
3 minute read
Að ýmsu er að hyggja fyrir veturinn
Að ýmsu að hyggja fyrir veturinn – öryggið ofar öllu skiptir máli
Nú er sá tími árs að mikilvægt er að huga að ýmsu sem snýr að bílnum. Mikilvægt er að tryggja öruggan og áfallalausan akstur í öllumvetraraðstæðum sem geta komið upp. Eins og hendi er veifað, geta akstursskylirði versnað og er því afar brýnt að vera á vel útbúnum bíl til að mæta slíkum aðstæðum.
„Mikilvægast af öllu er að huga að þessum fjórum lófastóru flötum sem tengja bílinn við jörðina og setja bílinn á dekk við hæfi. Hver og einn þarf að gera sína þarfagreiningu þegar kemur að því að velja heilsársdekk, negld dekk eða ónegld, eða aðrar tegundir dekkja. Fólk þarf að gæta að ástandi dekkjanna og m.a. ganga úr skugga um að mynsturdýpt þeirra sé að lágmarki 3–4 mm. Þá ætti að bera viðeigandi efni á gúmmílista og lása til að varna því að yfirborðsfletir festist saman í frosthörkum,“ segir Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Runólfur segir að allar gúmmíblöndur hafa batnað og hönnun bíllása sömuleiðis svo að það er ekki eins algengt í dag og áður að fólk eigi í vandræðum með að opna bílhurðir eða skott eða fá lása til að bifast eftir mjög kalda nótt. Borgar sig samt að hafa vaðið fyrir neðan sig til að forðast óvæntar uppákomur. Fólk ætti líka að vera við því búið að fjarstýringin á lyklakippunni eða sjálfvirk aflæsing virki ekki af einhverjum sökum svo að opna þarf bílinn með lykli og þá vissara að lásinn sé vandlega smurður.
Rúðuþurrkur gegna mikilvægu hlutverki
„Það mæðir mikið á rúðuþurrkunum yfir vetrarmánuðina og mikið öryggisatriði að ökumaður sjái vel út úr bílnum. Ágætis þumalputtaregla er að skipta um rúðuþurrkur ekki sjaldnar en á tveggja ára fresti en oft þarf að skipta þeim út fyrr en það.“ Runólfur mælir með ferð á smurverkstæði til að athuga frostþolið á kælikerfi bílsins. Ekki má heldur gleyma að setja ísvara í rúðupissið og eins að skoða olíustöðuna með reglulegu millibili. Systursamtök FÍB í Þýskalandi mæla núna með því að skoða olíustöðuna helst mánaðarlega,“ segir Runólfur Olíustaðan getur rýrnað af ýmsum ástæðum og hafa þýsku samtökin tengt það við alls konar vélarvandamál sem fólk vill forðast. Runólfur kemur einnig inn á það að gott sé að fara inn í veturinn á hreinum og vel bónuðum bíl. Bónið verndar lakkið á bílnum og veldur því að tjara og önnur óhreinindi loða síður við yfirborðsfleti. Runólfur segir gott húsráð að setja tvo til þrjá dropa af uppþvottalegi í tusku og þurrka yfir framrúðuna að innan en það dregur úr móðumyndun. Fólk ætti enn fremur að reyna að geyma ekki í farþegarýminu fatnað eða aðra hluti sem draga í sig raka og ágætis vani að setja dagblað undir motturnar á bílnum yfir nótt eða jafnvel yfir helgi og láta pappírinn draga í sig vætu og raka sem kann að hafa safnast upp. Mikill raki getur valdið móðumyndun innan í bílnum eða orðið til þess að bílrúðurnar hélast að innan.
Hreinsa reglulega af mottum
Í vetrarveðrum ber fólk með sér snjó og bleytu inn í bílinn og ætti að hreinsa reglulega af mottunum og leyfa ekki vætu að safnast upp í ökutækinu. Talandi um raka þá minnir Runólfur á að það borgar sig að hafa bensíntankinn a.m.k. hálffullan. Í frosti getur myndast hrím innan á tankinum sem bráðnar og blandast saman við bensínið þegar bíllinn er ræstur og gerir það vélinni ekki gott að taka inn á sig vatnsblandað bensín.
Gæta þess sérstaklega hvaða ljós kvikna á dagljósastillingu
„Þetta getur orðið vandamál ef fólk temur sér að vera reglulega að keyra á síðustu 5–10 lítrunum. Þess utan er aldrei gaman að verða bensínlaus og enn leiðinlegra á veturna. Einnig ætti að athuga ástand ljósa og skipta um sprungnar perur ef þess þarf. Flestir framleiðendur nota í dag díóðuljós sem endast mun lengur og þarf sjaldan að skipta um eða stilla. Fólk ætti þó að gæta þess sérstaklega hvaða ljós