5 minute read

Mótanefnd

Next Article
Vallarstjóri

Vallarstjóri

Skýrsla mótanefndar 2022

Í GKG er starfrækt öflug mótanefnd sem kom að átta mótum hjá klúbbnum í sumar, þar sem þátttakendur í mótunum voru alls 1403 og spilaðir voru 18 dagar í þessum 8 mótum. Í nefndinni eru um 25 sjálfboðaliðar ásamt dómurum og starfsfólki klúbbsins. Nefndin mannar þær stöður sem þarf við hvert mót eins og t.d. móttöku skorkorta, eftirlit á völlum, ræsa og veitingatjald. Eftir tvö heimsfaraldursár gátum við haldið úti eðlilegu mótahaldi og vantaði ekkert upp á áhugann hjá þátttakendum því slegið var hvert metið í fjölda keppenda.

Advertisement

Hlutverk mótanefndar:

• Fjallar um árlega áætlun um öll mót á golfvöllum klúbbsins sem þjónustustjóri leggur fram. Þetta gildir um innanklúbbsmót, opin mót á vegum klúbbsins, mót á vegum fyrirtækja og mót á vegum GSÍ. • Undirbýr og fylgist með framkvæmd móta í samvinnu við þjónustustjóra og annað starfsfólk klúbbsins.

Markmið mótanefndar:

• Klúbburinn sé ávallt í fremstu röð mótshaldara innan GSÍ. • Árlega séu haldin mót við allra hæfi á vegum klúbbsins. • Styrkja félagsandann í klúbbnum með öflugum innanfélagsmótum. • Mótshald fyrir fyrirtæki efli rekstur klúbbsins. Framkvæmdastjóri starfar með mótanefnd og formaður mótanefndar er Ásta Kristín Valgarðsdóttir. Sumarið byrjaði á Bola Opnunarmóti GKG, sem haldið var með pompi og prakt í ágætis vorveðri 15. maí og voru 100 keppendur sem tóku þátt. Það er alltaf mikil tilhlökkun að taka þátt í fyrsta móti sumarsins til að sjá hvernig völlurinn kemur undan vetri og til að hitta aðra félagsmenn sem er nú stór partur af okkar margrómuðu GKG stemmningu. Keppt var bæði í karla og kvennaflokki og veitt voru glæsileg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni og efsta sætið í höggleik í hvorum flokki. Einnig voru nándarverðlaun á öllum par 3 brautum og auk þess voru „Iss ég para bara næstu“ verðlaunin á sínum stað. Höggleikur án forgjafar sigruðu Sigurður Arnar Garðarsson í karlaflokki á 66 höggum og Hanna Bára Guðjónsdóttir í kvennaflokki á 90 höggum.

Karlar Nafn Punktar 1. sæti Davíð Már Jóhannesson 47 2. sæti Stefán Jökull Bragason 45 3. sæti Óliver Adam Kristjánsson 45 Konur 1. sæti Ingibjörg Hinriksdóttir 46 2. sæti Elín Jóhannesdóttir 42 3. sæti Erna Björg Sigurðardóttir 38

Stuðlum að sjálfbæru samfélagi

Sérfræðingar okkar búa að áratugalangri reynslu á sviði skipulags- og umhverfi smála, húsbygginga, orkuöfl unar og iðnaðar.

Mannvit veitir verkfræðiráðgjöf og tækniþjónustu á öllum verkstigum með sjálfbærni að leiðarljósi.

Icewear Hjóna og parakeppnin var haldin 4. júní í dásamlegu veðri og mikið var um gleði og prúðbúið fólk á vellinum líkt og undanfarin ár. Spilaður var betri bolti með forgjöf þar sem fleiri punktar liðsins telja á holu og veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin ásamt því eru nándarverðlaun á öllum par þrjú holum og eftir annað högg á 18. holu. Allir þátttakendur fengu teiggjöf frá Icewear og sérstök verðlaun voru veitt fyrir „samstæðasta best klædda parið“, sem í ár var veitt fyrir heilt holl sem voru: Þuríður Stefánsdóttir, Björgvin Gestsson, Drífa Hrönn Stefánsdóttir og Jóhannes Unnar Barkarson. 136 keppendur mættu til leiks og var hörkukeppni um fyrsta sætið þar sem þrjú efstu liðin enduðu jöfn með 46 punkta svo fara þurfti í reglu um punktafjölda á seinni 9 holunum.

1. Heiðrún Líndal og Jón Arnar sigruðu með 46/25 punkta 2. Eyjólfur Örn og Sigurrós með 46/23 punkta 3. Sólveig Unnur og Þórarinn Fannar með 46/22 punkta

Opna sumarsólstöðumót Stellu Artois var haldið 18. júní og þar voru 194 keppendur skráðir til móts í tveggja manna betri bolta þar sem betra skor í punktum telur á hverri holu. Þetta var opið mót og voru 79 gestir skráðir til leiks ásamt 115 heimamönnum. Vegleg verðlaun voru veitt í þessu móti og var til mikils að vinna þar sem í fyrsta sæti var golfferð í vinning með GB Ferðum. Einnig voru nándarverðlaun á öllum par þrjú brautum, lengsta drive á tveimur brautum og að lokum voru dregin út skorkortaverðlaun. 1. Rósa Jónsdóttir og Bjarni Richter, GKG með 50 punkta 2. Steinar Páll og Sölvi, GKG með 49 punkta 3. Veigar Örn og Eydís, GÁ með 49 punkta

Hápunkt sumarsins var Meistaramótið okkar sem var það 29. í röðinni. Alls voru skráðir 458 þátttakendur í 27 flokkum og leikið var á báðum völlum. Mótið er alltaf að stækka hjá okkur og fjölgaði aftur í meistaraflokkunum en enn voru 2. og 3. flokkur karla fjölmennastir en í kvennaflokki voru það 3. og 4. flokkur sem voru fjölmennastir og flokkur 50+ kom þar fast á eftir. Vikan byrjaði vel og lék veðrið við þátttakendur framan að móti en á fimmta degi í mótinu versnaði veðrið heldur betur og var lengi vel verið að hugsa um að fresta eða fella niður einn dag í mótinu líkt og aðrir klúbbar í kringum okkur þurftu að gera. En þar sem áhuginn var svo mikill að klára þetta var það gert með stæl og þvílíkar hetjur sem voru úti á velli og urðu að berjast við að halda sér og golfkerrunum á vellinum, kláruðu þetta með bros á vör, já eða svona flestir. Úrslit frá meistaramótinu koma hér á næstu síðum en til gamans má nefna það að ungi kylfingurinn Markús Freyr Arnarsson sem keppir í flokki 13-14 ára fór holu í höggi á öðrum hring á degi tvö á annarri holu á Mýrinni.

Opna Ecco minningarmótið var á sínum stað og voru 160 þátttakendur skráðir til leiks og mættu 70 gestir í mótið með 90 heimamönnum. Mótið er haldið til að minnast þeirra GKG-inga sem fallnir eru frá, ásamt því að styrkja afreksstarf klúbbsins. Kristófer Orri stóð til að mynda vaktina á 14. teig þar sem þátttakendur gátu keypt af honum teighögg og urðu margir

This article is from: