1 minute read

VSV STYRKIR TIL NÁMS Í SKIPSTJÓRN OG VÉLSTJÓRN

Fyrir um 15 árum síðan átti VSV erfitt með að ráða réttindamenn á skipin sín og má segja að þessi staða komi reglulega upp. Árið 2022 var auglýst eftir nemum í skipstjórn og vélstjórn til að styrkja til náms. Fjöldi umsókna barst og er VSV nú að styrkja tvo skipstjórnarnema til náms. Styrktarsamningur felur í sér að Vinnslustöðin styrkir nema um allt að 300.000 kr. á önn miðað við námsframvindu og tryggir nema vinnu með skóla og á sumrin við starf tengt námi. Vinna nemans er ekki bundin við ákveðið skip og getur verið að nemi fari á milli skipa á námstímanum. Að námi loknu skuldbindur nemi sig til að starfa hjá Vinnslustöðinni í allt að þrjú ár að loknu námi. Ef styrkþegi hættir námi eða hættir hjá Vinnslustöðinni þá þarf hann að endurgreiða styrkinn til baka samkvæmt samningi þar um.

Stefán Ingi Jónsson er einn af þeim sem er á styrktarsamning frá VSV til náms. Við tókum Stefán í smá spjall um námið.

Advertisement

Fullt nafn og fjölskylda? ,,Stefán Ingi Jónsson heiti ég. Fjölskylda mín er Iwona og kettirnir þrír, Tómas, Polly og Katla“.

Segðu okkur aðeins frá náminu þínu og hvað þú stefnir á eftir útskrift? Er sjómennska eitthvað sem þú stefndir alltaf á að vinna við? ,,Veit nú ekki hvað ég á að segja um það annað en það er mjög þægilegt að taka þetta i fjarnámi með vinnu. Maður tekur bara eins mikið og maður vill hverja önn . Ég held áfram á sjó allavega. Já það eru allir á sjó í kringum mann, pabbi og afar“.

Mælir þú með þessu námi?

,, Já ég geri það“. Hvað finnst þér skemmtilegast við námið og er eitthvað sem kom þér á óvart?

,,Mér finnst skemmtilegast að læra nýja hluti og það sem kom mér helst á óvart að þetta nám er ekki jafn erfitt og ég átti von á“.

Hverju breytti það fyrir þig að fá VSV til að styrkja þig til náms?

,,Atvinnuöryggi og fjárhagsleg aðstoð. Styrkurinn borgar gistingu, ferðir í bæinn til að mæta í skóla og rúmlega það“.

Eitthvað sem þú vilt segja að lokum?

,, Já, það vantar göng til Eyja“.

This article is from: