1 minute read

Dýrafjarðargöng gríðarleg samgöngubót

Dýrafjarðargöng voru opnuð fyrir umferð 25. október. Opnunin var með óvenjulegu hætti vegna covid–19 og hringdi Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, úr Vegagerðinni í Reykjavík vestur á Ísafjörð í vaktstöð Vegagerðarinnar. Þar lyftu menn síðan slánum upp frá báðum gangamunnum. Með honum var forstjóri Vegagerðarinnar, Bergþóra Þorkelsdóttir, en þau bæði, Sigurður og Bergþóra, eru menntaðir dýralæknar. Vestfirðingum var boðið að safnast saman í bílum sínum við báða munna ganganna og fá þannig tækifæri til að aka í gegnum göngin um leið og þau voru opnuð. Nemendur Grunnskólans á Þingeyri fóru fyrstir akandi í gegn Dýrafjarðarmegin ásamt Gunnari Gísla Sigurðssyni sem hefur mokað Hrafnseyrarheiði frá árinu 1974. Skólabörnin höfðu þrýst á um samgöngubætur og óskuðu strax eftir því við samgönguráðherra í janúar að fá að aka fyrst í gegnum göngin. Fólk var hvatt til að halda sig í bílunum og tryggja þannig að öllum reglum um sóttvarnir væri fylgt til hins ítrasta. Óskað var eftir því við ökumenn að safnast í einfalda bílaröð á hægri kanti vegarins og að aka viðstöðulaust í gegn eftir að opnað hafði verið. Fyrir þá sem komu að norðan voru góðar tengingar til að snúa við eftir ferð um göngin vestan við brú á Mjólká. Þeir sem komu að vestan og höfðu ekið í gegn gátu snúið við nærri Kjaransstöðum þar sem eru góðar tengingar. Aðalverktaki við gerð Dýrafjarðarganga var Metrostav a.s. og Suðurverk hf. en umsjón og eftirlit var í höndum GeoTek ehf. og Eflu hf. Vestfirskir verktakar ehf. byggðu brýrnar. Rafskaut ehf. sá um raflagnir, Malbikunarstöðin Hlaðbær-Colas hf. sá um malbikun og Rafeyri sá um stjórnkerfi ganganna. Framkvæmdir hófust í júlí 2017. Með tilkomu Dýrafjarðarganga styttist Vestfjarðarvegur um 27,4 km þar sem leiðin yfir Hrafnseyrarheiði, sem lengi hefur verið helsti farartálminn, leggst af yfir vetrarmánuðina en þar eru mikil snjóþyngsli og mikil snjóflóðahætta efst á heiðinni. Með þessu er hægt að tryggja góðar samgöngur á Vestfjarðavegi (60) milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, sem er stór þáttur í að ná aðalmarkmiðinu um heilsárs vegasamband milli vestfirskra byggða í norðri og suðri.

This article is from: