Jóla-Arthúr

Page 1

ARTHÚR Fréttabréf Round Table Ísland – Desember 2021

Gunnar A. Njáll Gunnarsson - Ritstjóri RTÍ skrifar Heilir og sælir vinir, bræður og félagar.

Það er mér sannur heiður að fá að gefa út mitt fyrsta Arthúr blað

sem ég innilega vona að menn hafi gagn og gaman af. Ekki gét ég kvartað yfir efnisleysi í okkar ágæta fréttabréf, því gott sem allir þeir sem ég leitaði til varðandi efni í jóla-Arthúr voru meira enn boðnir og búnir til aðstoða, hvort sem það voru nýliðakynningar, sögur eða létt innslög – Bestu þakkir. Raunin varð sú að ég kem varla meir fyrir í þetta sinn, sem er algert lúxusvandamál. Annar lúxus sem ég bý yfir er að hafa tekið við frábæru búi af síðasta ritstjóra, enn hans vinna er algerlega ómetanleg hvort sem fyrir fréttabréfið sjálft eða þau ótal verkefni sem hann tók að sér fyrir hreyfinguna. Hef ekki enn komið að tómum kofanum þar. Takk Mr. Table world ! (Danni) Þegar ég bauð mig fram í embætti ritstjóra var ég strax nokkuð ákveðin í því að sjónarhorn nýliðana okkar innan hreyfingarinnar þyrfti að líta dagins ljós. Málið er að við erum misjöfn eins og við erum mörg. Þá er margir misviljugir að koma sér á framfæri þrátt fyrir þau mörgu tækifæri sem bjóðast innan Round Table, en undir niðri geta menn verið smá feimnir fyrst um sinn – Þá er um að gera að brjóta ísinn með léttri kynningu á sjálfum sér. Má líta á þetta sem fyrstu skrefin innan RTÍ. Vona ég því innilega að nýliðar sækist í að komast í þessa kynningu sem Arthúr hefur upp á að bjóða því það er aldrei að vita að það sé einhver með nákvæmlega sama skrítna áhugamál og þú, já eða „Hvað ertu að segja, ertu upprunalega frá einskinsmannsstöðum í fjarskafirði....Hey!...við erum þá náfrændur“ ;) Einnig er ekki vitlaust fyrir formenn klúbba að koma sínum nýju mönnum á framfæri með þessum kost og skora ég á þá að kynna þeim þennan valmöguleika og bind miklar vonir við að þessi liður verði einskonar hefð ef vel tekst til – Verður allavega fastur liður á meðan ég fæ að hamra á lyklaborðið. Hlakka til að fá að birta þær sögur næstu árin sem þið sem þið búið yfir. Þrátt fyrir að urmull að efni sé klárt fyrir

næsta blað þá er ég alltaf til í að birta góða sögu, hvort sem það er eitthvað á döfinni hjá tilteknum klúbb (viðburð), pepp fyrir næsta fulltrúaráðsfund, ferðasögur, Old Tablers með sína hlið á framhaldslífi eða bara hvað sem mönnum dettur í hug....boltinn er hjá ykkur! Hafið það sem allra best yfir komandi hátíð. Njótið stunda með fjölskyldunni, ræktum sjálfa okkur og hugum að þeim sem minna mega sín.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.