
3 minute read
Reykjanes
2
402
GARÐUR
SANDGERÐI
1
45 429 45
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR
4 3
5
REYKJANESBÆR
VÍKINGAHEIMAR
44
425
Nr. Safn Síða 1 Þekkingarsetur Suðurnesja ........... 44 2 Byggðasafnið á Garðskaga ............ 45 3 Skessan í hellinum .................. 42 4 Duus Safnahús ..................... 42 5 Rokksafn Íslands ................... 43
41
VOGAR
43
BlÁA LÓNIÐ 41
427
Grófinni, 230 Reykjanesbær 420 3245 / 421 6700 www.skessan.is / skessan@reykjanesbaer.is Opnunartími: Daglega, 12-17. Aðgangseyrir: ókeypis frá júní-ágúst.
Duus safnahús, menningar- og listamiðstöð
Átta sýningarsalir eru í Duus Safnahúsum: • Bátasafn Gríms Karlssonar • Byggðasafn Reykjanesbæjar

Duusgata 2–8, 230 Reykjanesbær 420 3245 www.duusmuseum.is duushus@reykjanesbaer.is • Reykjanes UNESCO Global Geopark • Listasafn Reykjanesbæjar
Opnunartími: Daglega, 12-17. Aðgangseyrir: Ókeypis frá júní-ágúst.



Rokksafn Íslands er frábært safn fyrir alla fjölskylduna. Þar geta gestir kynnt sér sögu íslenskrar popp- og rokktónlistar á gagnvirkan hátt.
Á safninu er að finna tímalínu sem fjallar um íslenska popp- og rokktónlist allt frá árinu 1835 til tónlistarmanna og hljómsveita á borð við Björk, Of Monsters and Men, Sigur Rós, Kaleo og fleiri. Á safninu er að finna nýtt sýningaratriði sem hylur stærsta vegg safnsins þar sem upplýsingum um íslenska tónlistarmenn er varpað á um tólf metra breiðan vegg. Tilgangur atriðisins er að gera safngestum kleift að kafa dýpra í sögu þeirra listamanna sem fjallað er um í sýningaratriðinu en atriðið blandar saman skrifaðri sögu listamannanna ásamt ljósmyndum, myndböndum og tónlist. Safngesturinn velur sjálfur hvaða vínylplötu hann setur á fóninn og svo snýr hann plötunni sjálfur á meðan hann skoðar efnið sem tengist listamanninum. Auk þess geta safnagestir prófað ýmis hljóðfæri svo sem rafmagnsgítar, bassa, trommur og sérhannaðan karókí-klefa þar sem gestir geta sungið ýmis lög.
Rokksafn Íslands er fyrir alla – bæði þá sem þekkja og elska íslenska tónlist og þá sem vilja fræðast betur um hana. Safnið er staðsett í Reykjanesbæ í um hálftíma akstursfjarlægð frá höfuðborginni.
Hjallavegur 2, 260 Reykjanesbær. 420 1030 www.rokksafn.is / info@hljomaholl.is Opnunartími: Daglega, 11-18.
Ef þú hefur áhuga á íslenskri náttúru og dýralífi, rannsóknum á sviði náttúrufræða og listum, þá er Þekkingarsetur Suðurnesja staður sem þú þarft að heimsækja!

Í náttúrusalnum er hægt að skoða uppstoppuð dýr úr íslenskri náttúru og sjá lifandi sjávardýr í sjóbúrum. Gaman er að flétta fjöruferð á Garðskaga saman við heimsókn í Þekkingarsetrið, lífverum er þá safnað í fjörunni og þær svo skoðaðar í víðsjám í setrinu.
Í sögusalnum er hin glæsilega sýning Heimskautin heilla sem fjallar um líf og störf franska læknisins, vísindamannsins og heimskautafarans Jean-Baptiste Charcot. Rannsóknaskip hans, Pourquoi-Pas?, fórst við Íslandsstrendur árið 1936. Á neðri hæð setursins er að finna lista- og fræðslusýninguna Huldir heimar hafsins – ljós þangálfanna, fallega og fróðlega sýningu þar sem vísindalegum fróðleik um mikilvægi hafsins og hættur sem að því steðja er fléttað saman við ævintýraheim þangálfanna.
Heimsókn í Þekkingarsetur Suðurnesja er tilvalin fyrir fjölskyldur og fróðleiksfúst fólk á öllum aldri. Taktu þátt í ratleiknum okkar sem mun leiða þig áfram í spennandi ferðalag um nágrenni setursins í leit að dýrum, plöntum og sögufrægum stöðum.
Garðvegi 1, 245 Sandgerði 423 7555 www.thekkingarsetur.is thekkingarsetur@thekkingarsetur.is Opnunartími: 1. maí–31. ágúst: mán–fös 10-16, helgar 13-17. Hægt að hafa samband í síma fyrir hópa 423 7551. Aðgangseyrir: 600 kr. Börn 6-15: 300 kr. Eldri borgarar: 400 kr. Hópar (10+): 500 kr.


Byggðasafnið á Garðskaga er staðsett á fallegu safnasvæði við Garðskagavita í Suðurnesjabæ, þar sem víðsýni er til allra átta, fjölbreytt fuglalíf, hafið í sinni síbreytilegu mynd og gönguleiðir með sjónum.
Byggðasafnið varðveitir og segir sögu fólks á Suðurnesjum. Menningarminjar er víða að finna í Suðurnesjabæ m.a. Skagagarðurinn frá 10. öld, á Rosmhvalanesi, sem er gamalt nafni yfir þetta svæði. Vélbáturinn Hólmsteinn GK20, 43 tonna trébátur, stendur við safnið. Vélasafn Guðna Ingimundarsonar og Trukkurinn hans hafa mikið aðdráttarafl. Elsta vélin er Scandia glóðarhausvél frá 1920. Trébáturinn Fram, sexæringur með Engeyjarlagi, smíðaður 1887 er varðveittur í safninu. Nýlega var opnuð safnverzlun og móttaka með innréttingum frá 1921 úr Verzlun Þorláks Benediktssonar, Akurhúsum í Garði.

Skagabraut 100, 250 Suðurnesjabær 425 3800 byggdasafn@sudurnesjabaer.is Facebook: @byggdasafngardskaga Instagram: byggdasafnid.gardskaga Opnunartími: 1. mai – 30. sept: daglega, 10-17. 1. okt – 30. apríl: Opið eftir samkomulagi, hafið samband við byggdasafn@sudurnesjabaer.is.