Æskan og skógurinn - Gígja Sif Víðisdóttir

Page 33

mörgum skógræktargirðingum eru leirflög, melar og rofabörð. Í slíkt land má ekki gróðursetja tré nema rækta jafnhliða annan gróður, til dæmis lúpínur.

Plöntun Fátt virðist einfaldara en setja niður trjáplöntur. En þetta verk verður að leysa af hendi af nákvæmni og fyllstu alúð. Annars er allt unnið fyrir gýg. Oft heyrist því fleygt að trjáplöntum sé víða holað niður í flaustri og þar við látið sitja. Sannarlega má ekki kasta til þess höndum að planta trjám. Sakir hroðvirkni hafa margar plöntur farið forgörðum, margfalt fleiri en þær sem deyja af öðrum orsökum, t. d. í þurrki, frosti og illri meðferð í upptöku eða við flutning.

Hvenær á að planta? Plöntun getur hafist þegar snjóa leysir á vorin og jafnvel áður en frost er úr jörðu. Þá er jarðrakinn mestur. Halda má verkinu áfram til miðs júní þegar tíð er vætusöm. En þá er vissara að hætta plöntuninni í bili. Mesta hitatímabil sumarsins er þá framundan og jarðvegurinn farinn að þorna. Í byrjun ágúst má venjulega hefjast handa á nýjan leik en hætta aftur í lok þess mánaðar. Þó má halda áfram nokkru lengur ef gróðursett er inni í skógi eða kjarrlendi.

Staðarval Enginn skyldi hefja trjáplöntun fyrr en hverri tegund hefur verið valinn staður og reiknað út hve mikið land fer undir væntanlega plöntun. Þetta þarf að gera áður en plönturnar eru pantaðar svo tryggt sé að hver tegund fái jarðveg við sitt hæfi. Flokkun á landi eins og sagt er frá í kaflanum um jarðveg og grósku kemur í veg fyrir að menn panti óhentugar trátegundir.

Útvegun plantna Þá kemur að því að útvega plöntur en þær verður að panta tímanlega frá næstu gróðrarstöð. Ef gróðursetja á greni mega plönturnar ekki vera yngri en fjögurra ára. Stærð og aldur plantnanna verður þó ætíð að miða við vaxtarskilyrði á staðnum. Þar sem grasvöxtur er mikill skal eingöngu planta stórum og þroskamiklum plöntum. Ekki sakar að skýra frá plöntunarstað, ástandi girðingar, landstærð og landgæðum um leið og plönturnar eru

31


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Æskan og skógurinn - Gígja Sif Víðisdóttir by Tækniskólinn - Issuu