JólaKraftur 2022

Page 1

JÓLA 2022

Hátíðarvörur til styrktar Krafti Njóttu þess að gefa gómsætt súkkulaði frá Omnom. Tvöföld jólagjöf - gæða súkkulaði fyrir þig og þína og gjöf til styrktar góðu málefni. Vetrarlína Omnom er hin fullkomna þrenning með þremur bragðgóðum súkkulaðiplötum og eru umbúðirnar sérmerktar Krafti. Verð frá 3.790 til 3.990 kr. eftir fjölda askja. Svo sannarlega góðgæti sem gefur áfram

Dagana 1.-10. desember fá félagsmenn 20% afslátt af hátíðarvörum Krafts í vefverslun okkar. Vetrarlína Omnom, hátíðarservíettur og ilmkerti eru fullkomin í jólapakkann. Afsláttarkóðinn er Jólin2022.

Aðventukvöld Krafts 2022

Fimmtudaginn 8. desember verður aðventukvöld Krafts haldið á nýjan leik í húsakynnum Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. Allir félagsmenn Krafts, fjölskyldumeðlimir þeirra og vinir eru hjartanlega velkomnir og er aðgangur án endurgjalds eins og áður.

Glæsileg dagskrá þar sem Guðrún Árný mun taka jólalög, jólasveinar verða á kreiki og bókaupplestur. Jólahappdrættið okkar verður á sínum stað með glæsilegum vinningum fyrir bæði börn og fullorðna. Hlaðborð með allskyns jólaveitingum og jólakonfektið okkar verður auðvitað til sölu á staðnum sem og varningur til stuðnings félaginu sem er tilvalinn í jólapakkann.

Skráning er nauðsynleg en þú getur skannað QR kóðann til að fá frekari upplýsingar og skrá þig.

Skannaðu QR-kóðann til að skrá þig

Kæri félagi

Við óskum þér gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Við vonum að þú hafir það huggulegt og njótir hátíðanna með fjölskyldu og vinum.

Við fögnum því að nú í ár máttum við loksins fara að hittast á ný undir nokkuð eðlilegum kringumstæðum og njóta samvista saman þó við förum auðvitað varlega og erum sum enn í okkar jólakúlum. Á árinu nutum við þess að eiga góðar stundir og skapa minningar.

Við héldum Kraftmikla strákastund og kvennastund, skelltum í vitundarvakningu og ýmsa perluviðburði, reimuðum á okkur skóna og örkuðum yfir Fimmvörðuháls og slökuðum á og lærðum nýja hluti á endurhæfingarhelgum. Að sjálfsögðu vorum við líka með hittinga hjá stuðningshópunum okkar og ýmsa viðburði til að skapa minningar saman eins og Sumargrill, göngur, FítonsKrafts námskeið og keilukvöld. Svo má ekki gleyma Lífið er núna Festivalinu sem við héldum með pompi og prakt í september.

Ýmsar breytingar voru líka hjá okkur, við settum upp nýja vefsíðu, fengum stærra húsnæði til að geta tekið betur á móti félagsmönnum og nýir og öflugir starfskraftar bættust við á skrifstofuna og í stjórn. Við hlökkum öll mikið til að eiga kraftmikið 2023 með ykkur. Njóttu hátíðanna í faðmi fjölskyldu og vina, hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári! stjórn og starfsfólk Krafts

Á DÖFINNI NÆSTA ÁR

Við vekjum athygli á að næsta ár verður viðburðaríkt að vanda. Tékkaðu á dagskránni í hverjum mánuði á vef Krafts þar sérðu hvað er að gerast en auðvitað dettur okkur oft í hug að skella í skemmtilega viðburði með stuttum fyrirvara.

Skannaðu QR-kóðann til að sjá komandi viðburði

JANÚAR/FEBRÚAR

Vitundarvakning og fjáröflun þar sem fallegur varningur verður til sölu og við vekjum athygli á málefnum ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.

MARS

Í Mottumars höldum við Kröftuga strákastund þar sem strákar hittast og deila reynslu sinni.

Í lok mars eða byrjun apríl verðum við líka með árlega PáskabingóIð okkar.

APRÍL/MAÍ

Úthlutun úr Neyðarsjóði, Aðalfundur félagsins og Lífið er núna endurhæfingarhelgi.

JÚNÍ

Sumargrill Krafts haldið hátíðlega. JÚLÍ Árvekniátakið Krabbamein fer ekki í frí og viðburðir tengdir því.

ÁGÚST

Reykjavíkurmaraþonið og Hlaupastyrkur sem er ein af stóru fjáröflunum félagsins.

SEPTEMBER

Móttaka í umsóknir í Neyðarsjóð Krafts - Haustúthlutun er þann 1. október.

OKTÓBER/NÓVEMBER

Í Bleikum október höldum við Kröftuga kvennastund þar sem konur koma saman og deila reynslu sinni. Í lok október eða byrjun nóvember erum við líka með Lífið er núna endurhæfingarhelgina okkar.

DESEMBER

Aðventukvöld Krafts.

VISSIR ÞÚ AÐ...

Félagskort Krafts veitir afslætti hjá ýmsum samstarfsaðilum félagsins og nýtist sem auðkenning fyrir þau sem eru með Lyfjakort Krafts.

Kraftur heldur reglulega fræðslufyrirlestra um ýmis viðfangsefni sem snúa að krabbameini og á vefsíðu félagsins er líka fræðsluvefur.

Stuðningsnetið er jafningjastuðningur fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur.

Í hlaðvarpi Krafts, Fokk ég er með krabbamein, er farið yfir ýmis málefni sem viðkemur krabbameini á mannamáli frá sjónarhorni þeirra sem greinst hafa með krabbamein, aðstandenda og annarra.

Stuðningshópar Krafts eru vettvangur fyrir einstaklinga sem hafa sameiginlega reynslu að koma saman, njóta samvista og deila reynslu. Hóparnir eru: StelpuKraftur, StrákaKraftur, NorðanKraftur og AðstandendaKraftur.

FítonsKraftur er vettvangur fyrir félagsmenn okkar til að stunda hreyfingu og útivist og stuðlar þannig að bættri vellíðan. FítonsKraftur starfar í formi námskeiða, viðburða, fjarþjálfunar og útivistar.

Hjá Krafti getur þú sótt um fjárhagslegan stuðning. Félagið heldur úti: Neyðarsjóði, styrk til lyfjakaupa og styrk til útfarar.

Kraftur gefur öllum þeim sem greinast með krabbamein á aldrinum 18-40 ára gjafapoka sem er eins konar startpakki inn í þennan nýja raunveruleika sem blasir við.

Kraftur býður upp á stuðning og ráðgjöf fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur. Meðal þess er: Stuðningsviðtal, sálfræðiþjónusta, félagsráðgjöf, hagsmunamál og markþjálfun.

Allar nánari upplýsingar eru á vefsíðu Krafts www.kraftur.org

Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.