
1 minute read
Guðmundur Ágúst
from Ársrit GKG 2022


Advertisement




Myndir frá móttökunni tók Grímur Kolbeinsson.
Guðmundur Ágúst á DP World Tour!
Guðmundur Ágúst Kristjánsson afrekaði nýverið að tryggja sér keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, DP World Tour, sem er efsta stig atvinnumennsku í Evrópu. Hann er aðeins annar karlkylfingurinn frá Íslandi sem nær þeim árangri – en Birgir Leifur Hafþórsson braut ísinn árið 2006 og 2007.
Guðmundur Ágúst er uppalinn GR-ingur en hefur verið meðlimur í GKG s.l. tvö ár en þjálfari hans síðan 2016 er Arnar Már Ólafsson, afreksþjálfari GKG. Ágúst leikur á næstu tveimur vikum í Suður-Afríku og svo þriðju vikuna á eyjunni Máritíus á Indlandshafi og lýkur þessari törn um miðjan desember.
Nýlega var haldin móttaka í Íþróttamiðstöð GKG fyrir Guðmund. Þar komu saman fjölskylda og vinir Guðmundar, ásamt hópi fólks úr röðum golfklúbba sem tengjast ferli Guðmundar, GSÍ og Forskots afrekssjóðs.
Við óskum Guðmundi Ágústi innilega til hamingju með þetta stóra afrek og óskum honum alls hins besta í keppni þeirra allra bestu!