Mysingssamloka með sveppum

Page 1

Unglingadeild Leikfélags Hafnarfjarðar 31. maí 2011 Sýnt í Gaflaraleikhúsinu


Gerður - Sædís Enja Styrmisdóttir Aldur: þrettán ára gömul Áhugamál: stærðfræði, tungumál, smíði og sauma, mannkynsaga, körfubolti Mottó: „Margur er klár þótt hann sé smár„

Harpa - Kristín Axelsdóttir Foelsche Aldur: 15 ára Áhugamál: bíómyndir, dýr, skrifa, vinir, strákar og partý Mottó: „Aumt er ástlaust líf“

Petra Melkorka - Kristbjörg Víðisdóttir Aldur: nógu gömul Áhugamál: Eldur og reykur Mottó: „life´s a bitch then you marry one“

Stjarna - Unnur Björnsdóttir Aldur: Gömul sál í líkama 15 ára stúlku Áhugamál: Reiki, stjörnuspeki, jóga, taroot, galdrar, að handan, náttúran, strákar og partý Mottó: „Allt er vænt sem vel er grænt„


Sara Lind - María Björg Þorsteinsdóttir Aldur: 15 ára Áhugamál: heute couture, útlit, tónlist, bækur, strákar, ferðast og versla Mottó: „Betra er einn fugl í hendi en tveir í skógi“

Jóhann Löve - Guðfinnur Magnússon Aldur: 15 ára Áhugamál: Ljósmyndir, Dungeons and Dragons, LARP, teiknimyndasögur Mottó: „Lifðu í lukku en ekki í krukku“

Svabba - Maria Christina Ascencio rain Aldur: 15 ára Áhugamál: Hardcore útvarpsþættir og teiknimyndasögur Mottó: „To cool for school“

Sigga - Bergljót Soffía Benediktsdóttir Aldur: 15 ára Áhugamál: Teikningar, hitt kynið, ævintýr og sögur Mottó: “Lifðu lífinu lifandi”


Velkomin á endurvakningu unglingadeild leikfélags Hafnarfjarðar á verkinu „Mysingssamloka með sveppum“ sem árið 1993 var samið af unglingadeild síns tíma. Hópurinn hefur unnið hörðum höndum síðustu mánuði við æfingar og á svo sannarlega hrós skil fyrir allan sinn dugnað, þið eruð ýkt öfga æðisleg! Þessi frumtilraun mín í leikstjórn hefur verið gífurlega lærdómsrík og skemmtileg, og það er ykkur að þakka, kæri leikhópur, að bæst hefur í reynslubankann minn fyrir lífstíð. Við í leikfélaginu erum hæst ánægð með ykkur og unglingadeildina sem varð til ykkar vegna og hlökkum til að fylgjast með ykkur um ókomna tíð. Takk krakkar! Þið eruð osom! Kristín Rós Birgisdóttir

Jófríður fékskt ekki í myndatöku, en þetta er Vígdís Finnbogadóttir hún var forseti árið sem að leikritið gerist og til gamans má geta að 6. desember 1993 voru debetkort tekin í notkun á Íslandi. Arndís Jóna Vigfúsdóttir leikur Jófríði


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.