
1 minute read
Eurogarant gæðakerfi
Þann 30. október sl. fékk réttinga- og sprautuverkstæðið Bílastjarnan fyrstu Eurogarant–vottunina hér á landi. Frá vinstri Torfi Þórðarson FRM, Stefán Magnússon BSI, Kristmundur Árnason Bílastjarnan.
Eurogarant - vottað gæðakerfi
Undanfarna mánuði hefur Félag réttinga- og málningarverkstæða (FRM) unnið að innleiðingu á Eurogarant–gæðakerfinu í nánu samstarfi við Eurogarant í Danmörku. Um er að ræða viðurkenndan staðal fyrir málningar- og réttingarverkstæði sem Alþjóðasamtök málningar- og réttingarverkstæða (AIRC International) komu á fót árið 2004.
Í samtali við Ragnar Geir Gíslason, formann FRM, segir hann fjölmörg verkstæði hafa sýnt áhuga á að fá Eurogarant–vottun og að þetta sé stórt skref fyrir greinina í átt að auknum gæðum, gagnsæi og öryggi fyrir bíleigendur hér á landi. Öll verkstæði sem hljóta vottun þurfa að standast ítarlegar úttektarkröfur sem eru þær yfirgripsmestu sem þekkst hafa hér á landi.

FRM hefur fengið BSI á Íslandi (British Standards Institution) til að annast úttektirnar og hafa með höndum reglubundið eftirlit með vottuðum verkstæðum.
Aukin ábyrgð og gagnsæi
Þriggja ára ábyrgð er á viðgerðum og málningarvinnu Eurogarant–verkstæða og jafnframt geta eigendur ökutækja óskað eftir viðgerðarvottorði. Vottorðið er staðfesting á að öllum ferlum varðandi vinnu og val á varahlutum hafi verið fylgt í samræmi við leiðbeiningar og kröfur framleiðenda. „Með þessu viljum við auka á gagnsæi og tryggja að núverandi eigendur og mögulegir kaupendur hafi allar upplýsingar undir höndum og viti að bíllinn standist allar þær kröfur sem eru gerðar til hans af framleiðenda,“ segir Ragnar. Ragnar leggur áherslu á að bílar hafi tekið miklum breytingum undanfarin ár hvað varðar efnisval, tækni og öryggisbúnað. Efnisval í bílum er mun fjölbreyttara og því þarf góð þekking að vera til staðar svo að hægt sé að tryggja rétt vinnubrögð. Einnig er mikilvægt að notast við varahluti frá traustum framleiðendum. Við vonumst til þess að Eurogarant muni auðvelda neytendum og tryggingafélögum að velja verkstæði sem tryggja vönduð vinnubrögð í samræmi við ýtrustu staðla og kröfur framleiðenda.
FÍB fagnar þessum áfanga þar sem aukin fagmennska í bílgreininni er neytendum hag.