
1 minute read
Brýnt að hækka skilagjald
Brýnt að hækka skilagjald vegna förgunar ökutækja
Útlit er fyrir að nokkru færri bílum verði skilað til förgunar í ár en síðustu ár þegar metfjöldi bifreiða var endurunninn. Samkvæmt áætlun gætu um tíu þúsund bílar komið til meðhöndlunar í ár en þeir voru 11.635 í fyrra. Á heimasíðu Úrvinnslusjóðs segir að greiða skuli eiganda ökutækis skilagjald, 20.000 krónur, eftir afhendingu til móttökustöðvar til endurnýtingar eða endanlegrar förgunar, hafi ökutæki verið afskráð og úrvinnslugjald greitt a.m.k. einu sinni af viðkomandi ökutæki. Endurgreiðslan hefur verið óbreytt í nokkur ár en úrvinnslugjaldið sem lagt er á bíleigendur árlega hækkaði um 157% um síðustu áramót eða úr 700 krónum í 1.800 krónur. Að mati FÍB er lag fyrir stjórnvöld að hækka skilagjald vegna förgunar verulega, allavega tímabundið, til að örva viðskipti með nýja og nýlega bíla. Með þessari aðgerð er hægt að auka hlutfall öruggari og minna mengandi bíla í umferð. Nýlegir bílar eru búnir umtalsvert betri öryggisbúnaði en hinir eldri. Nýrri bílar eyða minna eldsneyti og menga verulega minna en eldri. Síðustu misserin hefur framboð raf-, tengiltvinn- og tvinnbíla stóraukist á markaði enda er hlutfall þessara ökutækja um 55% af heildarsölunni það sem af er ári. Hærra skilagjald mun skila fleiri bílum með lakari öryggisbúnað og meira mengandi til endanlegrar förgunar. Aðgerðin mun verja störf í bílgreininni og auka hlutfall umhverfismildari og öruggari ökutækja í umferð. Þetta er þjóðhags- og lýðheilsulega jákvætt. Fjölgun öruggari ökutækja í umferð mun auka umferðaröryggi allra vegfarenda og álag á heilbrigðiskerfið minnkar. Minni mengun dregur einnig úr neikvæðum lýðheilsuáhrifum samgangna á landi.