
1 minute read
Kjósum um Carbfix í Straumsvík
Árið 2007 fór fram íbúakosning um stækkun álversins í Straumsvík. Framkvæmd kosninganna var góð og niðurstaða fékkst í málið sem staðið hefur til þessa dags. Sú hefur ekki alltaf verið raunin í sambærilegum kosningum, að sátt myndast um niðurstöðuna.
Nú vinnur Carbfix að því að byggja móttöku og förgunarmiðstöð fyrir koldíoxíð í Straumsvík. Til stendur að farga allt að þremur milljónum tonna af efninu á hverju ári, sem m.a. annars verður flutt inn til landsins, með því að dæla því niður í jörðina þar sem það steinrennur með tíð og tíma.
Advertisement
Í matsskýrslu vegna áætlananna og í máli fulltrúa Carbfix kemur fram starfseminni fylgir hætta á aukinni jarðskjálftavirkni á svæðinu. Jafnframt
31. MARS
Drepfyndinn einleikur eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur sem einnig leikur öll hlutverk í sýningunni.
Síðasta frumsýning í Víkingastræti Sýningar: 31. mars og 1. apríl kl. 20.00 Miðasala á tix.is fela þær í sér hafnargerð og svo sé vitnað í formann bæjarráðs þá er kostnaður við uppbygginguna níu milljarðar.
Hér er komið tilefni til að efna til nýrra íbúakosninga um uppbyggingu í Straumsvík. Það er eðlilegt að bæjarbúar séu spurðir að því hvort þeir séu fylgjandi starfsemi á svæðinu sem felur í sér jarðskjálftahættu svo nærri byggð. Þá er mikill kostnaður vegna hafnargerðarinnar einnig umdeilanlegur.

2007 höfnuðu Hafnfirðingar frekari þungaiðnaði á Straumsvíkursvæðinu. Ef til stendur að breyta þeirri ákvörðun er eðlilegt að spyrja bæjarbúa álits.
Höfundur er oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði