
1 minute read
OG VÉLTÆKNIGREINAR, ÞAR SEM HUGUR OG HÖND FARA SAMAN
Framhaldsskólinn hefur að bjóða upp á spennandi námsleiðir á sviði málm og véltæknigreina sem er yfirgripsmiklar og krefjandi. Ein af þeim leiðum er vélstjórnabraut sem hefur á undanförnum árum verið það vinsæl að færri komast að en vilja.
Með vélstjórnanáminu kynnist þú einnig því breiða sviði sem málmtæknin bíður upp á, svo sem málmsmíði, málmsuðu og rennismíði. Einnig er rafmagnsfræði stór hluti af vélstjórnarnáminu sem er góður grunnur fyrir áframhaldandi nám að loknu vélstjórnarnámi.
Advertisement
Vélstjórnarnám skiptist í meginatriðum í fjögur námsstig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum uppfylltum, rétt til að fá útgefið skírteini til starfa sem vélstjóri. Til sjós er starfssvið vélstjóra að annast rekstur og viðhald vél- og rafbúnaðar og tryggja, í samvinnu við aðra yfirmenn um borð, að rekstur skipsins fullnægi gildandi lögum og reglum, s.s. um öryggi skipa og mengunarvarnir. Vélaog tækjabúnaður skipa er mjög fjölbreyttur þar sem skip eru hönnuð til ólíkra hlutverka. Störf vélstjóra eru því víðtæk og spanna starfssvið margra starfsstétta í landi. Í landi stunda vélstjórar margvísleg störf og nýtist menntun þeirra vel á mörgum sviðum, því hafa þeir á undanförnum áratugum átt greiðan aðgang að störfum í landi, bæði við rekstur og viðhald vélbúnaðar, auk ýmissa stjórnunarstarfa. Fyrirtæki hér á landi jafnt sem erlendis eru öll að kalla eftir tæknimenntuðu fólki til starfa, og í boði eru góð laun og örugg vinna hvort sem er í frysti-, vatnsveitu-, vökvaog rafveitukerfi. Nemandi sem lýkur fullu vélstjórnarnámi fær réttindi sem vélfræðingur og útskrifast jafnframt sem stúdent. Vélfræðingar geta orðið leiðtogar hjá öllum fyrirtækjum og stofnunum sem eru leiðandi fyrirtæki í iðnaði hér á landi og erlendis. Einnig er nemandi, sem klárar vélstjórnarnámið, kominn með annan fótinn inn í háskólann, þá í tækifræði eða verkfræði.
Þeir sem ljúka Vélstjórnarbraut A öðlast réttindi til að gegna stöðu vélavarða og vélstjóra á skipum með vélarafli allt að 750 kW. Þeir sem ljúka Vélstjórnarbraut B fá réttindi til áframhaldandi vélstjórnarnáms og réttindi til að gegna stöðu yfirvélstjóra og 1. vélstjóra á skipum með vélarafli allt að 1500 kW og undirvélstjóra á skipum með 3000 kW og minna. Sá sem klárar vélstjórnarréttindi B getur tekið sveinspróf í vélvirkjun að lokinni verkstæðisþjálfun. Þeir sem ljúka Vélstjórnarbraut C fá réttindi til áframhaldandi vélstjórnarnáms og réttindi til að gegna stöðu yfirvélstjóra og 1. vélstjóra á skipum með vélarafli allt að 3000 kW og undirvélstjóra á skipum með ótakmarkað vélarafl.
Allt vélstjórnarnámið er alþjóðlegt og því getur menntaður vélstjóri unnið nánast hvar sem er í heiminum.

Ef þú hefur áhuga á einhvers konar iðn en veist ekki hvað, skráðu þig á vélstjórnabraut FÍV.






