2 minute read

Tryggja virknina alla leið

kvikna á dagljósastillingu því að sumar bílgerðir kveikja aðeins dauf dagljós að framan og jafnvel engin afturljós nema stillingunni sé breytt.

Góða sköfu og samanbrjótanlega skóflu er hægt að fá hjá FÍB

„Loks þarf að tryggja að ákveðinn lágmarksbúnaður sé til staðar í bílnum. Góð skafa er ómissandi og líka æskilegt að hafa lítinn kúst til taks til að

Verið að ganga frá og stilla fyrstu meðalhraðamyndavélarnar á Íslandi.

Þessar hraðamyndavélar munu vakta

Grindavíkurveg og ekki er ósennilegt að ef tæknin reynist vel verði hún tekin í notkun víðar um landið. Björn Kristjánsson, sérfræðingur hjá FÍB, segir að meðalhraðamyndavélar hafi ýmsa kosti fram yfir svokallaðar punkthraðamyndavélar. „Meðalhraðamælingar þekkjast víða erlendis og virka alla jafna þannig að kerfið ljósmyndar bíl á einum stað og les númeraplötuna, og myndar bílinn síðan aftur nokkru seinna með sama hætti. Með því að mæla hve langan tíma það tók bílinn að ferðast á milli þessara tveggja punkta má reikna út meðalhraðann og gefa út sekt ef bílnum var ekið yfir hámarkshraða.“ hreinsa snjó af þaki og skotti bílsins. Samanbrjótanleg skófla kemur í góðar þarfir ef bíllinn festist í snjó og sumum þykir gott að hafa poka af kattasandi til taks til að strá í kringum dekkin ef bíllinn situr fastur í fljúgandi hálku. Ekki sakar að hafa hlýtt ullarteppi sem grípa má til ef bíllinn festist og bíða þarf eftir aðstoð, og svo ætti fólk að huga að því ef haldið er af stað út á landsbyggðina að vera með fatnað sem hæfir veðri. Björn segir að punktahraðamyndavélar hafi meðal annars þann ókost að ökumenn geta hægt ferðina rétt á meðan þeir aka fram hjá myndavélinni en síðan aukið hraða á ný en með meðalhraðamyndavél megi tryggja akstur á löglegum hraða yfir langar vegalengdir. „Erlendar rannsóknir hafa líka sýnt að ökumenn halda áfram að aka á löglegum hraða í lengri tíma eftir að þeir hafa ekið í gegnum mælisvæði meðalhraðamyndavéla en ef þeir aka fram hjá punktahraðamyndavélum,“ útskýrir hann. Jafnframt bendir Björn á að reynslan erlendis sýni að þar sem meðalhraðamyndavélar hafa verið teknar í notkun hafi tekist að fækka alvarlegum slysum um allt að helming, bæði þar sem hraðamælingin fer fram og einnig utan mælisvæðisins. Skyldi bíllinn festast eða springa á dekki á leið í jólaboð uppi í Reykholti er vissara að vera með góða vetrarskó og kuldaúlpu meðferðis. Jafnframt ætti að hafa sjúkratösku í bílnum, bæði á veturna og á sumrin. Og til að vera við öllu búinn er líka æskilegt að hafa kröftugt vasaljós, dráttartóg og jafnvel startkapla,“ segir Runólfur Ólafsson

framkvæmdastjóri FÍB. Þá á nýja hraðamælingakerfið á Grindavíkurvegi að senda lögreglu þegar í stað upplýsingar um hraðabrot svo að útbúa megi sektir án tafar. Þýðir þetta m.a. að erlendir ferðamenn munu síður geta sloppið frá sektunum. „Hér á landi hefur kerfið ekki verið gallalaust og vakti FÍB athygli á því í lok seinasta árs að yfir 95% hraðabrota erlendra ferðamanna sem náðust á mynd voru látin falla niður. Varlega reiknað mátti því áætla að árið 2018 hafi þurft að fella niður 250 milljónir króna í hraðasektum sem ekki tókst að innheimta,“ segir Björn. „Ekki er nóg að setja einungis upp vélarnar heldur þarf að tryggja virknina alla leið svo að allir ökumenn séu jafnir fyrir umferðarlögunum, hvort sem þeir eru búsettir hér á landi eða erlendis.“

This article is from: