
2 minute read
Vallarnefnd
from Ársrit GKG 2022
Vallarnefnd GKG 2022
Vallarnefnd er ein af leiðum félagsmanna til að hafa áhrif á framkvæmdir og umhirðu golfsvæðis GKG. Vallarnefnd heldur reglulega fundi með vallarstjóra GKG þar sem m.a. verkefnum er forgangsraðað en auk þess fundar hún aukalega þegar vinna þarf úr ákveðnum verkefnum eða veita álit.
Advertisement
Vallarnefnd GKG 2022: Björgvin Smári Kristjánsson Einar Þorsteinsson Ragnheiður Stephensen Sigurður Kr. Egilsson Sigurfinnur Sigurjónsson Ingunn Einarsdóttir Svala Vignisdóttir Guðmundur Á. Gunnarsson, vallarstjóri Guðni Þorsteinn Guðjónsson, aðstoðarvallarstjóri
Á síðasta sumri uppskáru félagsmenn lok á stórframkvæmdum sem búið var að undirbúa í töluverðan tíma; 1. Stærsta æfingagrín á Íslandi var tekið í notkun sem mun nýtast barna- og unglingastarfi einstaklega vel ásamt hinum almenna félagsmanni.
2. Sléttun á 3. braut í Leirdal var tekin í notkun strax í vor ásamt nýjum glompum vinstra megin við brautina. Félagsmenn gátu strax spilað á brautinni í byrjun sumars og var því lágmarks röskun fyrir félagsmenn. Sléttun 3. brautar var eitt stærsta atriðið sem félagsmenn hafa bent á í árlegri könnun meðal félagsmanna.
3. Færsla á stíg vinstra megin við 10. holu í Leirdal og tyrfing. Vel heppnuð framkvæmd í alla staði sem refsar síður inná höggum á 10. grín.
4. Nýr holtahlaðinn teigur á 11. braut í Leirdal. 5. Ný braut meðfram holtinu á 16. braut í Leirdal. Heldur í mikilvægan karakter í brautinni en gerir hana sanngjarnari sérstaklega fyrir þá sem eru með hærri forgjöf. Álfasteinninn hélt sínum stað og þeir lögðu blessun sína á framkvæmdina. Lagt var dren í brautina og hluti af brautinni sléttur.
6. Nýtt grín á 18. braut var opnað í september sem var sáð í sumarið 2021. Verður spennandi viðbót við golf sumarið 2023 sem gerir 18. brautina að hörku lokaholu þar sem staðsetning á flöt getur ráðið úrslitum.
7. Sáning í nýjar brautir og grín ofan við 1. braut í Leirdal. Eru þessar tvær brautir hluti af nýja vellinum, og verður til að byrja með notað sem æfingarsvæði fyrir barna- og unglingastarfið. Verður tekið í notkun líklega sumarið 2024.
Það er því óhætt að segja að félagsmenn séu að uppskera ríkulega eftir mikla vinnu vallarstarfsmanna. Þessi viðbót, ásamt vinnu síðustu ára við nýjar tröppur við teiga, kantsteina við göngustíga, lagfæring á glompum, drenlagnir mældar í kílómetrum, holtagrjót við teiga og fleira er allt liður í því að heildarupplifun golfara sé með besta móti. Á árinu 2018 settum við okkur það markmið að koma grínum okkar í allra fremstu röð. Hluti af því var endurnýjun á ýmsum vélarkostum, eins og áburðardreifara ásamt því að prófa nýjar aðferðir. Þó svo að grínin hafi tekið miklum framförum á þessu tímabili þá er þeirri vegferð ekki lokið og verður mikil áhersla lögð á að ná þeim í allra fremstu röð á næstu árum. Þema fyrir veturinn 2022/2023 er að halda áfram og klára vinnu við lagfæringu á glompum. Í öllum glompum þarf að endurnýja undirlagið, en samtals er búið að endurnýja að fullu 15 glompur. Ef veður leyfir þá vonumst við að geta útskrifað þetta verkefni í Leirdalnum og á Mýrinni í vetur.
Vallarnefnd þakkar vallarstjóra og starfsmönnum fyrir ánægjulegt samstarf.
Sigurður Kr. Egilsson, formaður vallarnefndar GKG.