
3 minute read
Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!
PIZZUTILBOÐ
12” PIZZA með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 4.590 kr. ]
Advertisement
16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 6.290 kr. ]
9” PIZZA með 3 áleggjum [ 2.290 kr. ]
12” PIZZA með 3 áleggjum [ 2.790 kr. ]
16” PIZZA með 3 áleggjum [ 3.390 kr. ]
12” PIZZA með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 4.090 kr. ]
16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.790 kr. ] OPIÐ Sun-fim 12-21 Fös og lau 12-22
TVENNUTILBOÐ Tvær 16” pizzur + stórar brauðstangir [ Greitt er fyrir dýrari pizzuna og brauðstangir ]
Sendum alla daga
Þóra Björg Stefánsdóttir útskrifaðist síðastaliðinn laugardag sem stúdent en hún hlaut viðurkenningu fyrir frábæran heildarárangur á útskriftarpróf eða 9,2 í meðaleinkunn. Hún hlaut einnig viðurkenningar fyrir góðan árangur í stærðfræði, dönsku og raungreinum.

Birkir Freyr Ólafsson hlaut viðurkenningu fyrir mjög góðan heildarárangur á stúdentsprófi.
Fullt nafn: Þóra Björg Stefánsdóttir
Foreldrar: Þjóðhildur og Stefán
Systkini: Þórður Örn, Kristín Auður, Egill og Brynjar Þór
Ertu búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór?
Nei, ekki alveg
Ætlar þú strax í framhaldsnám?
Já ég stefni á það
Í hvaða skóla þá stefnir þú? Staðarnám eða fjarnám? Ég stefni bara á HR eða HÍ í staðnám
Hvernig er þín upplifun af FÍV? Mjög góð, mikil samheldni og skemmtilegt heilt yfir
Uppáhalds kennari í FÍV? Óli Týr
Hvað var skemmtilegast við námsfagið þitt? Stærðfræðin
Eitthvað að lokum?
Takk fyrir samfylgdina síðustu þrjú ár kennarar og nemendur í FÍV
Fullt nafn: Birkir Freyr Ólafsson.
Foreldrar: Lovísa Inga Ágústsdóttir og Ólafur Jakobsson.
Systkini: Ég á eina systur og heitir hún Elsa Rún Ólafsdóttir.
Ertu búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór?

Ætli maður sé ekki nokkuð búinn að leggja línurnar með þessu námi, eitthvað vélatengt.
Ætlar þú strax í framhaldsnám ?
Já ég ætla að halda áfram í vélstjórninni og taka C stigið og aldrei að vita nema að maður klári bara líka D stigið. Einnig stefni ég á að klára sveinspróf í vélvirkjun á næsta ári.
Í hvaða skóla þá stefnir þú? Staðarnám eða fjarnám ? Stefni á C stigið í FÍV þar sem skólinn ætlar að byrja á að kenna það í staðarnámi næsta haust.
Hvernig er þín upplifun af FÍV?
Mér er búið að líða vel í FÍV frábært að geta lært það sem manni langar í sinni heimabyggð. Svo er búinn að vera góður mórall í vélstjórnarhópnum og hjá kennurunum.
Uppáhalds kennari í FÍV?
Erfit er að gera upp á milli góða kennara en þeir þrír sem standa uppúr eru vélstjórnarkennaranir Gísli, Matthías og Þröstur.
Hvað var skemmtilegast við námsfagið þitt?
Erfitt að segja, en þegar áhuginn er mikill á efninu þá er eiginlega allt skemmtilegt. En ef ég þyrfti að velja eitthvað eitt þá væri það kælitæknin.
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA TIL 02:00
FÖS OG LAU TIL 04:00
KOMDU OG KÍKTU VIÐ!
TILHAMINGJUMEÐDAGINN
KÆRUSJÓMENNOGFJÖLSKYLDUR!
Fullt nafn: Helena Jónsdóttir
Foreldrar: Jón Atli Gunnarsson og Sigurhanna Friðþórsdóttir

Systkini: Selma, Hákon og Díana

Ertu búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór? Nei ekki enn
Ætlar þú strax í framhaldsnám? Nei ég ætla að taka mér árs pásu frá skóla
Í hvaða skóla þá stefnir þú? Staðarnám eða fjarnám? Þegar ég fer í skóla þá stefni ég á að fara í staðnám

Hvernig er þín upplifun af FÍV? FÍV er góður skóli sem gefur þér möguleika á að stunda nám en á sama tíma getur þú ræktað vináttuna úr grunnskóla
Uppáhalds kennari í FÍV? Óli Týr og Gunnar Friðfinns
Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst? Kynjafræði hjá Jónu Heiðu var mjög áhugavert en tölvustærðfræði hjá Gunnari var skemmtilegast
Eitthvað að lokum? Takk fyrir mig FÍV
Fullt nafn: María Fönn Frostadóttir
Foreldrar: Frosti og Ingibjörg
Systkini: Tinna, Bjartey og Sandra
Ertu búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór?
Ég hef ekki ákveðið hvað ég ætla að gera strax, enda liggur ekkert á þar sem lífið er rétt að byrja. Ég mun taka þau tækifæri sem koma en það verður spennandi að sjá hver mín leið verður í lífinu.
Ætlar þú strax í framhaldsnám?
Ég stefni á að taka árs frí til þess að vinna inn pening til þess að fara í nám erlendis. Þetta hlé frá náminu mun gefa mér tækifæri til þess að kanna fleiri staði og þjálfa nýja hæfileika!
Hvernig er þín upplifun af FÍV? Frábærir kennarar og almennt skemmtileg stemmning. Þetta er lítið samfélag og það þekkjast flestir sem er skemmtilegt. Í náminu var mikil áhersla á að læra um umhverfismál og nútíman sem er nauðsynlegt í nútímasamfélagi. Nemendur voru hvattir til að hugsa sjálfstætt og nota gagnrýna hugsun.
Uppáhalds kennari í FÍV? Leyndó
Hvað var skemmtilegast við námið?
Það skemmtilegasta við námið var þegar við fengum að vinna sjálfstætt í verkefnum og fengum að sýna skapandi vinnubrögð. Myndbandaverkefni voru sérstaklega í uppáhaldi hjá mér. Verkefnin voru fjölbreytt og ég var á náttúrufræðibraut. Við unnum alls konar tilraunir og rannsóknir og ég hvet tilvonandi nýnema til þess að velja náttúrufræðibraut!
Eitthvað að lokum? Ég vil bara nota þetta sem tækifæri til að minna fólk á að stíga út fyrir þægindaramman. Einnig vil ég hvetja ungmenni til þess að vera þau sjálf því lífið er of stutt til þess að fá ekki að njóta þess til fulls.