
14 minute read
Norðurland
Nr. Safn Síða 1 Byggðasafn á Reykjum ............... 66 2 Heimilisiðnaðarsafnið ................ 66 3 1238 - Baráttan um Ísland ............. 68 4 Byggðasafn Skagfirðinga ............. 67 5 Hóladómkirkja ...................... 67 6 Davíðshús ......................... 73 7 Listasafnið á Akureyri ................ 69 8 Leikfangahúsið á Akureyri ............ 71 9 Nonnahús ......................... 71 10 Minjasafnið á Akureyri ............... 70 Nr. Safn ............................. Síða 11 Flugsafn Íslands .................... 72 12 Safnasafnið ........................ 73 13 Gamli bærinn á Laufási ............... 74 14 Grenjaðarstaður .................... 78 15 Hvalasafn Húsavíkur ................. 76 15 Safnahúsið á Húsavík ................ 74 16 Minjasafnið á Mánarbakka ............ 78 17 Snartarstaðir ...................... 79 18 Sauðanes á Langanesi ................ 79
1
745
HVÍTSERKUR BLÖNDUÓS 74
2
744
1
SAUÐÁRKRÓKUR
3
75 4
1
767
SIGLUFJÖRÐUR
76
5
DALVÍK
82
13
12
AKUREYRI
829
752
821
HOFSJÖKULL
16
HÚSAVÍK 15
85
85
GOÐAFOSS
14
87
842
MÝVATN
17
ÁSBYRGI
DETTIFOSS
864
Akureyri
1
HOF
TORGIÐ
BREKKUGATA6 7
HAFNARSTRÆTI
AKUREYRARKIRKJA
GLERÁRTORG
18
1
85
1
8
821
9 10
FLUGVÖLLUR AKUREYRAR
11
Á Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna er áhersla lögð á líf og störf fólks og síðari hluta 19. aldar og byrjun þeirrar 20.
Á safninu eru tvær sýningar í sitthvorum sýningarsalnum. Í fyrsta lagi er sýning hákarlaveiðar við Húnaflóa, en tímabil hákarlaveiðanna var merkilegt tímabil í atvinnusögu héraðanna við Húnaflóa. Í stærri sýningarsal safnsins er áhersla lögð á íslenska sveitasamfélagið líkt og það var í kring um aldamótin 1900.
Reykjaskólvegur 6, Hrútafirði, 500 Stað 451 0040 www.reykjasafn.is reykjasafn@hunathing.is Opnunartími: 1. júní – 31. ágúst: daglega, 9-17. 1. sept – 31. maí: eftir samkomulagi. Aðgangseyrir: 1.000 kr. Hópar (10+), eldri borgarar og öryrkjar: 700 kr. Börn 17 ára og yngri: Ókeypis.
Heimilisiðnaðarsafnið
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi er eina sérgreinda textílsafnið á Íslandi.
Safnið er í glæsilegu húsi þar sem aðgengi gesta er með ágætum. Munir safnsins mynda nokkrar ólíkar og sjálfstæðar sýningar: útsaumssýning, sýning á íslenskum þjóðbúningum, Halldórustofa sem helguð er lífi og starfi Halldóru Bjarnadóttur (1873-1981), ullarsýning og árlega er ný sérsýning textíllistafólks.


Árbraut 29, 540 Blönduós 452 4067 www.textile.is textile@textile.is Opnunartími: Júní – ágúst: daglega, 10-17. Sept – maí: eftir samkomulagi. Aðgangseyrir: 1.500 kr. Eldri borgarar: 1.500 kr. Börn 16 ára og yngri ókeypis. Afsláttur fyrir hópa.
Safnið var stofnað árið 1948 og er staðsett við gamla bæinn í Glaumbæ á Langholti.
Í bænum er fjöldi muna, flestir tengdir heimilishaldi og verklagi fyrri tíðar. Torfbærinn, sem er samstæða þrettán húsa, er einstakur að því leyti að mjög lítið grjót var notað í hleðslurnar. Einnig er að finna tvö gömul timburhús á lóðinni: Áshús, byggt 1884-1886 til að hýsa kvennaskóla fyrir Skagfirðinga (ekkert varð þó af því), og sem er nú kaffistofa og sýning; og Gilsstofa, upphaflega reist á Espihóli í Eyjafirði 1849, en er nú safnbúð og skrifstofa byggðasafnsins. Miða fyrir safnið í Glaumbæ má nálgast í litlu þjónustuhúsi sem stendur við innganginn að safnasvæðinu.

Glaumbær, 561 Varmahlíð 453 6173 byggdasafn@skagafjordur.is, glaumbaer.is
Opnunartími: 1. apríl - 19. maí. Opið virka daga kl. 10 - 16. 20. maí - 20. september. Opið alla daga kl. 10-18. 21. september - 20. október. Opið virka daga kl. 10 - 16. 21. október - 31. mars. Eftir samkomulagi. Aðgangseyrir: 1.700 kr. fyrir fullorðna, frítt fyrir 17 ára yngri. Afsláttur fyrir eldri borgara, hópa, námsmenn og öryrkja.
Hóladómkirkja er elsta steinkirkja landsins, vígð árið 1763.
Hún er fimmta dómkirkjan sem stendur á Hólastað síðan biskupsstóll var settur á Hólum árið 1106. Í kirkjunni eru einir dýrmætustu kirkjugripir landsins sem eru á sínum upprunalega stað m.a. hin fræga Hólabrík.

Hóladómkirkja
Hólar í Hjaltadal, 551 Sauðárkrókur 453 6173 www.glaumbaer.is holabiskup@kirkjan.is Opnunartími: 15. maí – 1. sept: daglega, 10-18. 2. Sept – 14. maí: eftir samkomulagi. Aðgangseyrir: Ókeypis, frjáls framlög þegin.
1238 – Baráttan um Ísland er áhrifarík sögu og upplifunarsýning á Sauðárkróki sem segir á nýstárlegan hátt frá stóratburðum sem áttu sér stað í Skagafirði á Sturlungaöld. Sýningin samanstendur af sýndarveruleika þar sem gestir stíga inn í sögusvið Örlygsstaðabardaga, gagnvirkri upplifun sem veitir spennandi innsýn og fræðslu um Sturlungaöldina, í bland við hefðbundna sýningarnálgun.

Sýningin sviðsetur frægustu atburði Sturlungaaldarinnar (1220 – 1264); blóðugasta og afdrifaríkasta tímabilinu í sögu Íslands, þar sem ættar- og höfðingjaveldi börðust í allsherjar borgarastyrjöld sem lauk með því að Íslendingar glötuðu sjálfstæðinu.
Sýningin skiptist í þrjá sali þar sem sérstök áhersla er lögð á að kynna helstu lykilatburði; orrusturnar stóru, Haugsnesbardaga, Örlygstaðabardaga, Flóabardaga auk Flugumýrarbrennu. Sérstaða sýningarinnar er notkun á nýjustu tækni til að nálgast söguna og íslenska menningararfleifð þar sem sýndarveruleiki, viðbótarveruleiki og gagnvirk gervigreind kemur við sögu.
Einnig eiga tónlist og listir sitt hlutverk, sem kemur fram í leikmyndum, listaverkum og innsetningum.
1238 – Baráttan um Ísland er frábær afþreying fyrir alla aldurshópa, fjölskyldur, vinahópa, vinnustaði og svo mætti lengi telja, þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Fólk með áhuga á sögu, menningu og tækni er sérstaklega velkomið.
Í anddyri sýningarinnar er að finna veitingastaðinn Grána Bistro, minjagripaverslun og upplýsingamiðstöð, sem gerir Aðalgötu 21 að kjörnum viðkomustað.
Aðalgata 21, 550 Sauðárkrókur 588 1238 www.1238.is info@1238.is Opnunartími: Sumar: daglega, 11-17. Vetur: mán – lau, 11-16, lokað á sunnudögum. Aðgangseyrir: 3.450 kr. Börn 6-13: 2.400 kr. Börn 5 ára og yngri: ókeypis.
Listasafnið á Akureyri leggur áherslu á að efla menningarlíf bæjarins og auka við áhuga á sjónlistum.

Safnið er til húsa í hjarta Akureyrar í Listagili. Ár hvert er leitast eftir að setja upp fjölbreyttar og metnaðarfullar sýningar eftir listamenn hvaðanæva af heiminum, hvort sem um ræðir málverk eða teikningar, ljósmyndir eða gjörninga.
Kaupvangsstræti 8-12, 600 Akureyri 461 2610 www.listak.is listak@listak.is Opnunartími: Alla daga 12-17. Aðgangseyrir: 1.900 kr. Námsmenn og eldri borgarar: 950 kr. Öryrkjar, börn (18 ára og yngri) og nemendur: ókeypis




Í elsta bæjarhluta Akureyrar, Innbænum, eru þrjú fjölbreytt og fjölskylduvæn söfn. Tvö þeirra eru við einn elsta skrúðgarð landsins, sem er tilvalinn áningarstaður með bekkjum, borðum og stólum. Í garðinum stendur Minjasafnskirkjan, byggð 1846, sem er leigð út fyrir athafnir og tónleika.
Minjasafnið á Akureyri – fjölskylduvænar sýningar Minjasafnið á Akureyri hefur upp á að bjóða áhugaverðar sýningar fyrir alla fjölskylduna. Sýningar ársins eru Tónlistarbærinn Akureyri, Akureyri bærinn við Pollinn, Akureyri 1809/1862, Ástarsaga Íslandskortanna, ljósmyndasýningin Í skugganum og árleg jólasýning. Á safninu er hægt að prófa hljóðfæri, leika sér í búðarleik, fara í búning og leika sér við Islandia leikborðinu. Tylltu þér við hljómplötuborðið með ókeypis kaffibolla og líttu í tónlistarblaðið.

Nonnahús – æskuheimili Nonna Þekkir þú Nonna? Vissir þú að í húsinu var einu sinni skóli? Hvað bjuggu margar fjölskyldur í Nonnahúsi á sama tíma? Af hverju er þar bækur á japönsku, basknesku og esperantó? Nonnahús geymir margar sögur. Stærst þeirra er saga Nonna og fjölskyldu hans. Hvers vegna flutti Nonni 12 ára gamall frá Akureyri og gerðist jesúítaprestur og rithöfundur?

Leikfangahúsið á Akureyri Í elsta bæjarhluta Akureyrar eru húsin nánast eins og dúkkuhús. Einu þeirra hefur verið breytt í Leikfangahús, þar sem úir og grúir af leikföngum frá síðustu 100 árum. Hver hefur ekki ímyndað sér að fá að leika sér í leikfangaverslun? Komdu og upplifðu æskuna og taktu krakkana með þér. VARÚÐ! Það gengur oft hægt að fá krakkana út, þið vitið hver þið eruð! Húsið heitir Friðbjarnarhús eftir Friðbirni Steinssyni sem það reisti og bjó í ásamt fjölskyldu sinni. Í húsinu var Góðtemplarastúka Íslands stofnuð og á efri hæðinni er fundarherbergi hennar. Leikfangahúsið er 200 m frá Nonnahúsi, Minjasafninu og Minjasafnsgarðinum.


Aðalstræti 48, 56 and 58 462 4162
Opnunartími: Júní – september: daglega, 11-17. Október – maí: daglega, 13-16. Aðgangseyrir: 2.000 kr. – gildir á 5 söfn allt árið. Börn 0-17 ára og öryrkjar frítt.

Strætó nr. 5/6 - 20 mín frá Ráðhústorginu 10 mín frá Lystigarðinum.
Á Flugsafni Íslands er yfir 100 ára sögu flugs á Íslandi miðlað til gesta á lifandi hátt.

Sýningar safnsins leiða gesti í gegnum þróun íslensks flugs og flugfélaga frá árinu 1919 og til dagsins í dag með flugvélum af ýmsum stærðum og gerðum, björgunarþyrlu og flugmódelum auk fjölda annarra áhugaverðra muna og ljósmynda.
Sumar flugvélanna eru enn í flughæfu ástandi og er m.a. flogið á Flugdegi safnsins sem haldinn er árlega í júní, og gestum er velkomið að ganga um vél Landhelgisgæslunnar, TF-SÝN.
Verið velkomin á Flugsafn Íslands!
Akureyrarflugvöllur, 600 Akureyri 461 4400 / 844 01014 www.flugsafn.is flugsafn@flugsafn.is Opnunartími: 15. maí – 15. september: daglega, 11-17. 16. september – 14. maí: laugardaga, 13-16. Einnig er opið eftir samkomulagi. Aðgangseyrir: 1.500 kr. Eldri borgarar, námsmenn og hópar (10+): 1.000 kr. 18 ára og yngri: Ókeypis.


Komdu í leiðangur um fagurt heimili skáldsins frá Fagraskógi.
Davíðshús var reist árið 1944 af einu ástsælasta skáldi Íslendinga, Davíð Stefánssyni frá Fagraskógi. Davíð var sannkallaður fagurkeri og safnari af guðs náð. Húsakynnin bera smekkvísi hans glöggt merki, full af bókum og handritum, listaverkum og persónulegum munum, eins og hann skildi við árið 1964, næstum eins og hans sé að vænta innan skamms. Heimili Davíðs var gert að safni 1965. Akureyrarbær keypti bókasafn hans, erfingjar ánöfnuðu safninu persónulegum munum og innanstokksmunum hússins en efnt var til landssöfnunar til kaupa á Bjarkarstíg 6 sem var afhent bænum til umsjár. Í leiðsögninni kynnumst við skáldinu og leyndardómunum sem þar er að finna í hverjum kima hússins.

Bjarkarstígur 6, 600 Akureyri 462 4162 www.minjasafnid.is minjasafnid@minjasafnid.is facebook: Davíðshús Opnunartími: Júní – ágúst: leiðsögn kl. 13, 14 og 15 þriðjudag til laugardags. Aukaleiðsagnir auglýstar sérstaklega. Aðgangseyrir: 2.000 kr. Miðinn gildir á 5 söfn allt árið. Börn 0-17 ára og öryrkjar frítt.
Safnasafnið Icelandic Folk and Outsider Art Museum
Open 07.05.–11.09.2022 Every day 10:00–17.00 www.safnasafnið.is #safnasafnid + 354 461 4066

Laufás er sögustaður með mögnuðum menningarminjum og frábæru útsýni. Þar hefur verið búseta frá því að Ísland byggðist og staðið kirkja frá fyrstu kristni. Þegar þú gengur inn bæjargöngin ferðastu aftur í söguna. Laufás var heimili prestsins, fjölskyldu hans og vinnufólks. Stundum bjuggu þar allt að 40 manns, því margt vinnufólk þurfti til að nytja þessa gróðursælu kostajörð en henni fylgdu mikil hlunnindi. Laufásbærinn er stílhreinn burstabær, dæmigerður fyrir íslenska bæjagerð þess tíma, en þó allmiklu stærri. Hann er búinn

Laufás, 616 Grenivík 462 4162 www.minjasafnid.is minjasafnid@minjasafnid.is Opnunartími: Júní – september: daglega, gripum og húsmunum frá aldamótunum 1900. Laufáskirkja var byggð 1865 en meðal merkra gripa í henni er fagurlega útskorinn predikunarstóll frá 1698. Við austurgafl kirkjunnar stendur eitt elsta reynitré landsins frá 1855.
10-17. Opið fyrir hópa í september – maí eftir samkomulagi. Aðgangseyrir: 1.800 kr. Minjasafnið allt árið – gildir á 5 söfn – 2300 kr. Börn (17 ára og yngri) og öryrkjar: Ókeypis.
Safnahúsið
Í Safnahúsinu á Húsavík fer fram fjölbreytt safna- og sýningastarf.
Tvær fastasýningar eru í húsinu, auk tveggja rýma þar sem tímabundnar sýningar eru settar upp. “Mannlíf og náttúra – 100 ár í Þingeyjarsýslum” er önnur fastasýningin. Þar er áherslan lögð á samspil manns og náttúru á árunum 1850-1950. Hin fastasýning Safnahússins er Sjóminjasýning. Hún gefur glögga mynd af þróun útgerðar og bátasmíði í Þingeyjarsýslum, allt frá árabátaöldinni fram til vélbátaútgerðar.

Stóragarði 17, 640 Húsavík 464 1860 www.husmus.is / safnahus@husmus.is Opnunartími: 1. júní – 31. ágúst: Daglega 11-17. 1. sept. – 31. maí: þri-föstud, 13-16. Laugardaga, 11-15. Annar opnunartími fyrir einstaklinga og hópa eftir samkomulagi. Aðgangseyrir: 1.700 kr. Eldri borgarar og hópar (10+): 1.200 kr. Börn 16 ára og yngri: ókeypis.


Hvalasafnið á Húsavík var stofnað árið 1997 með það að meginmarkmiði að fræða gesti um hvali, vistfræði sjávar og samskipti manna og hvala í gegnum tíðina með áhugaverðri framsetningu. Er það eitt fárra safna í heiminum sem er algjörlega tileinkað hvölum.
Safnið hefur mörg fjölbreytt sýningarrými og er metið sem ein besta afþreyingin á Norðurlandi á ferðasíðunni TripAdvisor. Til sýnis eru beinagrindur af allskyns stærðum og gerðum, ásamt áhugaverðum fróðleik um hvali. Á safninu er sérstakt svæði tileinkað Hvalaskóla, ætlað til fræðslu fyrir almenning. Þar er einnig notalegur kaffikrókur þar sem gestir geta tyllt sér og gripið í bók. Í sérstöku sýningarherbergi er svo heimildarmynd til sýnis.
Safnið hefur ellefu hvalabeinagrindur í fullri stærð til sýnis. Náhvalur með skögultönn sem minnir á einhyrning er



einn af skemmtilegri gripum safnsins, ásamt risastórri beinagrind af steypireyð.

Lítil gjafavörubúð er við innganginn þar sem má finna minjagripi, klæðnað og bækur tengda hvölum.

Hafnarstétt 1, 640 Húsavík 414 2800 www.whalemuseum.is info@whalemuseum.is Opnunartími: Apríl – maí: daglega, 10-17. Júní – ágúst: daglega, 9-18. Aðgangseyrir: 2.200 kr. Börn 17 ára og yngri: ókeypis. Hópleiðsögn (hámark 15 manns): 10.000 kr.
Á Grenjaðarstað í Aðaldal stendur einn stærsti og glæsilegasti torfbær landsins.
Í bænum er safn sem rekið er af Menningarmiðstöð Þingeyinga og sýnir lifnaðarhætti fólks í kringum aldamótin 1900 þegar það þurfti að reiða sig á sjálft sig, hyggjuvitið og náttúruna til þess að komast af. Safnið er opið fyrir gesti yfir sumartímann.

Grenjaðarstað, 641 Húsvík 465 3688 / 464 1860 www.husmus.is safnahus@husmus.is Opnunartími: 15. júní – 15. ágúst: daglega, 11-17. Opnunartími fyrir hópa eftir samkomulagi. Aðgangseyrir: 1.700 kr. Eldri borgarar og hópar (10+): 1.200 kr. Börn 16 ára og yngri: ókeypis.
Minjasafnið á Mánárbakka
Ferðalag í gegnum tímann. Síðustu áratugir hafa verið tími mikilla breytinga og Íslendingar hafa færst með ógnarhraða inn í nútímann. Á þeirri vegferð hafa margir munir úr daglegu lífi fólks hafnað í glatkistunni.

Á Mánárbakka á Tjörnesi hefur ótölulegum fjölda muna verið safnað saman og þeir varðveittir. Árið 1994 var gamalt hús, Þórshamar, flutt frá Húsavík að Mánárbakka og hýsir það nú líka þetta merka minjasafn. Einnig var byggður lítill torfbær sem geymir hluta safnsins. Í safninu er að finna muni sem spanna mannvist á Íslandi frá því á landnámsöld og fram á þá 21. Heimsókn í safnið á Mánárbakka er því ferðalag í gegnum tímann, ferðalag sem varpar skemmtilegu ljósi á líf og lífshætti, leiki og störf þjóðarinnar frá upphafi til vorra daga.
Tjörneshreppi, 641 Húsavík 864 2057 / 464 1957 manarbakki@visir.is Opnunartími: Júní – ágúst: daglega, 10-18. Vetur: opið eftir samkomulagi.
Sjö kílómetrum norðan við Þórshöfn er Sauðaneshús, elsta steinhús í Þingeyjarsýslum.

Í húsinu er safn sem er rekið af Menningarmiðstöð Þingeyinga og sýnir líf á Langanesi fyrr á öldum, sem og hvernig fólk nýtti sér gjöfula náttúru umhverfisins til þess að lifa af í harðneskjulegum heimi. Safnið er opið fyrir gesti yfir sumartímann. Sauðaneshús er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands.

Sauðaneshús, 917 Þórshöfn 468 1430 / 464 1860 www.husmus.is safnahus@husmus.is Opnunartími: 15. júní – 15. ágúst: daglega, 11-17. Lokað á mánudögum. Aðgangseyrir: 1.000 kr. Eldri borgarar og hópar (10+): 700 kr. Börn 16 ára og yngri: ókeypis.
Snartarstaðir
Rétt utan við Kópasker eru Snartarstaðir þar sem Byggðasafn Norður-Þingeyinga er til húsa.
Á safninu má sjá fjölbreytt úrval menningarminja en sérstök áhersla er lögð á hannyrðir og fegurðina í hversdagslegum munum. Safnið gefur glögga mynd af lífi fólks á svæðinu á seinni hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar 20. Safnið er rekið af Menningarmiðstöð Þingeyinga og er opið fyrir gesti yfir sumartímann.

Snartarstöðum, 671 Kópaskeri 465 2171 / 464 1860 www.husmus.is safnahus@husmus.is Opnunartími: 15. júní – 15. ágúst: daglega, 11-17. Lokað á mánudögum. Aðgangseyrir: 1.000 kr. Eldri borgarar og hópar (10+): 700 kr. Börn 16 ára og yngri: ókeypis.