3 minute read

Tesla stefnir á framleiðslu rafhlaða með lengri líftíma

Elon Musk, framkvæmdastjóri bandaríska bílaframleiðandans Tesla, segir að á næstu þremur til fjórum árum geti fyrirtækið hugsanlega hafið framleiðslu á rafhlöðum með lengri líftíma og allt að 50% meiri orkuþéttleika Orkuþéttleiki rafhlaðna í Tesla í dag er 260 Wh/gk en myndi aukast í 400 Wh/ kg ef áætlanir fyrirtækisins ganga eftir. Búist er við að þessar hugmyndir verði kynntar enn frekar á næstunni. Suður kóreskir rafgeymasérfræðingar segja að ef áætlanir og framkvæmdir verða að veruleika er um byltingartækni að ræða sem hugsanlega getur aukið bæði orkuþéttleika og endingu rafhlöðunnar verulega. Tíminn einn verði að leiða þetta í ljós en víst er að þekking og framfarir á þessu sviði muni aukast til muna á næstu árum. Tesla er í samstarfi við kínverska og suður–kóreska sérfræðinga sem lítur að tækni og framþróun á þessu sviði. Aðalmarkmiðið er að lengja líf rafhlöðunar og auka drægni bílsins. Uppgangur Tesla er gríðarlegur en fyrirtækið hefur áform uppi að færa enn frekar út kvíarnar í Evrópu. Mikill uppgangur fyrirtækisins gerir því kleift að útvíkka starfsemi og gera hana enn sterkari en nú er. Tesla–bílar seljast mjög vel víðast hvar og staða fyrirtækisins hefur aldrei verið sterkari. Á síðasta ári seldi Tesla Model–3 bílinn sinn í 300.000 eintökum á heimsvísu og stefnir í að vera mest seldi rafbíll allra tíma. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var Tesla sú bílategund sem seldist mest þegar kom að nýjum bílum. Í Bandaríkjunum hafa selst mun fleiri bílar á þessu ári en Tesla gerði ráð fyrir. Þetta hefur komið forsvarsmönnum fyrirtækisins mjög á óvart í ljósi áhrifa og útbreiðslu kórónuveirunnar. Nú hefur Tesla í hyggju að nýta vel tækifærin sem bjóðast í Evrópu og nýlega keypti fyrirtækið leyfi sem gerir bílaframleiðandanum kleift að eiga viðskipti með raforku í Vestur-Evrópu. Með því væri hægt að bjóða viðskiptavinum enn meiri þjónustu og samkeppni við aðra bílaframleiðendur myndi aukast til muna. Þessi hugsanlegu auknu umsvif í Þýskalandi hafa mætt gagnrýni og andstöðu hjá sumum ráðamönnum. Tesla hefur enn sem komið er ekki viljað tjá sig um þessi áform á orkumarkaði. Elon Musk hyggur á ferð til Þýskalands á næstu dögum og mun þá eiga fund með efnahagsráðherra landsins. Þar mun hann upplýsa ráðherra um fyrirhugaða uppbyggingu og áform á næstu mánuðum. Reistar hafa verið fleiri verksmiðjur í Bandaríkjunum og ný verksmiðja opnaði nýverið í Kína. Gengi hlutabréfa hafa rokið upp úr öllu valdi og hafa hækkað vel yfir 300% á þessu ári.

Verulegt átak þarf ef áætlanir eiga að ganga eftir

Eigi áætlanir stjórnvalda víða í Evrópu að ganga eftir, en þær miða að því að fækka farartækjum knúnum jarðefnaeldsneyti til muna fyrir árið 2030, þarf verulegt átak í fjölgun hleðslutækja til almennings og á vinnustöðum svo að dæmi séu tekin. Ljóst er að aðgengi að hleðslustöðvum þarf að batna og þeim að fjölga um hundruði þúsunda svo að þessar áætlanir ná fram að ganga. Mikil vinna er því fram undan í uppbyggingu á hleðslustöðum og öðrum þáttum sem lúta að rafbílavæðingunni sem nú blasir við. Áratugur er til stefnu og eins gott að láta hendur standa fram úr ermum, að mati ráðgjafaráðs Evrópusambandsins í hreinum samgöngum, ICCT. Í þessari umræðu er Bretland nefnt til sögu en þar er rafbílavæðingin ekki eins langt á veg komin í samanburði við Norðurlöndin. Engu að síður eru rafhleðslustöðvar á Bretlandi taldar vera orðnar hátt í tíu þúsund. Flestar þeirra aðeins með einni hleðslusnúru og það skýrir ef til best út af hverju hleðslustöðvar eru nú orðnar svo margar. Bæta þarf þennan þátt til að mæta þörfinni á næstu árum.

Fagleg skoðun síðan 1995

Aðalskoðun sérhæfir sig í skylduskoðunum ökutækja og annast allar skoðanir ökutækja af öllum stærðum og gerðum allt frá léttum bifhjólum til stærstu kranabifreiða. Kynntu þér nánar á www.adalskodun.is eða renndu við á einni af skoðunarstöðvum okkar.

This article is from: