
1 minute read
Churros con chocolate á spænska vísu
Hráefni
250 ml vatn
Advertisement
55 g ósaltað smjör
Aðferð:
Byrjið á að hræra saman sykurinn og kanilinn sem á að fara utan á og setjið á matardisk.
Nú byrjum við á sjálfu churrosinu.
Vatn, smjör og sykur er sett saman í pott og látið byrja að sjóða, lækkið þá hitann niður í miðlungshita.
Bætið svo hveitinu út í pottinn smátt og smátt og hrærið vel í á meðan, mjög svipað og þegar maður gerir vatnsdeigsbollur.
Færið nú deigið yfir í skál og látið kólna í eins og 5-10 mínútur við opinn glugga.
Bætið svo vanillu og eggi við í skálina og byrjið strax að þeyta með handþeytara þar til deigið er orðið silkimjúkt og vel þjappað saman í kúlu.
Setjið deigið í sprautupoka með frekar stórum stjörnustút.
Mér finnst best að sprauta svo deigi á smjörpappa í lengjur og klippa í kringum hverja lengju svo hver og ein fái sinn pappa.
Hitið nú olíuna á djúpri pönnu og setjið smá deig út á til að vita hvort hún sé heit. Þegar hún er orðin heit lækkið þá ögn undir henni, ekki mikið heldur bara aðeins.
Setjið nú eins og 3-4 lengjur á smjörpappa út á olíuna og takið pappann með töng strax af. Það er mjög þægilegt að gera þetta svona svo slettist ekki á mann olía.
Þið getið farið inn á instagrammið mitt og séð hvernig ég geri þetta undir „highlights“.
Steikið þar til þeir eru orðnir vel gullbrúnir og passið að hafa þá nógu lengi svo þeir verði ekki hráir að innan.
Setjið þá svo ofan á disk með eldhúspappír til að taka af alla aukaolíu.
Að lokum er þeim svo velt upp úr sykurblöndunni
Súkkulaðið:
Setjið allt saman í pott og hrærið stöðugt í á meðan súkkulaðið er að bráðna.
Berið svo fram heitt með churrosinu.
1 msk. sykur
1/4 tsk. salt
140 g hveiti
1 stórt egg
1/2 tsk. vanilluextract eða vanilludropar
1 l grænmetisolía
Sykur til að velta upp úr:
1/2 bolli sykur
3/4 msk. kanill
Súkkulaðið með Churrosinu:
100 g 70 % súkkulaði
1 dl rjómi klípa af salti
