
6 minute read
Neytendavernd bíleigenda er með ólíkindum léleg
Bíleigendur eiga fáa vini þegar kemur að opinberum stofnunum sem eiga að gæta hagsmuna neytenda. Það snýr ekki síst að okri á bílatryggingum, en önnur hagsmunamál koma þar skammt á eftir.
Fjármálaeftirlit Seðlabankans – verndari tryggingafélaganna
Sagan sýnir að fjármálaeftirlit Seðlabankans (FME) passar aðallega upp á að tryggingafélögin hagnist sem mest á kostnað bíleigenda. FME slær aldrei á puttana á tryggingafélögunum fyrir að misnota fákeppnismarkaðinn til að okra á viðskiptavinum. Fjármálaeftirlitið er hluti af Seðlabankanum undir stjórn Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Ekki hefur farið mikið fyrir umræðu af hálfu Ásgeirs um framferði tryggingafélaganna. FÍB hefur margsinnis þrýst á FME að draga úr meðvirkni sinni með tryggingafélögunum. Sjóðir félaganna eru mun bólgnari en þörf krefur til að standa gjaldþoli vegna þess að þau komast upp með að innheimta óeðlilega há iðgjöld. Í lögum um fjármálaeftirlitið eru almenn tilmæli um að FME skuli fylgjast með að starfsemi eftirlitsskyldra aðila „sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti“. Iðgjaldaokur tryggingafélaganna samræmist hvorki heilbrigðum né eðlilegum viðskiptaháttum en FME lætur sér fátt um finnast og lyftir ekki litla fingri. FÍB telur að setja þurfi skýr ákvæði um neytendavernd í lög um starfsemi Fjármálaeftirlitsins. FÍB benti Alþingi á það fyrir nokkrum árum án árangurs.
Eftirlit með iðgjöldum var fellt út úr lögum
Í eldri lögum um Fjármálaeftirlitið sagði að FME hefði „eftirlit með iðgjaldagrundvelli vátrygginga með það fyrir augum að iðgjöld, sem í boði eru hér á landi, séu í samræmi við þá áhættu sem í vátryggingum felst og eðlilegan rekstrarkostnað.“ Þegar lögum um stofnunina var breytt 2016 var þetta ákvæði fellt út.
Þegar bíleigendum ofbýður hækkun iðgjalda langt umfram almennt verðlag, þá ypptir FME bara öxlum og segir að það komi því ekki við. Í september 2021 sendi FÍB fyrirspurn til fjármálaeftirlits Seðlabankans um það hvort stofnunin ætlaði í ljósi hinnar sterku stöðu tryggingafélaganna og lækkandi kostnaðar að senda þeim tilmæli um að halda aftur af iðgjaldahækkunum og/eða lækka iðgjöld. Svarið: Nei, Seðlabankinn hefur ekki eftirlit með iðgjaldagrundvelli vátryggingafélaga og hefur engin slík tilmæli sent þeim.
Eftirlitsstofnun haldin leyndarhyggju
Neytendur og hagsmunasamtök neytenda á borð við FÍB hafa engan aðgang að Fjármálaeftirlitinu né úrræði til að fylgja eftir kærum eða ábendingum. Í verklagsreglum eftirlitsins vegna fyrirspurna og ábendinga segir að þeir sem beina erindum til þess eigi ekki sjálfkrafa rétt á því að ábendingar þeirra verði teknar til meðferðar. Ábendingar og kærur til FME lenda í einskonar svartholi. Sjaldan eða aldrei er hægt að fá upplýsingar um hver tekur við erindindinu, hvaða umfjöllun það fær, forsendur ákvarðanatöku eða lyktir máls. Á sama tíma hafa fjármálafyrirtækin beinan og óheftan aðgang að starfsmönnum og deildum FME.



Samkeppniseftirlitið getur gert betur
Lítil sem engin verðsamkeppni ríkir í fáokursumhverfi tryggingafélaganna enda eru bílatryggingar hér á landi þær hæstu á Norðurlöndunum samkvæmt könnun FÍB.
Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur ríkar skyldur til að stöðva okur á neytendum í skjóli fáokurs. Hins vegar er ekki hægt að gera verðsamanburð á iðgjöldum tryggingafélaga. Verðlagning þeirra er fullkomlega ógegnsæ. Þau gera aðeins tilboð í tryggingar hvers og eins tryggingataka og eru því illa samanburðarhæf. Þetta er sambærilegt við að verð á matseðli veitingahúsa væri mismunandi eftir því hver sest þar að snæðingi.
Forsendur iðgjaldatilboða eru ekki gefnar upp og þar stendur hnífurinn í kúnni. Erfitt er fyrir Samkeppniseftirlitið að sanna ólöglegt athæfi því að það hefur ekkert viðmið.
Máttlítil sekt
Meðan Samkeppniseftirlitið gerir ekkert í þessum efnum er það áfram „stikkfrí“ gagnvart fáokri tryggingafélaganna. Það er helst að stofnunin hreyfi sig við áberandi lögbrot í þessari atvinnugrein. SKE sektaði Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) nýlega um 20 milljónir króna fyrir að tjá sig fyrir hönd tryggingafélaganna um verðlagningu ökutækjatrygginga. FÍB taldi að SKE hefði þar látið tryggingafélögin sleppa létt. Frekar hefði átt að sekta miðað við veltu tryggingafélaganna en veltu SFF.
Ógnarlöng málsmeðferð
Eitt helsta máttleysi Samkeppniseftirlitsins felst í því hversu málsmeðferð tekur alla jafna langan tíma. Rannsókn samkeppnisyfirvalda á ólögmætu
samráði tryggingafélaga hófst árið 1997 en niðurstaða fékkst ekki fyrr en 2004, sjö árum síðar. Samráð tryggingafélaganna um undirboð drap FÍB-tryggingu sem var komið á fót árið 1995. Fyrir kemur að mál séu til meðferðar hjá samkeppnisyfirvöldum í áratug eða lengur. Niðurstaðan verður oft í þessum dúr: aðgerðin heppnaðist en sjúklingurinn dó.
Alþingi opnaði dyrnar fyrir svikahröppum
Alþingi breytti lögum um bílasölu 5. mars 2020. Skilyrði um leyfisveitingu og starfsábyrgðartryggingu fyrir bílasölu voru felld niður. Fullyrt var að önnur lög um neytendavernd veittu betri tryggingu. FÍB og Bílgreinasambandið vöruðu Alþingi sterklega við afnámi þessara skilyrða. Bent var á hættuna af svikastarfsemi í sölu nýrra og notaðra bíla, líkt og þekkist víða erlendis. Ekki þurfti að bíða lengi eftir afleiðingunum. Nýlega sagði Fréttablaðið frá meintum stórfelldum svikum „bílasölunnar“ Bensínlaus.is. Forráðamenn þessa umboðsfyrirtækis voru horfnir til útlanda með milljóna króna innborganir á bíla sem virðast bara til á pappírunum og viðskiptavinir eru vonlitlir um að endurheimta fjármunina.
Akkilesarhæll kærunefndar vöru- og þjónustukaupa
Nefndin tók við af kærunefnd neytendamála í mars 2020 og afgreiðir hátt í 100 kærur á ári. Ódýrt er að leita til nefndarinnar en málsmeðferð getur tekið drjúgan tíma. Handahófskennd könnun FÍB á meðferðartíma 10 kærumála sýnir að hann er að meðaltali tæpir sjö mánuðir. Nokkuð er um mál sem
tengjast bílakaupum, bílaleigu og bílaviðgerðum hjá nefndinni og ekki annað að sjá en meðferðin sé vönduð.
Akkilesarhæll þessarar úrlausnar er sá að ef seljandi vöru eða þjónustu sættir sig ekki við ákvörðun nefndarinnar verður kaupandinn að fara með málið fyrir dómstóla. Kærunefndin „aðstoðar ekki við fullnustu úrskurða“, segir á vefsíðu hennar. Hún getur sem sagt komist að þeirri niðurstöðu að seljandi eigi að endurgreiða, bæta úr ágöllum eða annað í þeim dúr, en ef seljandinn hunsar þá ákvörðun þá verður kaupandinn að sækja rétt sinn til dómstóla. Svo er þó að sjá að í flestum tilfellum fari seljandinn eftir úrskurðinum.

Ónotað úrræði Samkeppniseftirlitsins

FÍB hefur bent á að Samkeppniseftirlitið hefur víðtækar lagaheimildir til að grípa til ráðstafana til að efla samkeppni. SKE getur skyldað tryggingafélögin til að gera mögulegt að bera iðgjöld milli tryggingafélaga saman. Þannig gætu bæði neytendur og hagsmunasamtök gert samanburðarhæfar verðkannanir og stuðlað að raunverulegri samkeppni. Tæknileg útfærsla getur verið tiltölulega einföld þar sem tryggingafélögin búa nú þegar yfir öllum bakgrunnsbreytum. Eftir sem áður gætu tryggingafélögin bundið endanleg tilboð við einstaklinga eða fyrirtæki líkt og nú. Að mati FÍB er afar brýnt að efla samkeppni á milli tryggingafélaganna með því að svipta þau leyndarhjúp iðgjaldaútreikninganna. Það stendur upp á Samkeppniseftirlitið að beita sér.
Vottuð verkstæði
TJÓNA- OG ÞJÓNUSTUSKOÐUN BL
Verkstæði BL eru vottuð af framleiðendum og við notum aðeins viðurkennda varahluti, efni og aðferðir. Þannig heldur bíllinn þinn verðgildi sínu betur að lokinni þjónustu eða reglubundnu viðhaldi.
Láttu okkur þjónusta bílinn, við þekkjum hann
Við erum sérfræðingar í okkar bílum, hvort sem þig vantar þjónustuskoðun, reglubundið viðhald eða viðgerðir vegna tjóns þá skaltu heyra í okkur. Verkstæðin okkar eru vottuð af framleiðendum og við notum aðeins viðurkenndar aðferðir, varahluti og efni. Þú getur haft samband í gegnum Facebook-síðu BL, tölvupóst eða síma.


Fyrsta flokks þjónusta við eigendur rafbíla

Bifvélavirkjar BL hafa lokið vottunarprófi í þjónustu og viðhaldi á einstökum einingum í bílarafhlöðum og er verkstæði okkar með sérstakt afmarkað rými sem er útbúið öllum nauðsynlegum og sérhæfðum viðgerðar- og greiningarbúnaði sem þarf til þess að annast viðhald á rafhlöðum.

Eitt fullkomnasta réttinga- og málningarverkstæði landsins
Ef þú lendir í óhappi erum við til staðar fyrir þig. Réttingaverkstæðið okkar er eina vottaða verkstæði landsins fyrir viðgerðir á BMW, MINI, Jaguar og
Land Rover og er unnið eftir ströngum stöðlum framleiðenda til að bifreiðin haldi sömu upprunalegu öryggisatriðum, gæðum og eiginleikum og hann var framleiddur fyrir. Viðgerðir okkar fyrir önnur vörumerki BL eru unnin eftir sömu verkferlum til að fullkomna verkið. Við þekkjum bílinn þinn.
OPNUNARTÍMI Verkstæði: Mán.–fim. 7:45-18, fös. 7:45-17 Varahlutir: Mán.–fim. 8-18, fös. 8-17 Söludeild nýrra bíla: Mán. 10-18, þri.–fim. 9-18, fös. 9-17, lau. 12-16