Námsvísir vorönn 2015

Page 1

Lærum Námsvísir vorönn 2015

allt lífið


Efnisyfirlit Síða

Síða

Innritun og námskeiðsgjöld .......... 2

Kökuskreytingar með sykurmassa .. 13

Ný staða framhaldsfræðslunnar . 3

Kransakökugerð............................. 13

Starfsfólk ......................................... 5

Sykur-, ger- og glútenlaus matar 13

Námsbrautir FA .............................. 6-7

Ostagerð ......................................... 13

Íslenskunámskeið ........................... 8

Var stuð á landnámsöld? ............ 15

Enska með áherslu á þjónustu .... 8

Landnám í Hornafirði .................... 15

Norska I ............................................ 8

Vináttufærniþjálfun ....................... 15

Spænska I ....................................... 8

Draumar og drekar ....................... 15

Tölvur (UTN103) ............................... 9

Er frábært að eiga ungling?........ 15

Sími: 560 2038|852 2155

Snjalltæki við lestur ........................ 9

Nýtt ár, nýir tímar ........................... 16

*

Tölvur I .............................................. 9

Úr skuldum í jafnvægi ................... 16

Vík

Facebook fyrir eldra fólk .............. 9

Að ná fram því besta ADHD ....... 16

Kötlusetri

Blómasería ...................................... 10

Hleðsla riffilskota............................. 16

Víkurbraut 28

Handmálun og spaði I-III .............. 10

Lífsstíll og tímastjórnun í námi ....... 17

Kirkjubæjarklaustri

Málmsmíði ....................................... 10

Trjáklippingar .................................. 17

Kirkjubæjarstofu

Tálgunarnámskeið ......................... 10

Betri fjölskyldumyndir ..................... 17

Jurtalitun.......................................... 11

Námskeið í samstarfi við Fjölmennt .. 18

Þjóðbúningasaumur ...................... 11

Sjúkraliðanámskeið ...................... 19

Fræðslunetið símenntun á Suðurlandi Fjölheimar við Tryggvagötu 800 Selfoss Sími: 560 2030

* Hvolsvelli Vallarbraut 16

Sími: 560 2048|852 1855

* Höfn í Hornafirði Nýheimar Litlubrú 2

Fornar ísaumsaðferðir ................... 11

Innritun og námskeiðsgjöld

Sími 560 2050 fraedslunet@fraedslunet.is http://fraedslunet.is

*

 Innritun fer fram í síma 560 2030, með tölvupósti eða í gegnum vefsíðu Fræðslunetsins.

 Nokkrum dögum áður en námskeið hefst er haft samband við viðkomandi 

Finndu okkur á Facebook: Fræðslunetið, símenntun á Suðurlandi © FnS, janúar 2015 Umbrot og vinnsla: Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir Myndir: Starfsfólk Fræðslunetsins 2

    

og hann beðinn um að staðfesta innritun. Staðfesting er skuldbindandi og með henni samþykkir þátttakandi að greiða fyrir námskeiðið. Fræðslunetið áskilur sér rétt til að innheimta námskeiðsgjald að hluta til eða öllu leyti afboði þátttakandi sig eftir að hafa staðfest innritun. Innritun lýkur að öllu jöfnu viku áður en námskeið hefst. Námskeiðsgjöld eru innheimt með greiðsluseðli. Miðað er við a.m.k. 75% viðveru og virka þátttöku til að ljúka námskeiði og fá skírteini. Hver kennslustund (stund) er 40 mínútur nema annað sé tekið fram. Fræðslunetið áskilur sér rétt til að fella niður námskeið ef ekki fæst næg þátttaka.

Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi - námsvísir vorönn 2015


Ný staða framhaldsfræðslunnar Lög um skólagöngu frá vöggu til grafar

Raunfærnimat og þjónusta við fyrirtæki

Á undanförnum árum hefur framhalds- og fullorðinsfræðsla á Íslandi tekið á sig fastara form en áður þar má nefna að lög um framhaldsfræðslu hafa verið sett og bæst við önnur fræðslulög þannig að nú má segja að til séu lög um skólagöngu fólks á leið þess frá vöggu til grafar. Símenntunarstöðvar hafa haslað sér völl í öllum landshlutum með kröftugu fræðslustarfi fyrir fullorðna. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur gefið út fjöldamargar námskrár sem eru vottaðar af menntamálaráðuneytinu og meta má til styttingar náms í framhaldsskólum.

Námsframboði Fræðslunetsins má nú sem áður skipta í starfstengt nám og stök námskeið eða tómstundanámskeið. Námsbrautir Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins eru sem fyrr veigamesta námið. Náms- og starfsráðgjöf, sem fullorðnu fólki stendur til boða, er fastur liður í starfseminni. Raunfærnimat hefur verið einn helsti vaxtarbroddur starfseminnar upp á síðkastið og má geta þess að 180 manns hafa gengist undir slíkt mat hjá Fræðslunetinu. Hér er um að ræða mat á námi og reynslu sem hefur átt sér stað í lífi og starfi. Raunfærnimati verður áfram sinnt eins og fjárhagur leyfir. Á árinu verður lögð sérstök áhersla á að bjóða fyrirtækjum á Suðurlandi upp á ýmiskonar fræðslu og verður það kynnt sérstaklega síðar á önninni.

Fjarkennsla fer vaxandi Fræðslunetið er ein ellefu símenntunarstöðva á landinu. Allir landsmenn eiga aðgang að þessum stöðvum og hefur aðsókn í nám verið mjög mikil. Sem dæmi má nefna að árið 2013 sóttu rétt um fimmtán þúsund manns nám hjá stöðvunum. Það gefur þó auga leið að þeir landsmenn sem búa í mestu strjálbýli sitja ekki við sama borð og aðrir. Með aðild Sveitarfélagsins Hornafjarðar að Fræðslunetinu í byrjun árs 2014 stækkaði starfssvæði Fræðslunetsins til muna og er nú stærsta starfssvæði símenntunarstöðvar á Íslandi. Á þessu stóra svæði eru ýmsar strjálar byggðir og sú staðreynd kallar á breytta hugsun og ný vinnubrögð. Fræðslunetið hefur verið að þróa fjarkennslu til að minnka flutninga og ferðalög námsmanna og kennara. Fjarkennsla í gegnum fjarkennslubúnað og tölvutengd fjarkennsla með upptökum á kennslu og fyrirlestrum er orðinn snar þáttur í starfinu. Upptaka á kennslu gefur nemendum kost á að „sækja tíma“ þegar þeim hentar. Þá hafa Fræðslunetið og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum átt samstarf um fjarkennslu og þannig getað aukið námsframboð á báðum svæðum.

Fjölbreytt þróunarverkefni Einn er sá þáttur í starfi Fræðslunetsins sem ekki hefur farið hátt en það eru þróunarverkefni af ýmsu tagi. Allt of langt mál yrði að telja þau öll upp hér en þau hafa í stórum dráttum snúist um að þróa nýtt nám og tilraunakenna til að mæta fjölbreyttum þörfum fólks og atvinnulífs. Styrkir til þróunarverkefna hafa einkum komið úr Þróunarsjóði framhaldsfræðslu og frá menntamálaráðuneytinu. Þróunarstarfi af þessu tagi verður haldið áfram. Hægt er að kynna sér verkefnin á heimasíðu Fræðslunetsins.

Staða 25 ára og eldri Stjórnvöld hafa nýlega markað þá stefnu í skólamálum að námsmönnum 25 ára og eldri verði ætlað að sækja bóknám hjá öðrum fræðsluaðilum en framhaldsskólum. Símenntunarstöðvum verði m.a. ætlað það hlutverk að sinna námsþörfum þessa hóps námsmanna. Fræðslunetið mun auðvitað axla þá ábyrgð og er áhugasömum bent á að afla sér frekari upplýsinga hjá Fræðslunetinu. Fræðslunetið óskar Sunnlendingum farsældar á nýju ári. Ásm. Sverrir Pálsson

Innritun í síma 560 2030 eða á www.fraedslunet.is

3


4

Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi - námsvísir vorönn 2015


Starfsfólk Fræðslunetsins

Áslaug Einarsdóttir, verkefnastjóri Vík

Ásmundur Sverrir Pálsson, framkvæmdastjóri

Eydís Katla Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi og verkefnastjóri

Nína Sibyl Birgisdóttir, verkefnastjóri Höfn

Margrét Gauja Magnúsdóttir, verkefnastjóri Höfn

Oddný Sigríður Gísladóttir, stuðningsfulltrúi og móttaka

Rakel Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri

Sandra D. Gunnarsdóttir, verkefnastjóri

Sigríður Erna Kristinsdóttir, ræstitæknir

Sólveig R. Kristinsdóttir, náms- og starfsráðgjafi og verkefnastjóri

Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir, verkefnastjóri Hvolsvelli

Árdís Óskarsdóttir, ritari og móttaka

Innritun í síma 560 2030 eða á www.fraedslunet.is

5


Námsbrautir FA Fyrirhugað er að halda eftirfarandi námsbrautir á vorönn 2015. Þær eru viðurkenndar af mennta- og menningarmálaráðuneytinu og má meta til (f)eininga á framhaldsskólastigi. Námslýsingar má sjá á vef FA http://frae.is. Námsbrautirnar eru fyrst og fremst hugsaðar fyrir fullorðna sem hafa litla grunnmenntun og eru jafnframt viðurkennd úrræði fyrir atvinnuleitendur og fólk í starfsendurhæfingu. Lögð er áhersla á að hægt sé að stunda námið með vinnu, að kennsluhættir henti fullorðnum, að námið sé hagnýtt og í takt við þarfir námsmanna og atvinnulífs. Allar nánari upplýsingar um innihald námsbrautanna, tímasetningar o.fl. eru veittar í síma 560 2030. Námsbrautirnar njóta framlags Fræðslusjóðs og eru þess vegna á afar hagstæðu verði. Starfsmenntasjóðir styrkja einnig þátttakendur. Tímasetningar verða auglýstar nánar á: http://fraedslunet.is

Landnemaskóli, Þorlákshöfn

Félagsliðabrú, Selfossi

Fagnámskeið II - 60 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Fræðslunetið Hvolsvelli Síðdegis, nánar auglýst síðar Ýmsir 13.000

HVOLSVÖLLUR Ætlað ófaglærðu starfsfólki í heilbrigðis– og félagsþjónustu. Námsþættir: skyndihjálp, líkamsbeiting, sálfræði, samskipti, hreinlæti, smit, smitleiðir, sýkingar, mataræði, þjónustu– lund og sálræn skyndihjálp. Námið er sjálfstætt framhald af Fagnámskeiði I.

Fagnámskeið starfsmanna leikskóla - 210 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Fjölheimar, Selfossi Í samráði við leikskólana Ýmsir 41.000

Er ætlað þeim sem starfa við umönnun leikskólabarna og eru ófaglærðir. Námið er fullnægjandi undirbúningur fyrir nám á leikskólaliðabrú.

Grunnnámskeið fyrir fiskvinnslufólk - 60 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

6

Þorlákshöfn og/eða Höfn Í samráði við fiskvinnslufyrirtæki Ýmsir 12.000

SELFOSS

ÞORLÁKSHÖFN OG HÖFN

Námið er ætlað fólki sem starfar við fiskvinnslu, og við verkun og vinnslu sjávarafla, frystingu, söltun, skreiðarverkun og rækju- og skelvinnslu. Markmiðið er að auka þekkingu starfsmanna á vinnslu sjávarafla, efla sjálfstraust og styrkja faglega hæfni.

Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi - námsvísir vorönn 2015


Námsbrautir FA Grunnmenntaskólinn - 300 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Nýheimar, Höfn Síðdegis, nánar auglýst síðar Ýmsir 58.000

HÖFN Ætlað þeim sem vilja hefja nám að nýju og/ eða styrkja sig í grunnfögum eins og íslensku, stærðfræði, ensku, upplýsingatækni og námstækni.

Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum - 300 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Fjölheimar Selfossi Síðdegis, nánar auglýst síðar Ýmsir 58.000

Hentar þeim sem vilja hefja nám að nýju og styrkja sig í grunnáföngum í íslensku, ensku, dönsku og stærðfræði. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám. Danska og stærðfræði verða kennd á vorönn.

Opin smiðja - 120 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Höfn eða Selfossi Fylgist með á http://fraedslunet.is Ýmsir 28.000

HÖFN OG/EÐA SELFOSS Opin smiðja er verkleg námsbraut. Ýmsar smiðjur hafa verið haldnar hjá Fræðslunetinu, s.s. kvikmyndasmiðja, hljóðsmiðja, málmsmiðja, hönnunarsmiðja og umhverfissmiðja.

Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun - 60 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Fjölheimar, Selfossi Síðdegis, nánar auglýst síðar Ýmsir 12.000

Hvenær Leiðbeinandi Verð

SELFOSS

Er sérstaklega ætlað þeim sem eiga erfitt með að lesa eða skrifa. Lögð er áhersla á hvernig hægt er að nýta tölvutæknina til hjálpar við lestur og ritun. Námið er góður undanfari fyrir þá sem eru að huga að frekara námi eða vilja styrkja sig í lestri og ritun.

Sölu-, markaðs- og rekstrarnám - 273 klukkustundir Hvar

SELFOSS

Fjölheimar Selfossi og dreifnám Síðdegis, nánar auglýst síðar Ýmsir 80.000

nýtt

DREIFNÁM

Ætlað þeim sem vilja starfa við sölu- og markaðsstörf eða stofna til eigin reksturs og vilja auka hæfni sína og bæta við sig lykilfærni á sviði sölu,- markaðs-, og rekstrarmála. Námið fer fram á vorönn og haustönn 2015.

Upplýsingar, ráðgjöf og raunfærnimat Hjá Fræðslunetinu starfa þær Eydís Katla Guðmundsdóttir og Sólveig Ragnheiður Kristinsdóttir náms- og starfsráðgjafar. Þær annast ráðgjöf og raunfærnimat og bjóða þig velkominn.

Tímapantanir í síma 560 2030 eða á fraedslunet@fraedslunet.is Innritun í síma 560 2030 eða á www.fraedslunet.is

7


Tungumál Íslenska I-V Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Icelandic level I-V - 60 stundir

VÍÐA Á SUÐURLANDI

Höfn, Klaustur, Vík, Hvolsvöllur, Flúðir, Reykholt, Selfoss

Icelandic courses will be held according to

Kennt síðdegis, tvisvar í viku

numbers of participants. Courses will start in

Ýmsir 37.700 + námsbók 4.300

January. To sign up icelandic id-number (kennitala) is needed. Íslenskunámskeið verða haldin á þeim stöðum þar sem næg þátttaka fæst. Kennt er tvisvar í viku. Miðað er við a.m.k. 80% viðveru til að ljúka námskeiði.

Enska með áherslu á ferðalög og þjónustu - 24 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Fjölheimar, Selfossi Mánudagar 9. febrúar - 30. mars kl. 18-20.10 Leifur Viðarsson, kennari 28.100

Norska 1 - 30 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Fjölheimar, Selfossi Miðvikudagar 21. jan. - 25. mars kl. 18-20.10 Einar Sveinn Árnason, kennari 35.100 + námsefni

Spænska 1 - 24 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

8

Fjölheimar, Selfossi Mánudagar 26. janúar - 16. mars kl. 18-20.10 Kristín Arna Bragadóttir, kennari 28.100

nýtt

SELFOSS

Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa litla kunnáttu í ensku og starfa við þjónustu, t.d. ferðaþjónustu, eða hafa ánægju af ferðalögum til útlanda og vilja geta notað ensku til að bjarga sér. Því er lögð áhersla á orðaforða sem tengist ferðamennsku, þjónustu og ferðalögum.

SELFOSS Námskeiðið er ætlað þeim sem kunna lítið eða ekkert í norsku. Markmiðið er að þátttakendur geti bjargað sér á málinu, bæði munnlega og skriflega. Unnið verður með orðaforða, grunnþætti málfræðinnar, lestur, tal, framburð og ritun.

SELFOSS Markmiðið er að byggja upp grunnorðaforða og þjálfa framburð. Lögð er áhersla á að þátttakendur geti sagt og skilið algengar setningar. Ætlað byrjendum eða þeim sem litla undirstöðu hafa í spænsku. Megináhersla er lögð á talmál og hlustun.

Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi - námsvísir vorönn 2015


Tölvur Tölvur (UTN103) - 36 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Fjölheimar, Selfossi Þri. og fim. 17. feb. -17. mars kl. 18-20.50 Leifur Viðarsson, kennari 56.000

SELFOSS

nýtt

Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem vinna við skrifstofustörf og nota algengustu forrit við vinnu sína. Einnig fyrir þá sem vilja efla almenna tölvuþekkingu sína. Farið er yfir helstu þætti Office-forritanna, s.s. Word, Excel og Powerpoint, skjalavörslu o.fl. Þátttakendur öðlast aukna færni í tölvunotkun. Sambærilegt við framhaldsskólaáfangann UTN 103.

Snjalltæki og tölvur til hjálpar við lestur og ritun - 10 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Fjölheimar, Selfossi Mánud. og fimmtud. 2. og. 5. mars kl. 17.30-21.10 Snævar Guðmundsson, framkvæmdastjóri FLÍ 15.300

SELFOSS

nýtt

Á námskeiðinu eru helstu kostir snjallsíma og spjaldtölva kynntir og hvernig nýta má tæknina til að öðlast aukna færni í lestri og ritun. Kynntir eru skjálesarar (talgervlar) og fleiri tæki og tól sem gagnast þeim sem eiga við lestrar– eða ritunarörðugleika að etja. Ekki er hægt að nota snjalltæki frá Apple á námskeiðinu en þeir sem eiga fartölvur geta komið með þær og fá þá settan upp hugbúnað sem nýtist í þessu skyni.

Tölvur I - 15 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

REYKHOLT

Bláskógaskóli, Reykholti

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa afar litla

Mánud. og miðvikud. 9. - 23. febrúar kl. 17-19.10

eða enga reynslu af tölvunotkun. Farið er í

Agla Snorradóttir, kennari

undirstöðuatriði tölvunnar og hvernig hún

24.200

vinnur. Aðaláhersla er lögð á að gera þátttakendur færa um að nota netið og samskiptavefi, s.s. tölvupóst og Facebook. Einnig er farið í byrjunaratriði í ritvinnslu.

Facebook fyrir eldra fólk - 6 stundir Hvar Hvenær

Kötlusetur og Kirkjubæjarstofa Mánud. og miðvikud. 9.-11.feb. kl. 20-22.10 (Vík) Mánud. og miðvikud. 16.-18.feb. kl. 20-22.10 (Klaustur)

Leiðbeinandi Verð

Ívar Páll Bjartmarsson 10.900

Innritun í síma 560 2030 eða á www.fraedslunet.is

VÍK OG

KLAUSTUR

Allir geta notað Facebook á auðveldan hátt. Á námskeiðinu stofna þátttakendur Facebooksíðu og kennt er hvernig hægt er að finna gamla vini og tengjast vinum og ættingjum á þennan skemmtilega máta. Kennt er að setja inn athugasemdir, myndir og tengla og hvernig hægt er að fylgjast með því sem aðrir eru að gera á Facebook.

9


Handverk og hönnun Blómasería - 8 stundir Hvar Hvenær

REYKHOLT OG SELFOSS

Fjölheimar, Selfossi og Bláskógaskóli, Reykholti Þri. og fim. 17. og 19. febrúar kl. 18-20.50 (Reykholt) Þri. og fim. 17. og 19. mars kl. 18-20.50 (Selfoss)

Leiðbeinandi Verð

Olga E. Guðmundsdóttir 11.300

Á námskeiðinu er gerð sería með fallegum nælonsokkablómum. Þátttakendur geta valið sér efni með líflegum og fallegum litum. Miðað er við að serían sé fullkláruð á námskeiðinu. Þátttakendur koma með skæri; önnur áhöld/ tæki og allt efni á staðnum.

Handmálun og spaði I - 5 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

REYKHOLT

Bláskógaskóli, Reykholti

Unnið verður með olíu á striga. Þátttakendur fá

Miðvikudagur 25. mars kl. 18-21.30 (Reykholt)

að spreyta sig og skapa sína eigin mynd. Að

Þorbjörg Óskarsdóttir (Tobba listamaður)

loknu námskeiði fara þátttakendur heim með fullunnið málverk að stærð 80x20. Allt efni er

13.900, allt efni innifalið í verði

innifalið bæði litir og blindrammar á striga. Hentar bæði vönum og óvönum.

Handmálun og spaði III - 10 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

SELFOSS OG HVOLSVÖLLUR

Fjölheimar, Selfossi og Fræðslunetið Hvolsvelli

Tveggja kvölda námskeið þar sem unnið er

Mán. og mið. 23. og 25. feb. kl. 18-21.30 (Selfoss)

með olíu og kol á striga með spaða og

Mán. og mið. 16. og 18. mars kl. 18-21.30 (Hvolsvöllur)

fingrum. Þátttakendur gera tvö málverk sem

Þorbjörg Óskarsdóttir (Tobba listamaður) 19.900, allt efni innifalið í verði

Málmsmíði - 12 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

SELFOSS

Hamar verkmenntahús FSu, Selfossi Þriðjudagar og fimmtudagur 10. –17. feb. kl. 18-20.50 Borgþór Helgason, framhaldsskólakennari 34.900 + efniskostnaður

Tálgunarámskeið - 12 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

10

eru sett saman.

SELFOSS

Fjölheimar, Selfossi Fimmtudagar 19. febrúar - 12. mars kl. 17.30-19.40 Hafþór Ragnar Þórhallsson, myndmenntakennari 24.800

Smíðaður er hlutur að eigin vali, t.d. eldrós eða kertastjaki. Farið verður yfir MIG-suðu, logsuðu og logskurð. Ennig farið yfir borun, sögun og klippingu á stáli. Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að hafa lært helstu aðferðir við að smíða úr málmi undir leiðsögn meistara.

Námskeiðið er bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Lagt verður upp með að prófa mismunandi efni og aðferðir og yfirborðsmeðferð. Að loknu námskeiði fara þátttakendur heim með fullunna hluti. Efni er innifalið. Tálgunarhnífar seldir á staðnum.

Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi - námsvísir vorönn 2015


Handverk og hönnun Jurtalitun - 9 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Vöruhúsið, Höfn Laugardagur 30. maí kl. 9-16 Guðrún Bjarnadóttir (Hespuhúsinu) 18.900

Þjóðbúningasaumur - 50 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Vöruhúsið, Höfn 25. apríl - 6. júní (sjá nánar: http://fraedslunet.is) Guðrún Hildur Rosenkjær, klæðskera- og kjólameistari 180.000 auk efniskostnaðar

Fornar ísaumsaðferðir - 4 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Bláskógaskóli Reykholti Fimmtudagur 12. mars kl. 18.30-21.20 Gunnhildur Edda Kristjánsdóttir og Christina Bengtson Efniskostnaður (handavinnupakki) er greiddur á staðnum frá kr. 4.000 Sjá nánar: http://njalurefill.is

Innritun í síma 560 2030 eða á www.fraedslunet.is

nýtt

HÖFN

Á námskeiðinu verður farið yfir jurtalitunarferlið frá upphafi til enda. Jurtir tíndar, settar í pott, litað og þurrkað. Einnig verður farið yfir hvernig hægt er að litfesta og breyta litum með aðstoð efnafræði. Litað verður úr kaktuslús og indígó en indígó er erlend jurt sem gefur blátt. Þátttakendur fá kennsluhefti með prufum og velja sér eina hespu til að taka með heim.

HÖFN Þátttakendur sauma upphlut, pils, skyrtu, svuntu, belti og setja saman húfu. Kennsla fer fram fjórar helgar, aðra hverja helgi svo tækifæri gefist til heimavinnu. Þátttakendur mæta eitt skipti áður en saumaskapur hefst til mælinga.

REYKHOLT Á námskeiðinu verða kenndar aldagamlar aðferðir við útsaum, s.s. refilsaumur, varpleggur (kontórstingur) og flatsaumur. Þátttakendur greiða ekkert þátttökugjald en á staðnum verða seldir handavinnupakkar með myndum úr Njálureflinum. Ef þátttakendur eiga útsaumshring (bróderhring) er gott að hafa hann meðferðis.

11


12

Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi - námsvísir vorönn 2015


Matreiðsla og heilsa Kökuskreytingar með sykurmassa - 5 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Fjölheimar, Selfossi Þriðjudagur 3. mars kl. 18-21.30 Sverrir Jón Einarsson 9.900

Kransakökugerð - 5 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Fjölheimar, Selfossi Fimmtudagur 12. mars kl. 18-21.30 Bergur T. Sigurjónsson, bakari 9.900

nýtt

Á námskeiðinu er kennt að gera sykurmassaskreytingar sem henta fyrir ýmis tækifæri, s.s. afmæli, fermingar o.fl. Á námskeiðinu er farið yfir helstu áhöld og hráefni sem notuð eru og hvernig best er að vinna með sykurmassann. Leiðbeinandi býr til sykurmassa og skreytir köku til að sýna réttu handtökin. Þátttakendur útbúa sykurmassa og hver og einn þekur og skreytir litla köku.

nýtt

Hvenær Leiðbeinandi Verð

Kennslueldhús Hvolsskóla, Hvolsvelli Fimmtudagur 12. mars kl. 18-21.30 María Krista Hreiðarsdóttir 14.000

Ostagerð - 9 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Eldhúsið Heppuskóla Laugardagur 7. febrúar kl. 10 -17 Þórarinn Egill Sveinsson, mjólkurverkfræðingur 15.900, ostagerðarbókin innifalin

SELFOSS

Farið verður í alla þætti kransakökugerðar; deig, mótun, bökun, uppsetningu og skreytingar. Allir gera sína köku og taka með heim.

Sykur-, ger– og glútenlaus matargerð - 5 stundir Hvar

SELFOSS

HVOLSVÖLLUR

Á námskeiðinu verða útbúnir einfaldir og góðir smáréttir sem henta bæði í veisluna sem meðlæti og einnig sem heilar máltíðir. Útbúnir verða 12-14 réttir sem snæddir verða í lokin. Sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. Uppskriftir að öllum réttum fylgja með.

nýtt

HÖFN

Á námskeiðinu verður farið í einstaka þætti ostaframleiðslu. Framleiðsla ýmissa ostategunda skoðuð til að kynnast mismunandi vinnsluaðferðum, t.d. á skyri, brauðosti, gráðaosti og smurostum. Sýnikennsla og verklegar tilraunir gerðar með einfalda framleiðslu. Farið yfir heimaframleiðslu í samanburði við hefðbundna mjólkurvinnslu. Rætt ýtarlega um tæki, tól og aðstöðu sem þarf fyrir hverja ostategund.

Frá námskeiðinu Sykur-, ger- og glútenlaus matargerð. Innritun í síma 560 2030 eða á www.fraedslunet.is

13


RANGÁRÞING YTRA

RANGÁRÞING EYSTRA

14

Sveitarfélagið Ölfus

Ásahreppur

Skeiða- og Gnúpverjahreppur

Bláskógabyggð

S KAFTÁRHREPPUR

Mýrdalshreppur

Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi - námsvísir vorönn 2015


Ýmis námskeið Var stuð á landnámsöld? -12 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Fjölheimar, Selfossi Fimmtudagar 5.-26. febrúar kl. 19-21.10 Margrét Hallmundsdóttir, fornleifafræðingur 16.900

Landnám í Hornafirði - 4 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Nýheimar, Höfn Apríl (sjá nánar http://fraedslunet.is) Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur 6.000

Vináttufærniþjálfun - 9 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

SELFOSS

nýtt

Fjallað verður um landnám á Íslandi og lífið á landnámsöld, hverjir settust að og hvenær, trú og grafsiði, lífið í skálunum, verkmenningu, verslun, stéttaskiptingu, þing o.fl.

HÖFN

nýtt

Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur og forstöðumaður Hornafjarðarsafna fjallar um fyrstu landnemana við Hornafjörð og mikilvægi svæðisins í uppbygginu lands og þjóðar.

SELFOSS

nýtt

Fjölheimar, Selfossi

Námskeið fyrir foreldra

Laugardagur 28. febrúar kl. 9-16

Vinátta er mjög mikilvæg fyrir börn; þroskar þau á ýmsan máta, ásamt því að vera verndandi gegn einelti. Sum börn eiga erfitt með að eignast vini og halda þeim.

Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor 27.000

Þátttakendur fá þjálfun og fræðslu um hvernig þeir geta leiðbeint börnum sínum í vináttufærni og félagslegum samskiptum.

Draumar og drekar -18 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Fjölheimar, Selfossi Miðvikudagar 11. mars - 15. apríl, kl. 13-15.30 Katrín Garðarsdóttir, ráðgjafi 26.600

SELFOSS Á námskeiðinu finnum við týnda drauma og beinum í farveg. Endurnýjum vonina og möguleikann á að láta draumana rætast. Kynnumst drekunum, ástæðunni fyrir því að við gefum drauma okkar upp á bátinn. Við lærum að þekkja okkar persónulegu dreka sem virka sem óyfirstíganleg hindrun. Sá sem skilur eðli drekans hræðist hann ekki og við það missir hann mátt sinn. Þá stendur ekkert í veginum og draumar geta ræst.

Er frábært að eiga ungling árið 2015? - 3 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

nýtt

HÖFN

Nýheimar, Höfn

Námskeið fyrir foreldra

Miðvikudagur 11. mars kl. 20-22

Margrét Gauja uppeldis- og menntunarfræðingur fer yfir unglingsárin, við hverju má búast og hvað það er sem setur stundum hlutina úr jafnvægi.

Margrét Gauja Magnúsdóttir, uppeldisfræðingur Í boði Fræðslunetsins

Innritun í síma 560 2030 eða á www.fraedslunet.is

15


Ýmis námskeið Nýtt ár, nýir tímar -20 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

nýtt

Fjölheimar, Selfossi

Hagsæld og hindranir

Miðvikudagar 21. janúar - 18. febrúar kl. 18-20.50

Gerðu árið að þínu besta hingað til. Kenndar eru þrautreyndar aðferðir til að fá meira út úr lífi sínu, finna dauma sína, uppgötva hindranir og læra að sigrast á þeim. Læra að setja sér markmið og hvernig hægt er að láta drauma sína rætast.

Jón Bjarni Bjarnason, markþjálfi 29.500

Úr skuldum í jafnvægi - 18 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

SELFOSS

Fjölheimar, Selfossi

Námskeið ætlað þeim sem hafa hug á að endurskipuleggja fjárhaginn. Fjallað er um hvað hver og einn þarf að tileinka sér í hugsun og hegðun til að fjármálin séu í lagi. Fjallað er um hvernig bágri stöðu er komið í jafnvægi og hvernig vaxa má þaðan. Farið er yfir helstu hindranir og vinnuaðferðir til að ná árangri. Sjá nánar á http://fraedslunet.is

Miðvikudagar 4. febrúar - 4. mars kl. 13.15-15.45 Katrín Garðarsdóttir, ráðgjafi 33.600

Að ná fram því besta með ADHD -18 stundir Hvar

Fjölheimar, Selfossi

Hvenær

Föstudagar 17. apríl - 22. maí kl. 13-15.40

Leiðbeinandi

Sigríður Jónsdóttir, markþjálfi og ráðgjafi

Verð

26.600

Hleðsla riffilskota -10 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

16

SELFOSS

Nýheimar, Höfn Laugardagur 14. febrúar kl. 9 -17 Bjarni Þór Haraldsson 18.000

nýtt

SELFOSS

Farið verður yfir aðferðir til að efla einbeitingu. Einnig fjallað um hvernig hægt er að bæta ýmsa þætti, s.s. mataræði og svefn og mikilvægi réttra bætiefna. Þá verður fjallað um hvaða leiðir henta best til að læra og stuðla að framförum í námi. Farið verður yfir stöðu hvers og eins og hvaða fyrirstöður standa í vegi okkar til að ná árangri.

nýtt

HÖFN

Farið er yfir helstu aðferðir við hleðslu riffilskota og öryggisreglur. Námskeiðið er bóklegt og verklegt. Mikil áhersla verður lögð á verklega hlutann og að tryggja það að þátttakendur öðlist færni og sjálfstraust í endurhleðslu. Samkvæmt skotvopnalögum er þátttaka í slíku námskeiði forsenda þess að fá leyfi til að hlaða riffilskot og til þess að kaupa efni til endurhleðslu. Þátttakendur verða að hafa B-skotvopnaréttindi til að taka þátt í námskeiðinu og framvísa þeim fyrir námskeið. Námskeiðið veitir E-skotvopnaréttindi.

Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi - námsvísir vorönn 2015


Ýmis námskeið Lífsstíll og tímastjórnun í námi - 6 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Nýheimar, Höfn Apríl (sjá nánar http://fraedslunet.is) Pétur Maack, sálfræðingur 22.500

Trjáklippingar - 5 stundir Hvar Hvenær Leiðbeinandi Verð

Nýheimar, Höfn Laugardagur 7. mars kl. 10 -14 Davíð Arnar Stefánsson, garðyrkjufræðingur

nýtt

Markmiðið er að aðstoða þátttakendur við að skipuleggja tíma sinn með það fyrir augum að draga úr streitu, bæta námsárangur og auka lífsgæði í námi. Fjallað verður um mikilvægi lífsstíls fyrir andlega og líkamlega líðan. Kenndar verða árangursríkar leiðir í tímastjórnun til að draga úr frestun, minnka fullkomnunaráráttu og auka sjálfsöryggi.

nýtt

Hvenær

7.900

Kötlusetur og Kirkjubæjarstofa Mán. og mið. 23. og 25. feb. kl. 20:00 - 22:10 (Vík) Mán. og mið. 2. og 4. mars kl. 20:00 - 22:10 (Klaustur)

Leiðbeinandi Verð

HÖFN

Kennt er hvernig best er að bera sig að við trjáklippingar, hvaða tré og runna þarf að klippa og hvenær er best að gera það.

Betri fjölskyldumyndir - 6 stundir Hvar

HÖFN

Birgir Sigurðsson 10.900

VÍK OG KLAUSTUR Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa hug á að taka betri myndir fyrir fjölskyldualbúmið. Farið er yfir grunn í myndbyggingu, lýsingu og helstu stillingar á myndavélum. Þátttakendur þurfa að koma með eigin myndavélar, ekki skiptir máli um hverskonar myndavélar er að ræða.

Sjómennt | Ofanleiti 2, 5. hæð (A-hús) | 103 Reykjavík | sími 599 1450 | www.sjomennt.is

Innritun í síma 560 2030 eða á www.fraedslunet.is

17


Námskeið í samstarfi við: Námskeiðin eru sérstaklega ætluð fólki með skerta náms- og/eða starfsfærni. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á www.netmennt.com og þar er einnig hægt að sækja um. Að auki er hægt að hafa samband við Rakel til að fá ráðgjöf eða aðstoð við að sækja um námskeið. Sími: 560-2030 og 852-1655 | netfang: rakel@fraedslunet.is Fleiri námskeið verða skipulögð á vorönn sem verða haldin í Vík og á Höfn.

Námskeið

18

Dagar

Vikur

Staður

Skynjun, virkni og vellíðan með tónlist

Mánudagar og þriðjudagar

10

Fjölheimar

Tölva, einstaklingsmiðað nám

Mánudagar og þriðjudagar

10

Fjölheimar

Hollur og góður heimilismatur

Mánudagar og þriðjudagar

10

Fjölheimar

Myndlist

Mánudagar og fimmtudagar

8

Fjölheimar

Skyndihjálp

Þriðjudagar

3

Sólheimar

8

Fjölheimar og Sólheimar

iPad

Þriðjudagar og miðvikudagar

Rofar og umhverfisstjórnun

Fimmtudagar

10

Fjölheimar

Bökum og dönsum

Fimmtudagar

10

Fjölheimar

Textílhönnun I og II

Fimmtudagar

10

Fjölheimar

Mál og tjáning

Fimmtudagar

10

Fjölheimar

Íslenska

Miðvikudagar og fimmtudagar

10

Fjölheimar

Tónlist, söngur og hljóðfæri

Miðvikudagar og fimmtudagar

8

Tónsmiðjan

Fræðslunetið - símenntun á Suðurlandi - námsvísir vorönn 2015


Námskeið fyrir sjúkraliða Hjúkrun sjúklinga með andlega vanlíðan vegna sjúkdóma Hvar Hvenær Leiðbeinandi

Fjölheimar, Selfossi Sjá: http://fraedslunet.is Margrét Blöndal, hjúkrunarfræðingur og sjálfstætt starfandi meðferðaraðili í sálrænni meðferð

Lengd Námsmat Verð

10 stundir 100% mæting og virk þátttaka 22.000

Að leysa ágreining á uppbyggilegan hátt Hvar Hvenær Leiðbeinandi

Fjölheimar, Selfossi Sjá: http://fraedslunet.is Ágústa Jóhannsdóttir, ráðgjafi hjá Fjölskyldumiðstöð Reykjavíkur, framhaldsskólakennari, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir

Lengd Námsmat Verð

20 stundir 100% mæting og virk þátttaka 27.000

Innritun í síma 560 2030 eða á www.fraedslunet.is

nýtt

SELFOSS

Markmið: Að öðlast færni í að meta sálræna vanlíðan skjólstæðinga og hvernig best sé að koma til móts við mismunandi þarfir þeirra. Lýsing: Við hjúkrun mikið veikra einstaklinga komast sjúkraliðar oft í kynni við sálræna vanlíðan skjólstæðinga sinna. Farið verður yfir mikilvæg atriði sem hafa þarf í huga við hjúkrun og í samskiptum við einstaklinga með sálræna vanlíðan. Hópvinna og umræður með dæmum. Fjallað verður um: Sálræna vanlíðan skjólstæðinga vegna sjúkdóma eða áfalla. Mikilvæg atriði í mati á sálrænni vanlíðan. Leiðir í samskiptum og hjúkrun til að mæta sálrænum þörfum skjólstæðinga.

nýtt

SELFOSS

Markmið: Að efla tjáningarhæfni og að öðlast meira öryggi og trú á eigin getu í samskiptum. Að öðlast færni í að leysa ágreining af auknu öryggi og þekkja leiðir til að auka vinnugleði. Áhersla er lögð á sjálfsstyrkingu, að finna styrkleika sína og efla þá. Lýsing: Fjallað verður um samskipti og boðleiðir, s.s. viðbrögð við álagi, starfsgleði og styrkleika. Farið verður í viðtalstækni og boðgreiningu. Lögð verður áhersla á umræðu og hópvinnu.

19


Kynnið ykkur fjölbreytt námsframboð, úrval námskeiða, ráðgjöf og þjónustu.

           

Einingabært nám

og fleira

Bóklegar greinar Smiðjur Raunfærnimat Ráðgjöf Fyrirtækjaþjónusta

Fræðsluerindi Tungumál Tölvur Matreiðsla Hugur og heilsa Handverk og hönnun

http://fraedslunet.is

Fræðslunetið Símenntun á Suðurlandi


Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.