1 minute read

Öldungar 65

Next Article
Vallarnefnd

Vallarnefnd

Heldri kylfingar GKG 65+ Skýrsla stjórnar fyrir árið 2022

Öldunganefnd skipa, Kristján Snædal, Atli Ágústsson, Randver Ármannsson, Gunnar Árnason, Einar B. Tómasson, Elísabet Þórdís Harðardóttir og Soffía Ákadóttir.

Advertisement

Golfhermamót 2022

Vetrarmót í golfhermun GKG, var mjög vinsælt sl. vetur, frá janúar út apríl og einnig tvö fyrstu hermamótin í október og nóvember. 10 hermar eru skráðir á 65+ í hvert sinn og voru þeir nær fullnýttir í öll skiptin að október undanskyldum en þá mættu 22 heldri kylfingar.

Sumardagskráin 2022

18. maí Leirdalur 18 holur, Sigurvegari Halldóra Hallgrímsdóttir, annað sæti Guðbjörg María Jóelsdóttir og þriðja sæti Bogi Ísak Nílsson og Ragna Stefanía Pétursdóttir. 22. júní Grindavík 18 holur, sigurvegari Hallgrímur Hallgrímsson, annað og þriðja sæti Ólafur B. Björnsson og Gunnar Árnason 17. ágúst Leirdalur 18 holur, sigurvegari Snorri Ólafur Hafsteinsson og Sólveig Jóhannesdóttir og þriðja sætið Kristján Jónasson. 14. september lokamót á Mýrinni 9 holur texas scramble. Sigurvegarar Hallgrímur Hallgrímsson og Sigurður Ármannsson, annað sæti Atli Ágústsson og Sigurjón Gunnarsson, þriðja sæti Hjörvar O. Jensson og Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir. Lokahóf 65+ fór fram kl. 18.00 hjá Mulligan veitingum þar sem afhending verðlauna fyrir 3 efstu sætin samanlagt án forgjafar yfir sumarið. Sigurvegari Gunnar Árnason, annað sæti Bogi Ísak Nilsson og þriðja sætið Hallgrímur Smári Jónsson.

Vetrardagskrá 2022-2023

Verðum áfram með 10 herma, nú fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði. Í októbrer og nóvember byrjuðu mótin kl. 09.00 til 12.00, en mótin frá desember út apríl byrja kl 09.30 til 12.30. Mótin eru því næst 7. desember 2022, 4. janúar 2023, 1. febrúar 2023, 1. mars 2023 og 5. Apríl. 2023. Mót verða auglýst með viku fyrirvara. Þar sem færri mót voru haldin í sumar voru tekjur lægri en árin á undan eða brúttó 125.000 krónur, útlagður kostnaður 10.000 krónur og því afhendum við 65+ félagar kr. 115.000,00 til unglingastarfsins hjá GKG. Við viljum þakka framkvæmdastjóra GKG Agnari Jónssyni sérstaklega fyrir frábært samstarf, þar sem hann styrkti okkur með hluta verðlauna og einnig með feykilega gott tilboð á golfbílum á mótaröðinni. Einnig þökkum við öllu starsfólki GKG fyrir frábært samstarf svo og starfsfólki Mulligan fyrir frábæra þjónustu og veitingar.

Fyrir hönd nefndarinnar, Kristján Snædal

This article is from: