9 minute read

Skýrsla stjórnar

Next Article
Íþróttasvið

Íþróttasvið

Stjórnarstörf

Á síðasta aðalfundi, sem haldinn var 30. nóvember 2021, var stjórn GKG svona skipuð: Guðmundur Oddsson, formaður Ásta Kristín Valgarðsdóttir, varaformaður Ragnheiður Stephensen, ritari Sigurður Kristinn Egilsson, gjaldkeri Tinni Jóhannesson, meðstjórnandi Einar Gunnar Guðmundsson, meðstjórnandi Ingibjörg Þ. Ólafsdóttir, meðstjórnandi Sigmundur Einar Másson, meðstjórnandi Berglind Jónasdóttir, meðstjórnandi

Advertisement

Stjórnin hélt 9 bókaða fundi á starfsárinu og skipaði hún formann, gjaldkera og framkvæmdastjóra í samninganefnd við Garðabæ vegna breytinga sem verið er að gera á athafnasvæði GKG. Nefndin hefur haldið nokkra fundi og má segja að málin þokist áfram í góðum anda. Stjórnarmenn gegna formennsku í hinum ýmsu nefndum á vegum klúbbsins og þannig fylgjast þeir náið með allri starfsemi hans.

Starfsfólk

Það er gæfa okkar að hafa samhenta og trausta lykilstarfsmenn, sem hafa verið kjölfestan í rekstri klúbbsins undanfarin ár:

• Agnar Már Jónsson, framkvæmdastjóri frá 2012 • Guðmundur Árni Gunnarsson, vallarstjóri frá 2001 • Úlfar Jónsson, íþróttastjóri frá 2004, sem lætur nú af því starfi og verður þjónustustjóri klúbbsins • Guðrún Helgadóttir, skrifstofustjóri frá 2010 • Guðni Þorsteinn Guðjónsson, aðstoðarvallarstjóri frá 2018 • Óskar Örn Davíðsson, vélamaður frá 2022 • Aron Úlfarsson, verslunarstjóri frá 2022 • Andrés Guðmundsson, þúsundþjalasmiður frá 2016 • Arnar Már Ólafsson, afreksþjálfari frá 2019 • Ástrós Arnarsdóttir, þjálfari og íþróttastjóri frá 1. nóv. 2022 • Andrés Jón Davíðsson, þjálfari frá 1. jan. 2020 • Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, golfkennari og umsjónarmaður námskeiða frá 2022. Hjónin Tómas Marteinsson og Jana Geirsdóttir tóku við veitingarekstri á Mulligan, en Vignir Hlöðversson sem séð hafði um veitingareksturinn frá því síðla árs 2016 hætti störfum og eins létu feðgarnir Hafsteinn Eyvindsson vélamaður frá 2010 og Fannar Aron Hafsteinsson verslunarstjóri frá 2019 einnig af störfum. Þeim eru færðar kærar þakkir fyrir samstarfið. Á sumrin bætist verulega í starfsmannahópinn hjá okkur og lætur nærri að starfsmenn séu á milli 50 og 60 þegar best lætur.

Félagar í GKG

Árið 2022 eru 2304 skráðir í GKG, sem er fjölgun um 47 frá síðasta ári. Auk þess eru rúmlega 400 börn, sem voru á golfleikjanámskeiðum. Í ár eru 1401 fullborgandi félagar og að auki 184 á aldrinum 19 – 25 ára, sem borga nokkru lægra árgjald. Ellismellir eru nú 290 en voru 295 í fyrra. 12 ára og yngri eru nú 209 og 13 til 18 ára eru nú 220, sem er svipað og var á síðasta ári. Karlar eru 68 % , en konur eru 32%, sem er svipað hlutfall og var á síðasta ári, en þó hefur konum heldur fækkað. Það er markmið okkar að jafna kynjamun í klúbbnum á tímum jafnréttis með því að laða fleiri konur í klúbbinn. Við höfum oft talað um það að æskilegt sé að fullborgandi félagar séu um 1300 og nú höfum við náð þeirri tölu og gott betur, því má segja að klúbburinn sé fullur. Á hverju ári verða nokkrar breytingar á félagaskránni og nú í nokkur ár hafa um 15% félaga hætt á hverju ári, en sem betur fer hefur nánast sami fjöldi komið í staðinn.

Félagsstarfið

Með tilkomu nýju íþróttamiðstöðvarinnar hafa opnast ýmsir möguleikar fyrir félagsmenn til að efla félagsstarfið. Kvennanefndin hefur starfað af miklum dugnaði undir stjórn Berglindar Jónasdóttur. Konurnar hafa verið með ýmis mót og aðrar uppákomur, sem er mjög til fyrirmyndar og hefur dugnaður þeirra vakið athygli hjá öðrum klúbbum. Eins hefur starf heldri kylfinga verið mjög kröftugt undir stjórn Kristjáns Snædals. Þar voru haldin 4 opin mót, tvö á Leirdalnum og tvö á Mýrinni í sumar. Þá er búið að auglýsa vetrardagskrána og er þar gert ráð fyrir a.m.k 5 mótum í golfhermum í byrjun vetrarmánaða. Einnig má nefna að komin er nokkur festa í skipulagðar golfferðir á vegum GKG, undir fararstjórn þeirra Agnars og Úlfars, en reynt er að fara tvær ferðir á ári, bæði vor og haust. Nú í haust fóru 72 GKG félagar til Spánar og þá er búið að auglýsa ferð til Portúgals næsta vor. Við höfum farið til Búlgaríu,

Póllands, Portúgals og Spánar og hafa um 40 – 60 manns verið í hverri ferð. Mikil gleði og ánægja hefur verið með þessar ferðir og því er bara að fylgjast vel með hvenær næst verður farið, því fyrstir koma, fyrstir fá.

Vellir GKG

Vellirnir okkar, Mýrin og Leirdalurinn, eru jú það sem allt snýst um og því er það grundvallaratriði að þeir séu ávallt í sem bestu ástandi en vitaskuld ræður tíðarfarið miklu um ástand þeirra. Þeir komu vel undan vetri að sögn vallarstjóra og voru þeir opnaðir 5. maí og var þeim endanlega lokað 4. nóvember. Þetta gerir golftímabil upp á 183 daga, sem er 5 dögum lengra en á síðasta ári. Í skýrslu vallarstjóra kemur fram að miklar framkvæmdir voru á völlunum í sumar, þar sem framkvæmdir við 10. og 11. brautir á Leirdalnum og holtið á 16. bar einna hæst. Starfsmenn vallanna eiga sannarlega hrós skilið fyrir góða vinnu, sem miðar alltaf að hinu sama, þ.e. að gera vellina betri og betri. Í framhaldi af stækkun íþróttamiðstöðvarinnar var gerð ný 2000 ferm. púttflöt sunnan við húsið. Þessi nýja púttflöt var tekin í notkun nú síðsumars. Við höfum passað að endurnýja tækin okkar reglulega, því flest tækjanna eru í mikilli notkun og líftími þeirra því eðlilega stuttur. Alls voru spilaðir 62.750 hringir á völlunum í sumar, en voru 56.771 árið 2021, sem er rúmlega 10% aukning. Mjög erfitt er að vera með nákvæman samanburð milli ára, vegna þess að golfboxið telur ekki mót eða þegar hópar skrá sig, eins og golf.is gerði. Á Mýrinni voru leiknir 31.802 hringir en 30.948 á Leirdalnum.

Vinavellir

Á þessu starfsári hafa félagar getað farið á 16 vinavelli. Vellirnir eru á: Hellu, Álftanesi, Akranesi, Blönduósi, Keflavík, Grindavík, Borgarnesi, Selfossi, Sandgerði, Glanni, Brautarholti, Dalvík, Akureyri, Geysi, Hveragerði og á Ólafsfirði. Afsláttarkjör félagsmanna GKG eru nokkuð mismunandi eftir völlum, en nánari upplýsingar um þau eru á heimasíðu GKG. Á þessu ári greiddi GKG 3,1 milljón króna vegna þessa, sem er sama upphæð og var á síðasta ári. Engin ákvörðun hefur verið tekin varðandi næsta ár, en gera má ráð fyrir áframhaldi á þessu samstarfi.

Samskipti við sveitarfélögin

Við höfum allt frá stofnun GKG átt í miklum samskiptum við sveitarfélögin Kópavog og Garðabæ. Þau samskipti hafa verið góð, enda má segja að þau séu grundvöllur þess að hægt sé að reka þá fjölbreyttu starfsemi sem GKG býður upp á í dag. Fjárfestingar í byggingum og völlum eru það miklar, að félagsmenn gætu aldrei staðið undir þeim einir og sér. GKG verður 30 ára í mars á næsta ári. Við getum því sagt að búið sé að slíta barnsskónum þó vitaskuld komi alltaf ný verkefni sem krefjast úrlausnar. Styrkur okkar hefur frá fyrstu tíð verið sameiginleg lögsaga um land með Kópavogi og Garðabæ. Okkur hefur tekist að sigla framhjá ýmsum vandamálum varðandi nýtingu landsins.Það er núna fyrst á síðustu misserum sem mér finnst gæta ákveðins núnings milli aðila. Á fyrstu árunum var nóg land fyrir hina ýmsu starfsemi, en með útþennslu byggðarinnar fór að þrengja að starfseminni. Þrátt fyrir margar yfirlýsingar um að GKG muni að lokum sitja uppi með ekki verri aðstöðu en við höfum haft, finnst mér einhvernveginn vera kominn annar og breyttur tónn í málið. Vegna mikilla framkvæmda Garðabæjar í sumar á því landi sem GKG hefur haft undir æfingar undanfarin ár, varð veruleg röskun á aðstöðu okkar til æfinga. Við höfum haft þann metnað að búa okkar fólki mjög góða æfingaaðstöðu og ef hún skerðist er hætt við að ýmislegt fari að bresta. Við megum ekki þrengja svo að nýja golfvellinum að hann uppfylli ekki okkar ítrustu kröfur. GKG lýsir sig reiðubúin að vinna að frekari gróðursetningu á svæðinu, en við gróðursettum þúsundir trjáa á s.l. ári. GKG hefur á seinni árum verið með mun meiri gróðursetningu á fyrirhugðum golfvelli en skógræktarfélagið og því ættu sjónarmið beggja að ná saman.

Golfsumarið 2022

Meistaramót GKG var haldið í 29. sinn í sumar og urðu þau Anna Júlía Ólafsdóttir og Aron Snær Júlíusson klúbbmeistarar. Árangur GKG í landsmótum var glæsilegur og náðust 10 Íslandsmeistaratitlar. Hápunktur sumarsins var kannski sigur í sveitarkeppni GSÍ í 1. deild karla. Sigurinn í ár var sérstaklega sætur vegna þess að allir í sveitinni koma úr uppeldisstarfinu hjá GKG. Sigurinn í ár var sá 4. á síðustu 6 árum og kvennasveit GKG endaði í 3. sæti. Iðkendur 18 ára og yngri eru hvergi fleiri en hjá GKG. Framkvæmdir á vegum Garðabæjar í sumar höfðu bein áhrif á það svæði sem við höfðum til æfinga fyrir þennan mikla fjölda og kom það óneitanlega niður á gæðum og fjölbreytni æfinga sem hægt var að bjóða upp á. Framtíðaráform gera ráð fyrir framúrskarandi utanhúss aðstöðu fyrir öll högg innan við 100 metra, en þangað til þarf að ramma inn og skipuleggja betur þau grassvæði, sem við höfum til umráða.

Fjármálin

Heildarrekstrartekjur á starfsárinu 2022 námu 421 m.kr., þar af voru félagsgjöld 55%, en voru 52% árið áður. Þá voru aðrir stórir tekjupóstar eins og leigutekjur, sem skiluðu 15,2 % og rekstraframlög fyrirtækjasamninga, sem skiluðu 10%. Heildar rekstrarútgjöld námu 383 m.kr. afskriftir voru rúmar 24 milljónir og því var EBITDA hagnaður klúbbsins 63 m.kr. Fjármagnsliðir voru rúmar 15 m.kr. og því er rekstrarhagnaður klúbbsins tæpar 24 m.kr.

STOLTUR BAKHJARL BARNAOG UNGLINGASTARFS GKG

Að framansögðu er ljóst, félagsgjöldin eru mikilvægasti tekjupósturinn, en stöðugt fleiri tekjupóstar eru að koma inn og styrkja þannig reksturinn. Vellirnir okkar voru frábærir í sumar og hafa fengið gott umtal meðal þeirra gesta sem heimsóttu okkur. Það er ánægjulegt að segja frá því, að aðsókn að GKG er mikil og eru nú komnir biðlistar um inngöngu í klúbbinn.

Lokaorð

Það er ljóst við lestur þessa ársrits að starfsemi GKG er orðin býsna umfangsmikil. Við erum með marga starfsmenn sem allir stefna að sama marki, þ.e. að efla og bæta klúbbinn okkar. Öllu þessu fólki vil ég fyrir hönd stjórnar GKG þakka fyrir samstarfið. Þó við séum ánægð með starfið á þessu starfsári megum við í engu slaka á næstu árin. Tvö stór verkefni bíða okkar handan við hornið, en það eru bygging á nýju áhaldahúsi og nýr 9 holu golfvöllur. Garðabær er búinn að auglýsa lóðir sunnan og vestan við áhaldahúsið og gerir ráð fyrir að úthluta þeim á næstu vikum. Áform Garðabæjar eru mun fyrr á ferðinni en við höfðum gert ráð fyrir og því verður að hraða verulega því skipulagsferli sem nú er í gangi. Helgi Már Halldórsson arkitekt er að teikna áhaldahúsið og þar hefur farið fram þarfagreining og miklar vangaveltur, og verðum við að hefja framkvæmdir á næsta ári. Þá hefur Snorri Vilhjálmsson unnið að hönnun á nýja vellinum og þurfum við að setja kraft í þá vinnu og ljúka hönnun vallarins sem fyrst. Þessi breytta tímalína hjá Garðabæ með framkvæmdir mun hafa veruleg áhrif á barna- og unglingastarfið hjá okkur næstu sumur. Ég hef nú verið formaður GKG í 15 ár, sem er helmingur af líftíma klúbbsins, og tel því tímabært að láta hér staðar numið, enda karlinn að verða nokkuð aldraður að árum, þó andinn sé mun yngri. Ég hef á þessum árum unnið með mörgu góðu fólki, bæði starfsfólki og eins stjórnarfólki, þeim öllum vil ég þakka fyrir samstarfið. Þó alltaf sé erfitt að nefna einhver nöfn úr fjölmennri sveit samstarfsmanna, þá vil ég þakka þremur höfðingjum sérstaklega fyrir frábært samstarf, en það eru þeir Agnar Már Jónsson framkvæmdastjóri, Guðmundur Árni Gunnarsson vallarstjóri og Úlfar Jónsson íþróttastjóri, en okkar samstarf hefur alla tíð verið frábært. Í lokin skulum við gleðjast yfir mörgum góðum hlutum sem hafa gerst hjá okkur á þessu starfsári. Framtíðin er björt hjá GKG.

Guðmundur Oddsson, formaður

This article is from: