
6 minute read
Vallarstjóri
from Ársrit GKG 2022
Skýrsla Vallarstjóra 2022
Vellirnir okkar komu ljómandi vel undan þungum og frekar leiðinlegum vetri. Opnað var inn á sumarflatir 5. maí og lokað endanlega þann 4 nóvember. Þetta gerir golftímabil upp á 183 daga á vellinum sem er 5 dögum lengra en árið áður. Heilt á litið var þetta bara nokkuð gott tímabil hjá okkur á vellinum. Vorið fór mikið í að ganga frá framkvæmdum frá því um haustið og svo tók við hefðbundið viðhald vallarins og smærri lagfæringar. Í minningunni var veðrið í sumar frekar grátt með lágu hitastigi en það stoppaði ekki félagsmenn spila mikið í sumar. Álagið á völlunum okkar hefur því verið töluvert sem er gott.
Advertisement
Framkvæmdir
Enn heldur GKG áfram af fullum þunga að framkvæma og gera vellina betri. Mikil vinna og peningar eru að baki þessara framkvæmda og ennþá meiri metnaður að gera völlinn sem allra bestan fyrir okkar félagsmenn. Hér er listi yfir þær framkvæmdir sem við flokkum sem stærri framkvæmdir á árinu: • Klára sléttun á 3. Brautinni með tveimur nýjum glompum • Breyta umhverfi 10 flatar vinstra megin með nýjum stíg frá 10. Flöt að 11. teig • Endurgera teig á 11. braut með nýrri grjóthleðslu • Nýr fremsti teigur á 5 á Mýrinni • Laga vatnstengingar þegar „ásinn“ var lagður • Nýjar heimasmíðaðar flokkunarstöðvar fyrir sorp • Mikil vinna lögð í B-svæði • Sáning í B-svæði • Endurgera tvær glompur við nýju 18 flötina • Setja upp aðstöðu fyrir leikjanámskeið á Hofstaðavelli • Opnuðum nýju púttflötina 13 mánuðum eftir sáningu • Opnuðum 18 flötina rétt rúmum 13 mánuðum eftir sáningu • Endurgerð glompa við 7 flöt á Leirdalsvelli • Hluti af holtinu á 16 braut lagað og tyrft • Lokað stórum hluta af skurði við 18 brautina • Heil mikill snjómokstur Eins og sjá má var ýmislegt gert á árinu. Líklega má segja að framkvæmdir á 10 og 11, holtið á 16 hafi verið hvað stærstar á árinu og heppnuðust þær mjög vel og hefur verið mikil ánægja með þær framkvæmdir. Vert er að nefna flokkunarstöðvarnar sem Andrés Guðmundsson vallarstarfsmaður smíðaði eftir skrýtnum hugmyndum Vallarstjóra og eru þær allar smíðaðar innanhús hjá okkur á vellinum líkt og teigmerkin og fræboxin voru gerð árið áður. Flokkunarstöðvarnar voru að virka bara nokkuð vel í sumar en þó gætu allnokkrir vandað sig betur í því í hvaða hólf þeir setja sorpið sitt úti á velli og við íþróttamiðstöðina. Við höfum trú á því að félagsmenn okkar hafi umhverfisvitund og vilji taka þátt í svona umhverfis verkefni með okkur. Áfram var unnið í svonefndu B svæði en það liggur suður af bílastæðinu við íþróttamiðstöðina. Þar eru í smíðum holur 2 og 9 sem verða hluti að nýjum velli í framtíðinni. Allt það svæði er nú í hönnun og deiliskipulags vinnu og vonandi verður hægt að kynna það á vormánuðum. Stærsta framkvæmdin framundan er nýtt áhaldahús en lóð undir það er í deiliskipulagi og þarfagreining hefur verið unnin af því húsi sem byggja skal. Allir sem hafa eitthvað kynnt sér þá starfsemi sem fram fer hjá okkur á vellinum, þekkja til vélakosts okkar og aðstöðu starfsmanna, vita að núverandi aðstaða er löngu sprungin. Starfsemin fer fram í einu húsi sem er 194 fermetrar og ellefu gámum sem ýmist hýsa menn eða vélar. Það má segja að aðstaðan í dag sé alls ekki góð hvorki fyrir vallarstarfsmenn né vélar sem liggja undir skemmdum í saggandi gámum. Í október 2023 á að vera kominn vegur, klesstur utan í framanvert núverandi áhaldahús, um þremur metrum hærri en gólfplatan í húsinu og búið er að selja lóðir suður af áhaldahúsinu sem ná inn á planið hjá okkur. Þetta segir okkur bara það að það þarf að vinna hratt að nýju húsi.
Vélakostur
Við höfum verið nokkuð duglegir við að endurnýja tækjaflotann undanfarin ár en það er algjörlega nauðsynlegt til að fylgja þeirri þróun sem er í viðhaldi golfvalla. Í ár voru keypt eftirfarandi tæki: • 4 golfbílar fyrir útleiguna • Sáningarvél fyrir flatir • Þrír vinnubílar fyrir völlinn • Grafa


Þá vorum við með í pöntun nýja glompuvél sem ekki enn hefur náðst að afhenda til okkar vegna þess hversu hægt gengur hjá framleiðanda að koma frá sér tækjum en þessi vél færist þá inn á nýtt ár sökum þess.
Starfsmannamál
Í byrjun júní ákvað verkstæðisformaðurinn okkar hann Hafsteinn Eyvindsson að söðla um á heimaslóðunum á Selfossi og hætti hjá okkur í framhaldinu. Við þökkum Hafseini fyrir frábær störf og frábært samstarf öll þessi ár sem hann var hjá okkur. Við vorum heppnir að geta tekið strax inn ungan og efnilegan sem við þekkjum vel en hann heitir Óskar Örn Davíðsson og er hann okkar nýji verkstæðisformaður. Að auki eru í fullu starfi Guðmundur Árni Gunnarsson Vallarstjóri GKG, Guðni Þorsteinn Guðjónsson Aðstoðar vallarstjóri og Andrés I. Guðmundsson Yfir þúsundþjalasmiður. Í heildina unnu 23 starfsmenn á vellinum í sumar og ber að þakka þeim fyrir góð störf fyrir GKG í sumar.
Lokaorð
Þetta var bara nokkuð gott ár í heild sinni en ekki endilega hægt að þakka veðrinu fyrir það. Veturinn var frekar harður, mikill snjór og leiðinleg veður sér í lagi seinni part vetrar. Það voru nánast tveir starfsmenn sem unnu fulla vinnu við að moka snjó í kringum íþróttamiðstöðina til að hægt væri að halda starfsemi þar í fullu fjöri. Menn voru ræstir út um helgar þegar færð fór að þyngjast en við redduðum þessu alltaf. Svo fór að vora og snjó fór að leysa með tilheyrandi vatni sem kom einhverjum á óvart en ekki okkur sem höfum búið við þetta í mörg ár, ekkert nýtt þar. Vorið kom frekar hratt inn og við vorum undirmannaðir þar sem ekki hafði gengið vel að finna mannskap sem gat byrjað í fyrra fallinu hjá okkur. Þetta gerði það að verkum að við vorum á eftir á með margar framkvæmdir og einnig hefðbundin vorverk á vellinum. Sumir brugðust við með því að bjóða fram aðstoð sína og kom meðal annars góður hópur manna úr golfhópnum Total og mokuðu til sand í glompum hjá okkur og viljum við þakka fyrir kærkomna aðstoð. Allt náðist þó að klára fyrir rest en stefnan er sett á að vera fyrr á ferðinni í mannaráðningum í vor. Það má segja að september hafi verið besti mánuður ársins veðurfarslega. Þá hefur haustið verið með ljómandi stillum þó svo það sé ekki hátt hitastig en veðrið skiptir alltaf miklu máli í viðhaldi golfvalla. Við erum búnir að vera á fullu í haust í ýmsum framkvæmdum sem vonandi koma skemmtilega á óvart í vor þegar við opnum vellina næsta vor. Ég vill þakka framkvæmdarstjóra, stjórn, vallarnefnd og trjáræktarnefnd fyrir samstarfið á árinu. En sérstakleg langar mig að þakka nafna mínum honum Guðmundi Oddsyni fyrir frábært samstarf í mörg ár, fyrst sem formaður vallarnefndar og síðar sem formaður GKG.
Guðmundur Árni Gunnarsson Vallarstjóri.
Skýrsla trjáræktarnefndar
Á árinu 2022 var trjáræktarnefnd GKG endurvakin sem undirnefnd vallarnefndar. Nefndinni veitir formennsku Einar Þorsteinsson en auk hans sitja Jón Ingvar Jónasson og Jens Sigurðsson í nefndinni. Helstu verkefni ársins fólust í kortlagningu á mögulegri trjárækt innan golfvallarsvæðis GKG. Einu slíku verkefni var ýtt úr vör en á haustdögum stóð nefndin fyrir plöntun á tæplega 2.000 plöntum á svokölluðu B svæði. Fleiri sambærilegra verkefna má vænta á næstu misserum auk þess sem samspil trjáræktar og golfvallar mun setja svip sinn á uppbyggingu nýs golfvallar í Smalaholti.


