1 minute read

SJÓMAÐUR ÁRSINS

Í fyrra byrjaði Tígull með þá nýjung að velja sjómann ársins. Í ár auglýstum við eftir tilnefningum og viljum við þakka öllum þeim sem að sendu á okkur. Í ár er sjómaður ársins Georg Eiður Arnarsson. Georg er Eyjamaður, trillukarl og hafnarvörður. Hann er giftur, á fjögur uppkomin börn, níu barnabörn, tvo hunda og einn kött.

Georg er fæddur 1964 en hann byrjaði snemma á sjó. Aðeins 12 ára gamall fór hann á túr í starfskynningu hjá Dala-Rafni VE. Reyndi fyrir sér á togara rúmlega tvítugur en kaupir sér svo sína fyrstu trillu tveimur árum síðar.

Advertisement

Tígull tók Georg Eið léttu spjalli.

Hvað heillaði við sjómennskuna?

Hef alltaf verið spenntur fyrir öllum veiðum og svo er þetta bara í blóðinu.

Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með og hvers vegna?

Esra heitinn, vegna þess að hann var það góður kokkur að það þótti svolítið sérstakt að við vorum flestir í áhöfninni orðnir akfeitir eftir vertíðina og það á netabát.

Eftirminnilegasti túrinn?

Þeir eru nokkuð margir og þá sérstaklega á eigin bátum, mig minnir að það hafi verið í febrúar 2011 þegar ég fékk 5,3 tonn af stórþorski á aðeins 10 línur, en reyndar fékk ég 6 tonn í febrúar 2014 en þá á 14 línur.

Hefur þú lent í sjóslysi í sjómennskunni? Já, missti trillu í hafið 16. Desember 1989, en hef verið nokkuð heppinn síðan þá þó oft hafi það staðið tæpt.

Besti og versti matur?

Besti matur eiginlega allur fiskur, en er lítið fyrir færeyskan mat.

Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Fjöllin í Vestmannaeyjum.

Hvað var draumastarfið þitt sem lítill strákur?

Að verða sjómaður á eigin bát, tékk.

Skemmtilegasti árstíminn á sjó?

Allir árstímar ef það er mjög gott sjóveður.

Hvað finnst þér erfiðast við sjómennskuna? Kvótakerfið.

Eftirminnilegasta atvikið á sjónum?

Þegar ég réri eitt sumarið á lúðunlínu og dróg í fyrsta skipti 100 kg lúðu og svo einum krók síðar, aðra 100 kg lúðu, svolítið sérstakt að lúðuveiðar séu bannaðar í dag og allt fullt af lúðu.

Stolt siglir fleygið mitt með Gylfa Ægis eða Ship-o-hoj? Stolt siglir fleygið mitt. Siginn fiskur eða gellur?

Ég verð að sjálfsögðu að segja gellur, enda get ég ekki verið þekktur fyrir minna, en þær eru mjög góðar sérstaklega djúpsteiktar.

Hvað finnst þér um orðið fiskari? Fáránlegt.

Eitthvað að lokum : Þakka kærlega fyrir heiðurinn af þessari tilnefningu og þakka þeim sem sendu inn ábendingu um mig.

Þar sem að ég lauk við það um síðustu áramót að skrifa alla sögu mína sem trillukarl inni á blogginu mínu, þá er að sjálfsögðu öllum velkomið að skoða það inni á georg.blog.is.

Vil svo að lokum óska öllum sjómönnum gleðilegs sjómannadags.

VIÐ ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!

This article is from: