
2 minute read
Girðingar
Hér á landi er mestallt trjáfræ innflutt og kostnaður við plöntuuppeldi mikill. Þess vegna er hver planta mikils virði.
Því er brýn nauðsyn að sá sem plantar minnist þess ávallt að án vandvirkni hans er einskis árangurs að vænta.
Þessar aðferðir eru algengastar við plöntun:
1. Plantað við lóðréttan holuvegg
a) Bjúgskófla Hola er stungin eins og með venjulegri skóflu. Bjúgskófla er þannig gerð að stinga þarf aðeins á tvo gagnstæða vegu þannig að moldarhnaus liggur laus á skóflunni í seinni stungu. Þess verður umfram allt að gæta að annar veggur holunnar sé lóðréttur. Plantan er sett niður í holuna, lögð að lóðrétta veggnum og greitt úr rótum hennar. Síðan er hnausunum ýtt af skóflublaðinu ofan í holuna þannig að hann falli í fyrri skorður og loks er stigið á hann með öðrum fæti svo að plantan sitji vel föst.
Komi það fyrir að rætur plantna séu langar svo að þær bögglist í botni holunnar, verður að rótstýfa með beittum hníf eða trjáklippum.
b) Haki Þegar haki er notaður við plöntun er grasrótin höggvin af 20x20 sentimetra fleti og hola gerð með hakablaðinu þannig að einn veggur hennar verði lóðréttur, moldinni rótað upp úr holunni með hakablaðinu og mulin, ef með þarf.
Þessi plöntun er að því leyti frábrugðin hinni fyrri að besta gróðurmoldin er nú sett næst rótum plöntunnar, grasrót fjarlægð og áburðargjöf því auðveldari.
Sjálfsagt er að planta með haka þar sem land er grýtt eða grasvöxtur mikill.
Eftir plöntun skulu greni og furutegundir standa jafndjúpt og þær
Plantað með haka, útflött rót
33
stóðu í græðireit en lerki og lauftrjám nema birki, reyni og elri skal planta nokkru dýpra.
2. Plantað með útflattri rót
Grenitegundum er stundum plantað á þennan hátt og er þá haki notaður. Grasrótin er höggvin af eins og getið er um hér að framan. Síðan er jarðvegur losaður niður í sjö sentimetra dýpt og honum rótað upp úr flaginu með hakanum, Þá er plantan tekin, sett ofan í jarðsárið og greitt úr rótum hennar til allra hliða. Besta gróðurmoldin er lögð á hvolf kringum plöntuna. Ef þjappað er hæfilega að plöntunni með öðrum fæti á hún að hafa nægilega festu í moldinni.
3. Garðplöntun
Alldjúp hola er þá grafin með venjulegri stunguskóflu, lífrænn áburður settur í botn holunnar og honum blandað saman við jarðveg. Þá er plantan tekin og henni haldið í miðri holu á meðan greitt er úr rótum og holan fyllt með mold. Að lokum þarf að stíga þéttingsfast í kringum plöntuna svo að hún sitji föst.