3 minute read

LILJA BJÖRG ARNGRÍMSDÓTTIR STARFSMANNASTJÓRI VSV

Lilja Björg Arngrímsdóttir er starfsmannastjóri VSV og sér m.a. um öryggismál fyrirtækisins bæði á landi og sjó. Við fengum Lilju Björg í smá spjall til að ræða það hvað það er nákvæmlega sem öryggisfulltrúi gerir.

Segðu okkur aðeins betur frá sjálfri þér.

Advertisement

,,Ég heiti Lilja Björg Arngrímsdóttir, gift Gísla Geir Tómassyni og eigum við þrjú börn sem öll eru í Grunnskóla Vestmannaeyja. Við Gísli erum bæði fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og eigum þar sterkar rætur. Ég er stúdent frá FÍV og svo lá leið mín í lögfræði við Háskólann í Reykjavík árið 2002 og lauk ég þar masternámi árið 2007“.

Hvað gerir þú nákvæmlega hjá VSV og hvernig kom það til að þú fórst að vinna sem öryggisstjóri og hvað ertu búin að vinna við það lengi?

,, Í byrjun árs 2012 tókum við hjónin ákvörðun um að flytja aftur til Vestmannaeyja eftir að hafa búið í höfuðborginni í 10 ár. Gísli hafði þá fengið vinnu sem vélvirki hjá Vinnslustöðinni en ég var í lausu lofti þar til Binni framkvæmdastjóri í Vinnslustöðinni hafði samband við mig og bauð mér að koma til reynslu en aldrei hafði verið starfandi lögfræðingur hjá fyrirtækinu. Hlutirnir þróuðust mjög hratt og það sem átti að vera hlutastarf varð að fullu starfi og ég tók að mér fleiri verkefni innan fyrirtækisins. Í dag sit ég í framkvæmdaráði félagsins, starfa sem starfsmannastjóri og lögfræðingur og sit í stjórnum félaga sem öll tengjast Vinnslustöðinni. Eitt af þeim verkefnum sem starfsmannastjóri fer með eru öryggismál fyrirtækisins. Það á bæði við um öryggismál í landi og á sjó“.

Í hverju felst þessi vinna?

,,Hlutverk starfsmannastjóra í fyrirtækinu er mjög fjölbreytt, áhugavert og skemmtilegt. Það má segja að enginn dagur sé eins þegar kemur að því. Hjá Vinnslustöðinni og dótturfélögum starfa nú hátt í 500 starfsmenn. Hlutverk mitt er að styðja við starfsmenn og aðstoða stjórnendur við að tryggja að faglega sé staðið að ákvörðunum sem lúta að starfsmönnum bæði hjá Vinnslustöðinni og dótturfélögum.

Þá fylgist ég með því að starfsfólk fari eftir þeim skráðu og óskráðu reglum sem gilda í fyrirtækinu og að háttsemi og hegðun starfsmanna samræmist gildum fyrirtækisins. Þá fer dágóður tími hjá mér í að áætla mannaflaþörf sem er síbreytileg í þessu umhverfi. Miklar áskoranir geta falist í því að samræma þessa þætti innan fyrirtækisins en hjá fyrirtækinu starfa starfsmenn innan ólíkra stétta. Fiskvinnslustarfsmenn og sjómenn eru þar langfjölmennust hjá okkur en þar á eftir koma iðnaðarmenn“.

Hvað finnst þér skemmtilegast við þessa vinnu og hvað kom þér helst á óvart í þessu starfi? ,,Dagarnir geta verið alls konar og lang oftast eru þetta fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Það sem mér þykir skemmtilegast er að ég hef kynnst fullt af frábæru fólki. Starfsmenn koma og fara en við höfum verið lánsöm að hjá okkur starfar bæði reynslumikið fólk með áratuga starfsaldur hjá Vinnslustöðinni en einnig ungt og metnaðarfullt fólk sem hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með þróast í starfi. Verkefni mín eru eins og áður segir fjölbreytt og ég nærist á nýjum áskorunum og að læra nýja hluti og jafnvel þó ég hafi nú starfað í yfir 10 ár hjá fyrirtækinu þá er ég enn að læra eitthvað nýtt. Hjá Vinnslustöðinni er lögð áhersla á að vera sífellt að þróa og leita leiða til að auka öryggi sjómanna. Fyrst og fremst er það sjómannanna sjálfra að huga að eigin öryggi. Hlutverk mitt í öryggismálum sjómanna er að huga að framgangi öryggismála á sjó og að fylgja því eftir og að sjá til þess að viðhlítandi stuðningur úr landi sé ætíð fyrir hendi. Ég sit í öryggisráði á vegum Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, og þar sem öryggismál eru ekki samkeppnismál þá deila þeir sem í hópnum sitja reynslu sinni með öðrum og við leggjum metnað okkar í að vera stöðugt að leita leiða til að bæta öryggi og öryggismenningu á sjó. Markmið okkar allra er að fækka slysum og óhöppum í atvinnugreininni“.

Eru konur jafnt sem karlar sem vinna þessa vinnu? ,,Í öryggisráði SFS sitja konur jafnt sem karlar. Í sumum tilvikum hafa útgerðir starfandi öryggisstjóra í fullu starfi sem eingöngu sinnir öryggismálum en hjá öðrum eru öryggismál á hendi starfsmannastjóra, útgerðarstjóra eða gæðastjóra“.

Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? ,,Góður árangur hefur náðst í að fækka slysum á sjó. Þennan góða árangur má að miklu leyti þakka betri skipum og búnaði. En þegar upp er staðið snýst þetta um betri þekkingu sjómannanna sjálfra og bættri öryggisvitun þeirra. Ég óska sjómönnum öllum til hamingju með sjómannadaginn“.

This article is from: