
1 minute read
BIRGITTA ÓSK VALDIMARSDÓTTIR GÆÐASTJÓRI VINNSLUSTÖÐVARINNAR
Hver er Birgitta Ósk?
,Ég heiti Birgitta Ósk Valdimarsdóttir 31 árs og er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Maki er Sigurbergur Sveinsson og eigum við tvo syni, Svein 6 ára og Gest Dan 3 ára, síðan er væntanleg prinsessa í sumar. Ég fór í Háskólann á Akureyri haustið 2019 og kláraði þar Bsc gráðu í sjávarútvegsfræði vorið 2022. Byrjaði 27 ára í náminu og sé svo sannarlega ekki eftir því í dag að hafa skellt mér í HA. Virkilega skemmtilegt og krefjandi nám og algjör plús að það er allt kennt í fjarnámi sem gerði mér kleift að stunda námið frá eyjum“.
Advertisement
Hvernig kom það til að þú fórst að vinna sem gæðastjóri hjá VSV og hvað ertu búin að vinna við það lengi?
,,Ég hef alltaf haft áhuga á þessu sviði og þegar ég var rúmlega hálfnuð með námið sótti ég um vinnu hjá Vinnslustöðinni til að hafa samhliða náminu. Ég fékk 50% stöðugildi með síðasta árinu í skólanum og vann í ýmsum verkefnum tengdum gæðastjórnun í VSV og dótturfélögum. Þegar ég lýk svo námi vorið 2022 er mér boðin full staða og titilinn gæðastjóri Vinnslustöðvarinnar og dótturfyrirtækja. Ég hef því starfað í ár við það og líkar það mjög vel“.
Í hverju felst þessi vinna?
,,Það er erfitt er að lýsa starfinu í stuttum orðum þar sem mér finnst enginn dagur eins hjá mér og það er líklegast það sem mér líkar best við vinnuna. En ég er með yfirumsjón yfir gæðastörfum og snýr það fyrst og fremst að því að framleiða góða og örugga vöru fyrir viðskiptavini okkar, viðhalda stöðlum og taka á móti úttektaraðilum. Í öllu þessu felst mikil vinna sem unnið er markvisst að allt árið.
Hvað finnst þér skemmtilegast við þessa vinnu og hvað kom þér helst á óvart í þessu starfi?
,, Það sem mér líkar best við starfið er hversu fjölbreytt það er. Það kom mér ekkert rosalega mikið á óvart þegar ég byrjaði þar sem ég hef áður unnið sem gæðastjóri og þekki vel til. En það er samt alltaf að koma upp nýjar og krefjandi áskoranir sem gaman er að takast á við. Samstarfsfólkið mitt í VSV er líka ótrúlega skemmtilegt.
Eru konur jafnt sem karlar sem við vinna við þessa vinnu?
,,Já ég veit alveg um karla sem starfa við gæðamál, en ég hugsa það séu fleiri konur sem starfa við þetta samt sem áður“.
Eitthvað að lokum?
,,Hvet alla til að skella sér í nám sem eru að hugsa um það því það er aldrei of seint að mennta sig“.