
2 minute read
Kvennanefnd
from Ársrit GKG 2022
Skýrsla kvennanefndar GKG fyrir árið 2022
Núverandi stjórn tók til starfa á aðalfundi kvennanefndar sem var ekki haldinn fyrr en 24. mars þar sem Covid var enn og aftur að hamla starfinu okkar. Þó nokkrar mættu og fengu sér súpu á meðan farið var yfir árið og sumarstarfið kynnt. Núverandi stjórn skipa Berglind S. Jónasdóttir formaður, Svala Vignisdóttir varaformaður, Valgerður Friðriksdóttir gjaldkeri, Helga Gunnarsdóttir ritari sem kom ný inn í stjórn. Meðstjórnendur eru: Kristín Stefánsdóttir ásamt Hjördísi Jónsdóttur, Elínu Maríu Sigurðardóttur og Sigríði Ólafsdóttur sem komu nýjar inn í stjórn. Fjórar konur létu af stjórnarstörfum, Ásta Kristín Valgarðsdóttir, Sólveig Smith, Kristín Kristmundsdóttir og Arndís Berndsen, þökkum við þeim fyrir vel unnin störf á undanförnum árum.
Advertisement
Hlutverk Kvennanefndar
• Stuðla að samvinnu og samstöðu kvenna í GKG og efla félagsandann meðal þeirra • Skipuleggja æfingar, mót og aðra viðburði fyrir konur í samráði við þjónustustjóra. • Hlúa sérstaklega vel að og bjóða velkomna nýja félaga. • Að reynslumeiri konur leiki reglulega með reynsluminni konum. • Að eiga samstarf við aðra golfklúbba.
Markmið kvennanefndar
• Að hlutfall kvenna í klúbbnum sé hærra en í nokkrum öðrum golfklúbbi á landinu.
Starf nefndarinnar er sjálfboðaliðastarf en að sama skapi mjög gefandi og skemmtilegt, sérstaklega þegar viðtökur hafa verið jafngóðar og þær hafa verið hjá GKG konum. Nefndin hélt áfram samvinnu við styrktaraðilana okkar sem hafa stutt vel við starfið síðustu árin. Taramar sem er íslenskt sprotafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á húðvörum sem draga úr sjáanlegum áhrifum öldrunar. Ásamt Víntríó sem selur Freixenet freyðivín. Við þökkum þessum fyrirtækjum sem og öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem styrktu okkur um vinninga þetta árið. Einnig voru GKG konur duglegar að safna vinningum og þökkum við þeim kærlega fyrir. Án þessa stuðnings gætum við ekki haldið úti öllum þessum viðburðum með svona mörgum og flottum vinningum. Í vetur vorum við með golfhermanámskeið í samvinnu við Hlöðver Guðnason PGA kennara. Einnig vorum við með 5 hermamót sem voru mjög vel sótt. Í sumar tókum við uppá þeirri nýjung að sleppa að prenta út skorkort og notast eingöngu við rafræn skorkort og tóku konurnar þessari nýjung vel en þetta flýtir mikið fyrir úrslitum og við sleppum óþarfa pappír. Við byrjuðum sumarið með Stellu opnunarmótinu á Mýrinni þar sem rúmlega 90 konur voru skráðar. Við vorum með mót einu sinni í mánuði á Mýrinni sem voru vel sótt og fengu konurnar flottar teiggjafir fyrir öll mót. Einnig erum við með fasta tíma á þriðjudögum á Mýrinni þar sem GKG konur spila saman og margar fóru svo inn í skála og fengu sér að borða saman á Mulligan.
Árlega vorferðin okkar var á Kiðjabergi þar sem við spiluðum með heimakonum og eftir mót var verðlaunaafhending og súpa. Vinkvennamótin voru á sínum stað en við spiluðum við GM í júní á Hlíðarvelli og síðan á Leirdalnum. og síðan spiluðum við í Grafarholtinu og á Leirdalnum við GR í ágúst. Vissuferðin var svo farin til Grindavíkur í ágúst.
Í september héldum við svo glæsilegt lokamót þar sem haldið var lokahóf um kvöldið. Allar sem tóku þátt í mótinu fengu verðlaun. Flottar GKG konur voru með tískusýningu frá versluninni Hjá Hrafnhildi. Jana og Tommi skelltu í glæsilega þriggja rétta máltíð fyrir konurnar. Svo var dansað fram eftir við skemmtilega tónlist sem Bjössi trúbador sá um.
Ég vil þakka öllum GKG konum og styrktaraðilum fyrir frábært ár því án ykkar væri ekki hægt að halda úti svona flottu kvennastarfi.
Áfram GKG, Berglind Stefanía Jónasdóttir
