2 minute read

Reynsluakstur EV6 - Ioniq 5

Reynsluakstur

Kia EV6 Hyundai Ioniq 5

Um mitt ár 2017 bárust þær fréttir að bílaframleiðandinn Hyundai hefði hafið þróun á nýjum undirvagni fyrir alrafmagnaðan bíl. Þótt stutt virðist síðan þá höfðu ekki margir framleiðendur farið af stað í þesskonar hönnun þar sem margir rafbílar voru, og eru enn, byggðir á grunni brunahreyfilsbifreiðar. Úr varð E-GMP (Electric Global Modular Platform) undirvagninn sem er með möguleika á breytilegu hjólhafi og rafhlöðuuppsetningu fyrir mismunandi tegundir og framleiðendur. Þá er einnig gert ráð fyrir drifi á öllum hjólum.

Tæpum fjórum árum síðar fóru fyrstu bílarnir með nýja undirvagninum í framleiðslu. Í raun voru þar á ferð þrír bílar frá þremur framleiðendum, þ.e. Hyundai, Genesis sem er sjálfstætt merki í eigu Hyundai og markaðssett í Bandaríkjunum og síðan Kia sem Hyundai á ráðandi hlut í. Í Evrópu hefur Hyundai Ioniq5 og Kia EV6 fengið einstaklega góðar móttökur og meðal annars deilt með sér verðlaunum um bíl ársins í fjölmörgum löndum.

Því var ákveðið að taka að taka jafnt til prófunar Kia EV6 og Hyundai Ioniq5 og bera saman hvort og hver sé í raun munur á bílum sem deila sama undirvagni en hannaðir og settir saman af sitthvorum framleiðandanum.

Svart og hvítt

Bílarnir voru í orðsins fyllstu merkingu svart og hvítt þar sem Kian var svört að bæði innan og utan í GT-útfærslu. Hún fólst aðallega í sportlegra ytra byrði og útlitsbreytingum að innan eins og varðandi sætisáklæði. Þá var bíllinn útbúinn 77kwh rafhlöðu og drifi að aftan Á meðan var Ioniq 5 hvítur bæði að utan og innan í Premiumútfærslu sem meðal annars var með glerþaki og uppfærslu á hreyfanleika í fram- og aftursætum.

Útlit

Að utan geta bílarnir nánast ekki verið ólíkari en Hyundai tók þá djörfu ákvörðun að sækja innblástur fyrir hönnun í fyrsta bílinn sem þeir settu á markað árið 1975 undir nafninu Hyundai Pony. Ferhyrnd fram og afturljós samsett úr dílum (e. pixel) sem voru alsráðandi þegar PacMan var upp á sitt besta. Síðan er það EV6 sem er jafn straumlínulagaður eins og Ioniq 5 er ferhyrndur. Einkennandi afturljósin koma í boga nánast frá hjólaskálum að aftan og yfir afturhlerann og mynda eins konar vindkljúf og heyrði undirritaður orðið Batman-bíll oftar en einu sinni á meðan prófunum stóð og er það ekki fjarri lagi, sérstaklega þar sem bíllinn var kolbikasvartur. Báðir voru bílarnir á 20“ felgum er koma sem aukabúnaður á dýrari útgáfu bílanna en grunngerðirnar koma á 19“. Athygli vekur að þrátt fyrir að yfirbyggingin á Ioniq 5 virðist teiknuð með réttskeið er viðnámsstuðull (CD) á milli bílana sá sami eða 0,28.

Innra rými

Að innan eru báðir bílarnir mjög rúmir sem kemur sérstaklega til vegna þess hve mikið hjólhafið er á nýja E-GMP undirvagninum eða heilir þrír metrar á Ioniq en EV6 var með aðeins skemmra eða 2,9 metra. Hvíta innréttingin og stóri þakgluggi í Ioniq jók án efa á rýmdarvitund í farþegarýminu. Gott pláss er fyrir ökumann og farþega í framsæti og sama gildir fyrir farþega í aftursætunum sem eru hallanleg. Einnig eru þau á sleða og því er hægt að renna þeim fram til að auka á skottpláss eða ná auknum halla fyrir sætisbakið. Premium-útgáfan er útbúin þægindaframsætum (e. relextion seats) sem er einnig í boði hjá Kia. Í grunninn er hægt, með einum takka, að breyta báðum framsætum í hægindastól með

Nýr E-GMP undirvagn býður upp á fjölbreytta uppsetningu fyrir mismunandi tegundir yfirbygginga.

This article is from: