
1 minute read
NÝR MINNISVARÐI AFHJÚPAÐUR Á SKANSINUM
Á föstudaginn kl. 18.00 verður afhjúpaður og vígður minnisvarði á Skanssvæðinu. Á minnisvarðann eru rituð nöfn allra þeirra Vestmannaeyinga sem vitað er að hafa farist í hafi sem og annarra er hafa horfið í sjóinn umhverfis Eyjar. Þá eru einnig nefndir einstaklingar sem fallið hafa í höfnina. Samtals eru hinir nafngreindu 503 og eru nöfnin rituð í andlátsröð frá árinu 1251.
„Nafnalistinn er því miður langt í frá tæmandi upptalning heldur miklu fremur bautasteinn, reistur þeim sem hafið hefur kallað til sín. Heimildir segja frá að minnsta kosti á annað þúsund einstaklingum er hafa farist í hafi við strendur Vestmannaeyja með íslenskum skipum og eru þá ótaldir allir þeir sem hafa látist af erlendum skipum. Meirihluti þeirra er orðinn andlitslaus tala sem aldrei verður brugðið nafni yfir. Jafnvel fjöldi látinna í einstökum slysum er oft og tíðum á allmiklu reiki, einkum á fyrri öldum. Í þeim tilvikum þar sem nöfnin eru þekkt ber heimildum heldur ekki ævinlega saman og verður í sumum tilvikum ekki úr skorið,“ segir í formála minnisvarðans.
Advertisement
Hugmyndina og heiðurinn að minnisvarðanum á Ríkharður Zóega Stefánsson, sjómaður. En fjölmargir komu að því að láta hana verða að veruleika. Sjómannadagsráð lætur reisa minnisvarðann með dyggri aðstoð ýmissa fyrirtækja, einkum í sjávarútvegi í Eyjum, stéttarfélaga sjómanna og fleiri aðila.
Þrátt fyrir að ýmis gögn væru til staðar var mikil vinna við að afla nánari upplýsinga til að gera nafnalistann sem réttastann. Að því verkefni komu m.a. þeir Kári Bjarnason og Torfi Haraldsson. Bjarki Sigurjónsson hannaði minnismerkið og Vélaverkstæðið Þór skar út nöfnin. Þá sá Sæþór Vídó um uppsetningu á nöfnum og texta á plötunum sex sem mynda minnisvarðann.
„Von allra er að ekki þurfi að bæta við öðrum nöfnum á listann en hafa fallið brott af vangá eða síðar hefur verið unnt að nafnsetja. Nöfn þeirra sem kemur í ljós að hefðu átt að vera með verða sett sem viðbót aftan við listann sem kominn er. Þau sem telja sig búa yfir slíkri vitneskju eru vinsamlegast beðin um að koma upplýsingum sínum til Sjómannadagsráðs.
Blessuð sé minning þeirra sem hér eru tilgreind sem og allra hinna ónafngreindu er hvíla þeim við hlið,“ segir í niðurlagi formálans.
Við sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins.
