1 minute read

Góðar hugmyndir í dekkjaframleiðslu

Góðar hugmyndir í dekkjaframleiðslu að fæðast

Á tilraunastofum hefur um langt skeið verið unnið að þróun að því að vinna dekk sem aldrei springur. Þetta hefur mörgum sýnst draumur einn en engu að síður ríkir nú meiri bjartsýni um að þetta geti í framtíðinni orðið að veruleika. Asíska fyrirtækið Sumitoma hefur lagt mikinn tíma og fjármagn í hygmyndina um loftslaus dekk sem safna orku sem verður til við núning. Dekkjaframleiðendurnir Michelin og Goodyear hafa einnig verið með huga við sama efni og hafa raunar lagt meiri rannsóknarvinnu í þetta ferli. Eins og áður kom fram eru loftlaus dekk ekki ný af nálinni á tilraunastofum. Sumitoma virðist þó vera komið skrefinu lengra í þessum efnum með því að setja svokallaða orkustöð inn í dekkin sem hleðst við núning þeirra á ferð á vegum úti. Þessi orka myndi síðan einnig nýtast í öðrum búnaði bílsins, eins og mælaborði og varðandi GPS–staðsetningu. Það verður spennandi að fylgjast með þessari þróunarvinnu Simitoma og hverju hún skilar á endanum. Miklu nær okkur í raunveruleikanum eru Michelin–Uptis dekkin sem eru komin langt á veg í allri þróunar- og rannsóknarvinnu. Dekk og felgur eru ekki aðskilin lengur heldur verða einn og sami hluturinn. Dekkin eru framleidd úr lífrænum efnum í þrívíddarprentara. Alltaf verður hægt að endurvinna og uppfæra dekkin og þeim er því ekki skipt út eins og við erum vön í dag. Uptis–dekkin eru áframhald á þrónarvinnu með Vision–dekkin sem Michelin kynnti 2017. Þá kom fram að 200 milljónum dekkja sé fargað á hverju ári og 20% þeirra vegna skemmda eða vegna rangs loftþrýstings. Michelin hefur í hyggju að framleiða þessi dekk í fyrstu fyrir bandaríska bílaframleiðandann General Motors og er stefnan tekin á 2024 í þeim efnum.

This article is from: