
1 minute read
YFIRHEYRSLA SJÓMANNA
Fullt nafn: Guðmundur Ingi Guðmundsson

Advertisement
Aldur: 43
Fjölskylda: Aníta Óðinsdóttir eiginkona, synirnir okkar þrír, Huginn, Gabríel og Óðinn.
Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar: 1997 á Huginn og hef alltaf verið á Huginn.
Hvað heillaði við sjómennskuna: Sjómennskan hefuru verið í fjölskyldunni alla mína tíð og því hægt að segja að það sé bara í blóðinu. Maður var alltaf að sniglast á bryggjunum sem peyi.
Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með: Grímur á Felli og Palli kokkur ásamt mörgum öðrum.
Eftirminnilegasti túrinn? Siglarnar, þegar ég var 10-11 ára gamall peyi fór maður í siglingu til Hool.
Hvað finnst þér um orðið fiskari? Bara hvorki né, ég er sjómaður og mun halda mig við það orð.
Fullt nafn: Ríkharður Zoega Stefánsson

Fæðingarár: 1959
Fjölskylda: Matta, Guðbjörg og Fjóla Sif.
Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar: 1978 á Vestmannaey.
Hvað heillaði við sjómennskuna: Félagsskapurinn fyrst og fremst. Svo siglingarnar þegar þær komu þarna inn í þetta í kringum 1980 í um 10 ár.
Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með: Gunnar í Svanhól og Svenni Valgeirs. Annar laug til þrjú og svo kom hin á vakt og tók við og laug til miðnættis. Skemmtilegir og harðduglegir menn. Gaman að vera með þeim. Ásamt þeim skipstjórum sem ég hef verið með.
Eftirminnilegasti túrinn? Það var þegar ég fékk hjartaáfall. Fyrir um 12 árum síðan. Þá var ekkert símasamband og niðamyrkur. Svo datt símasambandið inn og þá var ég bara að kveðja konuna og stelpurnar mínar. En sem betur fer fór allt á besta veg.
Hvað finnst þér um orðið fiskari? Mér finnst það algjör vitleysa. Þetta á bara við okkur að vera sjómenn.