
2 minute read
Malbikið sem lagt var stóðst ekki kröfur
Malbikið sem lagt var stóðst ekki kröfur sem til þess eru gerðar
Malbik sem lagt var á nokkra kafla á höfuðborgarsvæðinu í sumar, þar á meðal á Kjalarnesi, stóðst ekki kröfur sem til þess eru gerðar í útboði Vegagerðarinnar og munar miklu. Tveir einstaklingar á bifhjóli létu lífið á þessum vegakafla 28. júní í sumar. Kröfur um holrýmd stóðust ekki og heldur ekki kröfur um viðnám að útlögn lokinni. Þetta er niðurstaða fyrstu rannsóknar á malbikskjörnum frá fimm köflum sama útboðs. Sýni voru rannsökuð hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og hjá VTI í Svíþjóð. Frekari rannsóknir fara nú fram. Krafa Vegagerðarinnar er sú að holrýmd skuli liggja á bilinu 1% til 3%. Niðurstöður rannsókna á borkjörnum úr vegi sýna að holrýmd sé allt niður undir 0,1% og framleiðsluniðurstöður sýna holrýmd 0,1% upp í 0,5%. Vegagerðin vinnur nú að því að yfirfara alla verkferla út frá niðurstöðu skýrslunnar og hvernig eftirliti með verktökum verði háttað í framtíðinni. Engin ákvörðun liggur fyrir hvort málið verði kært. Hemlunarviðnámsmælingar kaflanna, utan eins, sýna að þeir uppfylla ekki kröfur Vegagerðarinnar um lágmarks hemlunarviðnám, sem hefur gildið 0,5. Kaflarnir fimm eru á Reykjanesbraut, Bústaðavegi, Sæbraut, Kjalarnesi og Gullinbrú. Eini kaflinn sem stóðst kröfur um viðnám er á Sæbraut, aðrir kaflar hafa verið fræstir og lagt yfir þá aftur nýtt malbik sem stenst kröfur. Undanskilinn er kafli á einni akbraut á Reykjanesbraut sem er enn til rannsóknar og verður líklega einnig fræstur og yfirlagður upp á nýtt. Þetta eru fyrstu niðurstöður rannsókna sem standa enn yfir. Rannsóknum verður framhaldið hjá Nýsköpunar-miðstöð, VTI, Vegagerðinni og hjá malbiksframleiðendum. Í yfirlýsingu frá Vegagerðinni kom fram að vegna umræðu um öryggi á vegum að undanförnu viljum við hjá Vegagerðinni koma eftirfarandi á framfæri. „Í júní síðastliðnum átti sér stað hræðilegt slys á Kjalarnesi. Á umræddum vegarkafla var nýlokið viðhaldi á malbiksyfirborði og beindust sjónir strax að frávikum í framkvæmd þessa verks. Rannsóknir á viðnámi á yfirborði sýndu í framhaldinu að miklu munaði að uppfylltar væru kröfur í útboðslýsingu til verksins. Í rannsóknum sem gerðar voru í kjölfarið og enn eru í gangi kemur berlega í ljós að umrætt malbik stóðst ekki útboðskörfur Vegagerðarinnar. Augljóst samhengi er milli þeirra galla og þeirra aðstæðna sem sköpuðust á slysstað. Við starfsmenn Vegagerðarinnar erum harmi slegin yfir slysinu og því að slíkar aðstæður hafi getað skapast við venjubundið viðhald á vegum. Í framhaldi af þessu hafa allir hlutar umrædds verks verið fjarlægðir utan einn sem sannarlega stóðst kröfur til viðnáms. Verkið sem um ræðir var framkvæmt af verktaka með mikla reynslu. Sú reynsla kom því miður ekki í veg fyrir þær afleiðingar sem við öll þekkjum.“