spannar sögu íslensku þjóðarinnar frá landnámi til samtímans, ásamt fjölbreyttum sérsýningum sem varpa nýju ljósi á sögu lands og þjóðar.
Tekið er mið af gestum á öllum aldri sem geta nýtt sér hljóðleiðsögn eða ratleiki til þess að kynnast efni grunnsýningarinnar betur. Einnig má fræðast um söguna á snertiskjám þar sem hver og einn ræður ferðinni. Þá má bregða á leik og máta búninga í fjölskyldurýminu Stofu.

Þjóðminjasafnið býður reglulega leiðsagnir og ýmsa viðburði fyrir börn og fullorðna. Safnbúð Þjóðminjasafnsins býður upp á fjölbreyttar vörur sem tengjast sýningum og safnkosti svo sem skartgripi, leikföng og bækur.
Þjóðminjasafn Íslands Suðurgata 41, 102 Reykjavík 530 2200 www.thjodminjasafn.is thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opnunartími: 1. maí–15. sept: daglega 10-17, 16. sept– 30. apríl: þri-sun 10-17, lokað á mánudögum.
Þrjú hús— Eittsafn
Three Locations—One Museum
Opnunartímar
Opening Hours 10:00–17:00
Lokað mánudaga október–maí
Closed Mondays Oct. –May Listasafn Íslands hefur yfir að ráða ólíkum sýningarhúsum sem hafa hvert sína sérstöðu. Heimsókn í húsin gefur góða mynd af því öfluga myndlistarlífi sem einkennir íslenska þjóð, en skapar um leið fjölbreytta upplifun fyrir safngestinn.

Fjölbreyttar sérsýningar, íslenskar og alþjóðlegar í fjórum sölum sem standa yfir um nokkurra mánaða skeið. Sýningarnar eru niðurstöður listsögulegra rannsókna eða veita sýn á ný eða nýleg verk listamanna. Hver heimsókn felur í sér ný og óvænt kynni við myndlistina.
Listarfur úr safneign er hér sýndur með þeim formerkjum að auðga skilning á rótum myndlistarinnar, til að kanna, skilja og þenja mörk hugmynda og hugsana í nýjar áttir. Mikilvæg verk úr safneign eiga hér samastað og starfsemin eflir myndlæsi, rökhugsun, akademíska umræðu og skýrir samspil náttúru og vísinda.
Hús listamannsins er heimili Ásgríms Jónssonar (1876–1958) í grónu íbúðahverfi við Bergstaðastræti. Í húsinu gefst nánd við liðinn tíma og við listamann sem var einn frumherja íslenskrar málaralistar. Heimsókn í hús listamannsins skapar einlæga mynd af hvernig listamaður helgaði sig að eigin listsköpun.
Listasafn Íslands
National Gallery of Iceland
Fríkirkjuvegur 7 101 Reykjavík

Safnahúsið
The House of Collections
Hverfisgata 15 101 Reykjavík

Hús Ásgríms Jónssonar
Home of an Artist
Bergstaðastræti 74 101 Reykjavík
Listasafn Reykjavíkur er leiðandi listasafn á Íslandi með viðamikla starfsemi á sviði listasögu 20. og 21. aldar. Það er til húsa á þremur stöðum í borginni, í Hafnarhúsi, á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni, auk þess að hafa umsjón með útilistaverkum víða um borg. Safnið býður upp á fjölbreyttar sýningar og viðburði og er opið alla daga vikunnar. Aðgöngumiðinn gildir í sólarhring í öll safnhúsin.

Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús Í Hafnarhúsinu eru haldnar sýningar á innlendri og erlendri samtímalist í sex sýningarsölum. Samhliða þeim eru margskonar viðburðir á dagskrá í húsinu. Verk Errós eru jafnan sýnd í Hafnarhúsinu og einnig eru haldnar sýningar á verkum listamanna sem eru að feta sín fyrstu skref í safnaheiminum. Framúrskarandi listsýningar, fjölbreytt vöruúrval í safnbúðinni og góð aðstaða fyrir börn gera Hafnarhúsið að eftirsóknarverðum áfangastað.
Hafnarhús, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík. Opnunartími: daglega 10-17, fimmtudaga 10-22.


Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir Verk eins ástsælasta listamanns þjóðarinnar, Jóhannesar S. Kjarvals, eiga fastan sess á Kjarvalsstöðum. Sýningarsalir eru tveir og auk verka Kjarvals eru þar haldnar fjölbreyttar sýningar á verkum annarra íslenskra og erlendra listamanna. Reglulega eru haldin málþing, fyrirlestrar og ýmiskonar aðrir viðburðir. Gestum býðst að njóta góðra veitinga á björtum veitingastað með fallegu útsýni. Börnin hafa aðgang að Hugmyndasmiðjunni þar sem þau geta skapað sín eigin listaverk og í safnbúðinni má gera góð kaup á fallegri hönnun og listaverkabókum.



Kjarvalsstaðir, Flókagötu 24, 105 Reykjavík. Opnunartími: daglega 10-17.
Listasafn Reykjavíkur - Ásmundarsafn Ásmundarsafni er helgað verkum Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara, eins af frumkvöðlum höggmyndalistar á Íslandi. Safnið er til húsa í einstakri byggingu sem listamaðurinn hannaði að mestu sjálfur. Verk eftir Ásmund prýða fallega gróinn garðinn við safnið. Í safninu eru jafnan sýnd verk eftir Ásmund og aðra listamenn. Ásmundarsafn er staðsett í göngufæri við helstu perlur Laugardalsins, þar er gott að koma við, skoða sýningu eða versla fallega muni í safnbúðinni, eins og afsteypur af styttum myndhöggvarans.
Ásmundarsafn, Sigtúni, 105 Reykjavík. Opnunartími: daglega maí–sept. 10-17. Okt.–apríl 13-17.

411 6400 www.listasafnreykjavikur.is listasafn@reykjavik.is #reykjavíkartmuseum Aðgangseyrir: 1.950 kr. Frítt fyrir börn og öryrkja.

Kistuhylur, 110 Reykjavík 411 6300 www.borgarsogusafn.is arbaejarsafn@reykjavik.is
Opnunartími Júní–ágúst: daglega 10-17. Sept.–maí: daglega 13-17.
Aðgangseyrir 1.950 kr. Ókeypis fyrir börn.
Árbæjarsafn er útisafn og auk Árbæjar eru þar yfir 20 hús sem mynda torg, þorp og sveit. Í Árbæjarsafni er leitast við að gefa hugmynd um byggingarlist og lifnaðarhætti í Reykjavík. Auk þess er boðið upp á fjölda sýninga og viðburða, þar sem einstökum þáttum í sögu Reykjavíkur eru gerð skil. Árbæjarsafn er einkar fjölskylduvænt og í einu húsi safnsins er leikfangasýning þar sem börn mega leika sér að vild. Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni – eitt safn á fimm frábærum stöðum.

Aðalstræti 10 og 16, 101 Reykjavík 411 6370 www.borgarsogusafn.is landnam@reykjavik.is
Opnunartími Daglega 9-18.
Aðgangseyrir 2.500 kr. Hópar 10+ og nemendur 1.550 kr. Ókeypis fyrir börn og fatlaða einstaklinga.
Landnámssýningin byggir á skálarúst sem varðveitt er á upprunalegum stað. Hún varpar ljósi á líf og tilveru fyrstu íbúa Reykjavíkur og tengsl þeirra við umhverfið í nýju landi. Sýningin í Aðalstræti 10-16 er beint framhald af Landnámssýningunni og sýnir þætti úr sögu Reykjavíkur frá landnámi til vorra daga. Gestir fá innsýn í margslungna sögu og menningu Reykjavíkur í gegnum þróun húsagerðar og skipulags með viðkomu í elsta húsi miðbæjarins, Aðalstræti 10. Fjölskylduvæn og fræðandi sýning um þróun borgarinnar frá býli til borgar.

Grandagarður 8, 101 Reykjavík 411 6340 www.borgarsogusafn.is sjominjasafnid@reykjavik.is
Opnunartími Daglega 10-17. Daglegar ferðir um Óðinn með leiðsögn: 13, 14 og 15.
Aðgangseyrir Safn: 1.950 kr. Safn & Óðinn: 3.000 kr. Ókeypis fyrir börn.
Á Sjóminjasafninu í Reykjavík er grunnsýningin Fiskur & fólk: sjósókn í 150 ár sem fjallar um sögu fiskveiða á Íslandi, frá því árabátarnir viku fyrir stórskipaútgerð á síðustu áratugum 19. aldar og allt fram yfir aldamótin 2000. Sagan er sögð frá sjónarhóli stærsta útgerðarbæjar landsins, Reykjavíkur, og sett fram á lifandi hátt með gripum og textum, myndum og leikjum. Við bryggju safnsins liggur hið sögufræga varðskip Óðinn. Boðið er upp á leiðsögn um borð þrisvar á dag.
Tryggvagata 15, 6. hæð 101 Reykjavík 411 6390 www.borgarsogusafn.is ljosmyndasafn@reykjavik.is
Opnunartími Mán-fim 10-18, föstudaga 11-18, lau-sun 13-17.

Aðgangseyrir 1.100 kr. Ókeypis fyrir börn.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur varðveitir um 5 milljón ljósmynda sem teknar hafa verið af atvinnu- og áhugaljósmyndurum á tímabilinu um 1870 til 2002. Um 30 þúsund þeirra eru aðgengilegar á myndvef safnsins. Safnið stendur árlega fyrir fjölbreyttum sýningum með áherslu á sögulega og samtíma ljósmyndun, í listrænu sem og menningarlegu samhengi.



Listasafn Einars Jónssonar er til húsa í Hnitbjörgum á Skólavörðuholti. Það er tileinkað lífi og list Einars Jónssonar myndhöggvara (1874-1954).
Í safninu eru varðveitt og sýnd um 300 verka Einars. Listasafnið er hið fyrsta hér á landi sem opnað var almenningi í eigin húsnæði árið 1923 og er því einstakt í sögulegu tilliti. Safnið samanstendur af sýningarsölum á tveimur hæðum, turníbúð Einars og Önnu á efstu hæð hússins ásamt höggmyndagarði með 26 bronsafsteypum af verkum listamannsins. Verið velkomin.
Hægt er að bóka hópa í fræðsluheimsóknir utan opnunartíma.
Listasafn Einars Jónssonar Hallgrímstorg 3, 101 Reykjavík 551 3797 (safn) 898 3913 (skrifstofa) Heimasíða&netfang: www.lej.is, lej@lej.is Instagram: @listasafneinarsjonssonar Facebook: /ListasafnEinarsJonssonar Twitter: @EinarJonsMuseum Opnunartími: Safnið er opið alla daga 12–17. Lokað á mánudögum. Höggmyndagarðurinn er alltaf opinn. Njótið vel!
Aðgangseyrir: 1.500 kr. fyrir fullorðna, 1.000 kr. fyrir 67 ára + og nema með skírteini, frítt fyrir fagfélög, öryrkja og börn yngri en 18 ára.




Norræna húsið í Reykjavík er fjölskylduvæn menningarstofnun í Vatnsmýrinni sem hefur það hlutverk að hlúa að og styrkja menningartengsl Íslands og Norðurlandanna.
Norræna húsið býður upp á fjölbreytta dagskrá með list- og menningarviðburðum allt árið um kring sem höfða til breiðs hóps gesta á öllum aldri. Flestir viðburðir hússins eru ókeypis.
Byggingin sjálf í Vatnsmýrinni er ein af perlum módernískrar byggingarlistar í Reykjavík og stendur sem táknmynd um norræna fagurfræði. Norræna húsið er hannað af finnska arkitektinum Alvar Aalto (1898-1976) sem var einn af brautryðjendum nútíma byggingarlistar á Norðurlöndunum. Húsið ber flest helstu einkenna Aalto og er nær allt innréttað með hönnun arkitektsins.
Í Norræna húsinu er einstakt bókasafn, sem lánar út bækur á norrænum tungumálum, barnabókasafn með skemmtilegu leiksvæði, listlánasafn, sýningarsalur og hátíðarsalur. Þar er einnig verslun með norræna hönnunarvöru.
Sæmundargata 11, 101 Reykjavík 551 7030 (Norræna húsið) / 551 0200 (veitinga- og kaffihús) www.nordichouse.is info@nordichouse.is Opnunartími Daglega 10-17.







Gallerí Fold er eitt af fremstu sýningar- og uppboðshúsum landsins. Galleríið var stofnað 1990, en núverandi eigendur tóku yfir reksturinn 1992. Gallerí Fold selur verk eftir fleiri en 60 af þekktustu listamönnum Íslands. Galleríið endurselur einnig verk fyrir hönd einstaklinga og fyrirtæki, bæði í beinni sölu og á uppboðum. Í galleríinu eru tveir stórir sýningarsalir þar sem sex til átta sýningar eru settar upp ár hvert, þar sem bæði íslenskir sem erlendir listamenn sýna list sína. Gallerí fold er meðlimur samtakanna the Fine Art Trade Guild.
Rauðarárstígur 12-14, 105 Reykjavík 551 0400 www.gallerifold.is fold@myndlist.is Facebook: /Artgalleryfold Twitter: /artgalleryfold Opnunartími: Virka daga 10-18. Laugardaga 12-16 Sunnudaga lokað.






Aurora Complim
Komdu í ferðalag um söguna og skoðaðu hvernig mismunandi þjóðfélög upplifa norðurljósin í gegnum þjóðsögur og ævintýri sem tengjast þessu ótrúlega fyrirbæri.
Sýningin er fjölbreytt og lifandi þar sem notast er við margmiðlun, sögu, vísindi, upplifun og fróðleik til að útskýra þetta náttúruundur. Eins er hægt að læra hvernig taka á myndir af Norðurljósunum.
Boðið er upp á kaffi og te.
Grandagarður 2, 101 Reykjavík 780 4500 www.aurorareykjavík.is info@aurorareykjavík.is Instagram: @auroraReykjavík Facebook: /auroraReykjavík Opnunartími: Sjá heimasíðu.

FlyOver Iceland hefur á stuttum tíma orðið ein vinsælasta afþreying landsins. Þetta einstaka sýndarflug vekur upp sterkar tilfinningar líkt og stolt, gleði og undrun. Sýningin skiptist í þrjár margmiðlunarsýningar. Gestir eru fyrst leiddir inn í Langhúsið þar sem sögumaður segir frá þrautseigju Íslendinga sem byggðu hér land við erfiðar aðstæður. Í næstu sýningu lítum við í Brunn tímans. Tröllskessan SúVitra fer yfir samspil náttúru og manna á þessari litlu eyju.
Þá er komið að sýndarflugi yfir stórbrotið landslag Íslands. Þú situr fyrir framan 270 fermetra sveigðan skjá með lappirnar í lausu lofti. Myndin fer svo með þig í æsispennandi ferðalag yfir hálendið, jökla, fossa og gil. Tæknibrellur, þar á meðal vindur, þoka og lykt, ásamt hreyfingum búnaðarins gera þess upplifun afar raunverulega.





Grandinn FlyOver Iceland er á Grandanum. Grandinn er hverfi í miklum umbreytingum og er iðandi af lífi, söfnum, sýningum og veitingastöðum.
Það tekur aðeins um 10 mínútur að koma fótgangandi frá miðbænum og hvetjum við gesti til að nýta almenningssamgöngur, hjól eða rafhjól.
Fiskislóð 43, 101 Reykjavík 527 6700 www.flyoverIceland.is info@flyovericeland.is
Opnunartímar Mánudaga-fimmtudaga 15-19. Föstudaga-sunnudaga 12-20.