
9 minute read
Íþróttasvið
from Ársrit GKG 2022
Skýrsla íþróttasviðs GKG vegna 2022
Nefndir og starfsfólk íþróttasviðs
Advertisement
Íþróttanefnd skipa:
Sigmundur Einar Másson, formaður
Foreldraráð:
Margrét Björg Guðmundsdóttir Hrafnhildur Björnsdóttir Helena Gunnarsdóttir Lena Heimisdóttir
PGA kennarar, þjálfun og kennsla:
Arnar Már Ólafsson, afreksþjálfun Andrés Jón Davíðsson, barna/unglingaþjálfun Ástrós Arnarsdóttir, barna/unglingaþjálfun Stefanía Kr. Valgeirsdóttir, barna/ unglingaþjálfun, námskeið/einkakennsla Hlöðver Guðnason, námskeið/einkakennsla Guðjón Grétar Daníelsson, námskeið/ einkakennsla Ari Magnússon, námskeið/einkakennsla Magnús Birgisson, barna/unglingaþjálfun, námskeið/einkakennsla Úlfar Jónsson íþróttastjóri
Verkstjórar leikjanámskeiða:
Íris Lorange Káradóttir og Jón Þór Jóhannsson
Þjálfarar, auk aðstoðarleiðbeinenda á æfingum og leikjanámskeiðum á tímabilinu voru alls um 30 talsins.

Barna og unglingastarf GKG
Í GKG býðst börnum og unglingum að sækja æfingar hjá GKG í tæplega 11 mánuði undir handleiðslu PGA kennara. Tímabilið er tvískipt, annars vegar frá janúar til júní (vetraræfingar), og hinsvegar júní til desember (sumar/ haustæfingar). Nauðsynlegt er að gerast félagsmaður í GKG til að sækja þessar æfingar.
Sumaræfingar barna og unglinga

Súluritið sýnir fjölda á sumaræfingum 2019 – 2022
Iðkendur 18 ára og yngri eru hvergi fleiri en í GKG. Framkvæmdir Garðabæjar höfðu bein áhrif á það svæði sem við höfðum til æfinga fyrir þennan mikla fjölda og kom það óneitanlega niður á gæðum og fjölbreytni æfinga sem hægt var að bjóða upp á. Forgangsatriði er að leysa þau mál og er þegar hafin umfangsmikil vinna við það.
Vetraræfingar barna og unglinga

Súluritið sýnir fjölda á vetraræfingum 2019 - 2022
Góður stígandi er í iðkendafjölda sem æfir á veturna, enda eru ávallt fleiri að uppgötva golf sem heilsársíþrótt. Frábær æfingaaðstaða okkar í Kórnum og Íþróttamiðstöðinni stuðla einnig að auknum fjölda, svo miklum að farið er að skapast vandamál á ákveðnum tímum.
Golfleikjanámskeið GKG 6-12 ára Súlurititið sýnir fjölda iðkenda á golfleikjanámskeiðum 20192022.

Vegna áðurnefndra byggingaframkvæmda fóru leikjanámskeiðin fram á Hofstaðavelli í Garðabæ.
Útbúið var leikjasvæði með stuttum brautum, pútt- og vippflötum, auk stutts höggsvæðis þannig að hægt var að hafa skemmtileg og þroskandi námskeið þar sem krakkarnir lærðu grunnatriði golfíþróttarinnar. Hinsvegar, með því að hafa námskeiðin „út í bæ“ þá missum við af ákveðnu tækifæri að tengja iðkendur og aðstandendur við GKG og allt sem klúbburinn hefur upp á að bjóða. Einnig var ókostur var að hafa ekki okkar frábæru innanhússaðstöðu í að venda þegar veðrið var óhagstætt.
Heildarfjöldi barna- og unglinga 18 ára og yngri
Heildarfjöldi iðkenda er vaxandi ár frá ári og GKG er með lang fjölmennasta barna- og unglingastarf á heimsvísu. Eins og sés á stöplaritinu þá hefur fjöldinn rúmlega þrefaldast frá árinu 2004! Ef við horfum á seinustu þrjú ár þá virðist skjóta í skekkju að þó fækki á sumaræfingum fjölgi iðkendum í heildina. Erfitt er að segja nákvæmlega hver skýringin sé þar, en geta má líkum að því að fækkun á sumaræfingum sé vegna bágrar æfingaaðstöðu utandyra. Það má með sanni segja að æfingaaðstaða klúbbsins sé komin að þolmörkum þar sem ekki er hægt að skipta iðkendum í frekari hópa þar sem svæðið er ekki til. Það er ákveðinn þröskuldur þar sem fjöldi á æfingum hefur áhrif á gæði æfinganna með tilliti til þess rýmis sem við höfum til æfinganna og fjölda þjálfara til að sinna iðkendum í þessari tæknilegu íþrótt sem golfið er.
Engu að síður þá er fjölgun í heildina, þ.e. fleiri eru að halda aðildinni í klúbbnum og spila þó þau sjá ekki endilega hag í því að mæta lengur á æfingar. Það er vissulega jákvætt að sjá að áhugi iðkenda hefur verið fóstraður í gegnum barna- og unglingastarf GKG og að leika golf sé mikilvægt áhugamál sífellt fleiri ungmenna.
Keppnir barna- og unglinga
Við leggjum áherslu á að krakkarnir geti nálgast íþróttina á eigin forsendum og bjóðum því mismunandi keppnisleiðir við hæfi ólíkum getustigum. Undanfarin 16 ár vorum við með tvær innanfélagsmótaraðir, Floridana mótaröð byrjenda á Mýrinni og Egils Kristals unglingamótaröðina fyrir vanari börn og unglinga á Leirdalsvelli.
Keppendur og foreldrar í Floridana mótaröðinni
Næsta skref í keppnisþátttöku er Áskorendamótaröð GSÍ og loks Unglingamótaröð GSÍ, sem eru 36-54 holu mót leikin á tveimur til þremur dögum, ætluð forgjafarlægri börnum og unglingum. Okkar markmið er að eiga breiðan hóp kylfinga í öllum mótaröðum GSÍ, og ná þar góðum árangri. Líkt og undanfarin ár vorum við með langflesta keppendur í hverju móti á Unglingamótaröð GSÍ, eins og sést á meðfylgjandi súluriti.


Meðalfjöldi keppenda í Unglingamótaröð GSÍ 2022

HEKKKLIPPUR

Beinn og skilvirkur sláttur. Flugbeitt skæri. Auðvelt í notkun og meðfærilegt.

SLÁTTUORF

Betri afköst og ending. Þetta sláttuorf er framleitt til þess að takast á við krefjandi verkefni.

SNJÓBLÁSARI
Öflugur snjóblásari með stillanlegum kastara. Fer leikandi í gegn um mikinn og þungan snjó og kastar allt að 12 metra. Samanbrjótanlegur og fyrirferðalítill í geymslunni eða bílskúrnum.
LAUFBLÁSARI
Kraftinum er auðveldlega stjórnað með einum fingri. Hraðabreytingar, Turbo kraftur og sjálfvirk hraðastýring
RAFHLAÐAN
Hleðslurafhlaða fyrir öll verk. Þrjár mismunandi stærðir í boði 2.5Ah – 6.0Ah - 7.5Ah Öll 60 volt
GARÐSLÁTTUVÉL
Fer alltaf í gang! Ekkert vesen. Þægileg í notkun og umgengni. Samanbrjótanleg og fyrirferðalítil í geymslunni eða bílskúrnum.


Árangur afreksfólks GKG
Okkar fremstu kylfingar sýndu oft frábæran árangur á tímabilinu og ef miðað er við fjölda Íslandsmeistaratitla þá var árangurinn með besta móti, en alls komu 10 titlar í hús.
Stórtíðindi þessa árs eru þó án efa afrek Guðmundar Ágústs Kristjánssonar sem náði keppnisrétti á DP World Tour mótaröðina, sem er efsta stig atvinnumennsku í Evrópu. Hann lék glæsilegt golf á lokastigi úrtökumótsins og hafnaði í 19. sæti en aðeins 25 efstu fá þátttökurétt.
Guðmundur Ágúst er aðeins annar íslenski karlkylfingurinn sem nær þessum árangri – en Birgir Leifur Hafþórsson, náði tvívegis að komast í gegnum lokaúrtökumótið á DP World Tour. Fyrst árið 2006 og aftur ári síðar. Þetta þýðir að Guðmundur mun leika meðal þeirra allra bestu á næsta tímabili. Aðrir atvinnumenn í GKG eru Aron Snær Júlíusson en hann lék á 17 mótum í Nordic Golf League mótaröðinni og náði þar best 4. sæti í Finnlandi. Bjarki Pétursson hafnaði í 191. sæti á Challenge Tour peningalistanum þar sem hann tók þátt í 7 mótum. Þar náði hann best 24. sæti á þeirri mótaröð í Austurríki. Hann náði frábærum árangri á 2. stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour og flaug inn á lokastigið. Þar háðu meiðsl honum því miður og hann náði ekki sýna sitt rétta andlit.
Klúbbmeistarar GKG
Anna Júlía Ólafsdóttir og Aron Snær Júlíusson
Íslandsmeistaratitlar
Íslandsmót kvenna í holukeppni – Saga Traustadóttir Íslandsmeistari 14 ára og yngri í höggleik – Arnar Daði Svavarsson Íslandsmeistari 14 ára og yngri í holukeppni – Gunnar Þór Heimisson Íslandsmeistari 15-16 ára í holukeppni – Guðjón Frans Halldórsson Íslandsmeistari 17-18 ára í höggleik – Gunnlaugur Árni Sveinsson Íslandsmeistari 17-18 ára í holukeppni – Gunnlaugur Árni Sveinsson Íslandsmeistari í höggleik 65 ára og eldri kvenna – Elísabet Böðvarsdóttir
Íslandsmeistaratitlar í liðakeppni
Íslandsmót golfklúbba 1. deild karla Íslandsmót golfklúbba 14 ára og yngri strákar Íslandsmót golfklúbba 14 ára og yngri stelpur
Stigameistarar
Gunnlaugur Árni Sveinsson – 17-18 ára pilta Arnar Daði Svavarsson – 14 ára og yngri drengja
Landsliðssæti
EM karlalandslið – Kristófer Orri Þórðarson og Hlynur Bergsson EM kvennalandslið – Hulda Clara Gestsdóttir og Saga Traustadóttir HM karla Eisenhower Trophy – Hlynur Bergsson HM kvenna Espirito Santo Trophy – Hulda Clara Gestsdóttir EM piltalandslið - Gunnlaugur Árni Sveinsson og Guðjón Frans Halldórsson EM stúlknalandslið – Karen Lind Stefánsdóttir


Öldungalandslið
EM landslið kvenna 50 ára og eldri – María Guðnadóttir EM landslið kvenna 50 ára og eldri – Ragnheiður Sigurðardóttir EM landslið karla 50 ára og eldri – Jón Gunnar Traustason
Sigrar á GSÍ mótaröð þeirra bestu
Stigamótaröðin - Sigurður Arnar Garðarsson, B59 mótið
Sigrar á GSÍ unglingamótaröðinni
Gunnlaugur Árni Sveinsson sigraði á fjórum af fimm mótum í flokki 17-18 ára þ.á.m. Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni. Arnar Daði Svavarsson sigraði á þremur mótum af fimm í flokki U14 þ.á.m. Íslandsmeistari í höggleik. Eva Fanney Matthíasdóttir sigraði á einu stigamóti. Snorri Hjaltason sigraði á einu stigamóti. Gunnar Þór Heimisson varð Íslandsmeistari í holukeppni.
Alþjóðleg mót
Champion of Champions á Írlandi Sigurvegari í flokki 19 ára og yngri, Gunnlaugur Árni Sveinsson Sigurvegari í flokki 15 ára og yngri, Arnar Daði Svavarsson
Viðurkenningar
Mestu framfarir:
Elísabet Ólafsdóttir og Gunnar Þór Heimisson
Efnilegust:
Eva Fanney Matthíasdóttir og Guðjón Frans Halldórsson
Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur (kylfingar ársins):
Karen Lind Stefánsdóttir, Arnar Daði Svavarsson og Gunnlaugur Árni Sveinsson
Háttvísibikarinn
Bikarinn er veittur þeim unga kylfingi sem þykir hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar árangur og framfarir, ástundun, metnað til að ná langt, félagsanda og ekki síst fyrirmynd annara félagsmanna, yngri sem eldri hvað varðar háttvísi innan vallar sem utan. Viðurkenninguna í ár hlýtur Katrín Hörn Daníelsdóttir

Landsliðshópur 2023
Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri GSÍ valdi nýlega 43 kylfinga í landsliðshóp 2023. Eftirfarandi kylfingar úr GKG eiga sæti í hópnum, alls 10 kylfingar: Arnar Daði Svavarsson, Guðjón Frans Halldórsson, Gunnar Þór Heimisson, Gunnlaugur Árni Sveinsson, Hlynur Bergsson, Hulda Clara Gestsdóttir, Karen Lind Stefánsdóttir, Kristófer Orri Þórðarsson, Saga Traustadóttir, Snorri Hjaltason.
Lokaorð
Eftir rúm 16 ár sem íþróttastjóri þá tekur Ástrós Arnarsdóttir við keflinu. Sjálfur mun ég sinna ýmsum öðrum störfum innan GKG, enda af nógu af taka í svo stóru og öflugu félagi. Þegar ég lít til baka þá er maður óneitanlega stoltur af því hvar GKG er í dag og að hafa tekið þátt í þeirri vegferð sem klúbburinn er á. Barna-, unglinga- og afreksstarf hefur ávallt verið mikilvægur hluti af stefnu GKG og þar höfum við náð frábærum árangri og framleitt aragrúa af framtíðarkylfingum. Það er einungis lítil prósenta sem nær alla leið í meistaraflokk, hvað þá í landslið og atvinnumennsku, slíkt er bónus. Hinsvegar, að kynna íþróttina fyrir sem flestum þá stuðlum við að forvörnum, heilbrigðum vexti í iðkendafjölda til framtíðar, sem og aukum fjölda þeirra sem munu leggja hönd á plóg sem sjálfboðaliðar, nefndar og stjórnarfólk í framtíðinni. Það er ekki lítils virði.
Ég hlakka til næstu ára með frábæru samstarfsfólki og félagsmönnum og vil þakka sérstaklega Guðmundi sem nú lætur af formennsku fyrir einstaklega gott samstarf á liðnum árum.
Áfram GKG!
f.h. Íþróttasviðs,
Úlfar Jónsson Íþróttastjóri Sigmundur Einar Másson Formaður íþróttanefndar