Nýliðakynning
Benedikt Kristján Magnússon, RT-12
Ég er alinn upp í Grafarvogi þar sem foreldrar mínir voru einir af frumbyggjunum. Yngstur í fjölskyldunni og á tvær eldri systur sem pössuðu vel upp á kenna mér á lífið, eldhústækin, ryksugur og þvottavélar. Allt hlutir sem ég er gríðarlega þakklátur fyrir í dag.
Æskuárin fóru mest í harmóníkuleik í Tónlistarskóla Grafarvogs. Önnur áhugamál eru fréttir og samfélagsmál þá einkum tengd orku og umhverfi. En í dag starfa ég einmitt í orkugeiranum.
Eftir góð ár í Vélskólanum flutti ég til Kaupmannahafnar í frekara nám. Í Danmörku kynntist ég dönskum matarvenjum og í dag er ég alveg forfallin fyrir góðu smørrebrød helst með einhverju fiskmeti. Ekki verra ef góður snafs er í boði með síldinni. Í dag er ég 33 ára, giftur, á þrjár litlar prinsessur og búsettur í Garðabæ. Ég heyrði fyrst af Round Table í gegnum góðan vinnufélaga minn Guðjón Hugberg Björnsson sem nú er formaður RT-12. Ég mætti á minn fyrsta fund í október 2021 þar sem félagi úr klúbbnum kynnti úrval af sterkum chili sósum fyrir hinum. Undirritaður gafst upp snemma í ferlinu en í stuttu máli felldum við allir tár þetta kvöldið, djúpt snortnir af asískri matargerð.
Á fyrsta fundi er manni tekið eins og gömlum vin og stemningin á fundum er einstök. Eins og gildin okkar að tileinka-aðlaga-bæta er markmiðið ávallt að útvíkka sjónsviðið og fara út fyrir þægindaramman. Eitt af því skemmtilega við Round Table er að samtökin starfa ekki bara á landsvísu heldur er heimurinn undir. Á þessum stutta tíma í samtökunum hefur maður myndað tengsl við fjölbreyttan hóp manna víða um landið sem er frábært!
2 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland Desember 2022
Dagskráogskráningferframinná rt9.is
Ferðasaga - Hammerfest 2022
Hvað verður til þess að nokkur fari sjálfviljugur til Hammerfest er spurning sem gjarnan heyrðist eftir að liðinn NEAR fundur var kynntur. Teibl norðan við heimskautsbaug og langt ferðalag gat ekki verið ávísun á annað en góðar móttökur. Við fórum 4 frá Íslandi, þar af tveir fimmumenn. Undirritaður og Daníel Sig lögðum af stað flugleiðina til Reykjavíkur að kvöldi 25. október þar sem við náðum í restina af fyrirtækjakynningu með RT-10. Seinasta heimsókn þeirra var í Blush þar sem boðið var upp á smakk á sleipiefnum og vörukynningu Góðir strákar komu okkur Danna á náttstað á suðurnesjum.
Við lentum í Osló um hádegisbil í þoku og 10°C. Röltum upp Karls Jóhannsstræti og fundum hótelið okkar. Daníel var kunnugur staðháttum í Osló leiddi túristaferð um borgina og enduðum við þetta á ódýrasta bjórnum í borginni en á sama tíma var hægt að sjá norska efnahagsundrið því burritóið var borið fram í gylltum umbúðum. Restin af deginum fór í rólegheit og héldum við snemma í rekkju því morguninn eftir yrði haldið norður. Dagurinn var tekinn snemma, við pökkuðum og fórum í morgunmat. Flugið til Alta var um tveir tímar en á Gardemoen hittum við hann Árna IRO sem átti flug með okkur. Við komuna í Alta stækkaði hópurinn, þar hittum við tvö frá Oslóarsvæðinu og tvo Dani. Rútan okkar til Hammerfest fór ekki fyrr en nokkrum tímum seinna, við fórum því í miðbæinn og fengum okkur mat og bjór.
Vegirnir á Finnmakarsvæðinu eru ekki þeir breiðustu en það skipti litlu máli því við vorum orðnir mjúkir. Ansi áhugavert var að hitta strákana frá Suriname komna alla leið rétt norðan við miðbaug í Suður Ameríku.
Artur vinur okkar tók á móti okkur á hótelinu í Hammerfest en við höfðum kynnst honum á AGM-inu í Pori í Finnlandi vorið áður. Herbergið var ekki stórt en nóg var það. Welcome partíið var haldið á nálægum bar og var kærkomið að hitta heimamenn auk þess að fá fjórða manninn í hópinn okkar. Viddi komst á leiðarenda!
Norðmennirnir höfðu skipulagt mikla og flotta dagskrá sem hentaði flestum. Hvort sem þú vildir pöbbarölt eða njóta náttúrunnar í gönguferð. Ég valdi síðari kostinn. Fjallganga á Tyven uppí rúmlega 400 m. fyrir ofan Hammerfest. Ferðin hófst á hótelinu og rölti hópurinn, misvel útbúinn af stað. Fyrsta stopp var rétt utan við bæjarmörkin, barinn aftan á sex-hjólinu var opnaður. Veðrið var eins og best verður ákosið. Léttskýjað, logn og hitinn rétt undir frostmarki. Landslagið sem við gengum á var ekki ósvipað því hér heima á Íslandi, mýrar, lyng og grjót. Eftir því sem leið á urðu brekkurnar brattari en heppilega vildi til að steintröppur höfðu verið lagðar í þær bröttustu til að auðvelda ferðalagið á hálum klettunum. Uppá topp beið okkar heitur skáli en Finnarnir höfðu á orði að þetta væri flott sána. Skálinn, sem var nýlegur í kúlulaga formi samsettur úr sexhyrndum límtrés einingum með stórum útsýnisglugga. Rúmt var í skálanum og vel veitt af drykkjum til að viðhalda hitanum í kroppnum Heimabruggaði bjórinn þeirra var afbragðsgóður
3 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland Desember 2022
Elvar Freyr Pálsson RT5 skrifar,
Ég vildi vera tímalega í heimferðinni meðan enn var nýr og ógenginn snjór í tröppunum. Ekki vildi betur til en ég endaði í hóp góðra Finna sem á einhverri stundu tók ranga beygju. Ég taldi Finnana heppilega til að villast með, ef einhverjir myndu finna sánu sem enginn vissi af þá voru það þeir. Sú var ekki rauninn en við komumst heilir til byggða. Náðum reyndar ekki matnum með hópnum en eftir sturtu sameinuðumst við í pizzu og bjór á nálægum stað.
Næsta stopp var “The Royal and Ancient Polar Bear Society” hvar við áttum að verða innvígðir. 10 voru teknir inn í einu, hver og einn var látin krjúpa framan við gamalt skipsstýri meðan stúlkan vígði okkur inn hvern á fætur öðrum með rostungstittlingnum sem var enginn smá smíð! Að lokinni vígsluathöfn fengum við lýsi, pinna og skírteini sem tilgreinir aðild okkar. Mitt reyndar varð eftir hjá góðum félaga í Hammerfest, okkar leiðir eiga eftir að leiða saman aftur!
Um kvöldið var veisla að hætti Sama. Boðið var uppá hreindýrapottrétt með tilheyrandi. Virkilega gott! Við tóku hin ýmsu partý víða á hótelinu. Við heilsuðum upp á Danina sem höðu komið sér fyrir á ganginum með púrtvínsflöskuna sína hvar var mikið stuð og vel veitt. Helst til vel. Ég lenti í því óheppilega hlutverki að vera við endann á partýinu, þegar nýjir bættust við hópinn var hellt úr 4,5 lítra púrtvínsflöskunni í pappa kaffimál sem var svo rétt í gegnum mig. Ekki allir þáðu drykkinn, eða voru farnir áður en drykkurinn komst til þeirra Því kom gjarnan í minn hlut að klára það sem var rétt en ég endaði á að drekka 3 kaffibolla af púrtvíni dananna þetta kvöld sem útleggst sem um 15 ára ráðlagður skammtur af púrtvíni. Ég hef sjaldan verið jafn feginn að sjá tóma vínflösku og þegar ég sá þessa flösku tóma daginn eftir.
Þau voru þung fyrstu skrefinn á laugardagsmorgninum en það var byrjað að rigna. Valið þennan daginn stóð á milli þess að fylgjast með fundinum eða taka þátt í Héraleikunum (The Hare´s Games). Ég fékk lánaða lopapeysuna hans Helga Rúnars, peysa sem hafði upplifað mikið teibl. Héraleikarnir voru því tilvaldir í reynslubanka hennar og átti hún eftir að vekja mikla lukku. Haldið var af stað frá hótelinu, yfir Strandgötu og upp brekkuna hvar stígurinn hlykkjaðist upp brattann. Uppi á hæðinni hafði verið komið upp tjöldum og varðeld. Okkur var skipt upp í 5 lið, hópurinn minn byrjaði í heitu tjaldinu hans Knut. Fyrsta verkefnið var að finna nafn á liðið. Við vorum “Team Hammertime”. Knut lagði að auki fyrir okkur spurningar tengdar svæðinu. Ég er ekki viss hvernig okkur tókst upp með þessar spurningar. Hins vegar er ekki mikið um reglur á leikunum og við máttum múta dómörum. Eftir mútugreiðslur til Knut kvöddum við hann og hlýja tjaldið og héldum út í næstu þraut. Hún fólst í því að drekka einn bjór. Fáir betur fallnir til þess heldur en Þjóðverjinn Florian. Til að drekka bjórinn, var sett á hann einskonar “bakpoki” sem kom yfir höfuð hans með tréverki. Í það voru festir spottar, í gegnum spottana var þræddur glasahaldari og þar var bjórinn Með því að toga í spottana átti hann að drekka bjórinn. Verkefnið leysti hann vel af hendi! Mútugreiðslur voru inntar af hendi og haldið á þriðju stöðina. Liðinu var skipt upp í pör, tveir og tveir átti að labba frá A til B og aftur til A með sem minnstum tímamun milli para. Undirritaður telur Team Hammertime hafa unnið þessa þraut! 4. þrautin var ögn snúinn.
4 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland Desember 2022
Við fengum málband og eldivið. Úr honum áttum við að búa til turn. Markmiðið var að hann yrði sem hæstur. Þetta var leyst af miklu öryggi og reyndist turninn vera 6,20 m. Kannski ekki frá jörðu en málbandið sagði það, við fengum jú að mæla turnin sjálf. Loka þrautin var líklega sú erfiðasta en það var hringjakast. Gervilimur var festur á höfuð tveggja liðsmanna, borði lagður á jörðina frá þeim og fékk undirritaður hringi. Ekkert sagði að við mættum ekki færa borðann, við þurftum jú bara að standa við endann. Bilið var ekki mikið en allir hringirnir enduðu á limnum af miklu öryggi. Þetta var loka þrautinn og því hægt að slökkva á keppnisskapinu og njóta Maturinn var farinn að malla á grillinu og voru hreindýrapylsurnar einkar góðar. Það var dýrmæt stund með góðu fólki og drykk í hönd við varðeldinn Við fengum allar gerðir af veðri á leikunum Rigning, sól, haglél og hríð en það skipti hratt um. Þetta var orðinn hressileg snjókoma þegar haldið var heim á leið blautur að innan sem utan og glaður! Lopapeysan vakti ekki svo mikla lukku þegar Danni kom aftur uppá herbergi ásamt sænska vin okkar þar sem hún lá til þerris eftir góðar stundir við varðeldinn í snjókomunni. Nú var okkar fínasta púss dregið fram, þar með talinn rauði RT-5 strengurinn en Gala kvöldið var framundan. Forrétturinn var borinn frá á hörpudisk, reyktur lax í ostrusósu. Aðalrétturinn var lambakóróna með steiktu grænmeti og bernes. Eftir rétturinn var New York ostaterta sem eru yfirleitt ekki góðar, en yfirburðakurteis eins og ég er kláraði ég hana.
Þetta reyndist afar skemmtilegt kvöld! Daníel okkar keypti sér lottómiða af Arturi vin okkar og ekki vildi betur til en hann vann 10 fría drykki á barnum. Það var ekki nóg fyrir hann því meðan verið var að blanda þá fyrir hann var hann aftur dreginn út og fékk aðalvinninginn, PS5 tölvu, kom sér vel fyrir okkar mann að vera með stóra ferðatösku en undirritaður geymdi smá dót fyrir hann í handfarangrinum á heimleiðinni.
Loks var komið að úrslitum í Héraleikunum. Mikil eftirvænting lá í loftinu en við höfðum lagt mikið á okkur við að fara í kringum reglur og múta. Við vorum ekki í 5-3 sæti, spennan var orðin áþreyfanleg. Vinningsliðið var kynnt og var það Team Hammertime. Við fengum óskalag og fögnuðum vel uppi á sviði meðan lagið Hammertime með MC Hammer glumdi í tækjunum.
Framundan var gott kvöld og mikið dansað, vel heppnað og skemmtilegt gala kvöld! Sunnudagurinn er haldinn hátíðlegur í Noregi og var ekki mikið opið, aðeins sjoppan og búðin sem tók ekki við kortum. Flugið okkar til Osló var seinni partinn og rútan fór eftir hádegi til Alta. Fyrir utan morgunmatinn á hótelinu var ekki mikið í boði. Sjoppan var heimilisleg og minnti helst á gamalt kaupfélag. Þar var hægt að fá allt frá upphituðum gömlum pizzum í minjagripi og erótískra blaða sem voru í efstu hillunni. Rútuferðin frá Hammerfest til Alta var ekki eins mjúk og leiðin til Hammerfest. Vegirnir virstust mjórri og ósléttari. Mögulega hefur kvöldið áður haft áhrif á upplifunina. Links Rechts með Snowballers var heldur ekki eins gott og kvöldið áður þó það vakti upp góðar minningar. Á flugvellinum fengum við loksins mat. Baugette með karríkjúkling var samt ekki gott en það var matur!
5 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland Desember 2022
Við áttum góða kveðjustund á Gardemoen þar sem við borðuðum saman hópurinn. Þjóðverjarnir höfðu bjargað stórum fána viðburðarins sem hékk uppi á barnum frá glötun. Að sjálfsögðu var tekin mynd og eiga norðmennirnir verk fyrir höndum að sækja hann til Þýskalands. Þarna var Árni floginn heim, Ég, Danni og Viddi héldum til Osló á hótelið okkar. Orkan eftir helgina var ekki mikil en náðum þó einum kveðjubjór sanman á hótelbarnum og gerðum upp helgina. Það var ekki mikill tími á heimferðardeginum, mér fannst þó mikilvægt að ná einni sánu um morguninn. Klukkan var 6:40 þegar ég rölti af stað niður á höfn. Þoka lá yfir firðinum en það var um kortersgangur. Sánan var á móti óperuhúsinu og var ansi magnað að sitja í sánunni á flotbryggjunni og synda í firðinum þess á milli. Til að gera morguninn enn betri fann ég mér gott kaffihús. Heitur bollinn var kærkominn meðan ég fylgdist með borginni vakna. Við Daníel sameinuðumst aftur í morgunmatnum áður en við héldum á lestarstöðina. Sólin var farinn að skína. Mig langar að hvetja alla áhugasama um að kynna sér alþjóðastarfið. Þó við vorum fáir frá Íslandi í ferðinni og þeir uppteknir á fundum og öðrum embættisverkum þá ertu aldrei einn. Þú ert alltaf umkringdur vinum.
6 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland Desember 2022
Einar Tómas Björnsson, varaformaður RT9
Ég er 30 ára,kvæntur, þriggja barna faðir og starfa sem leiðtogi í málmvinnslu hjá Alcoa Fjarðaáli. Er uppalinn á Stöðvarfirði en hef verið búsettur á Egilsstöðum frá árinu 2010.
Er á mínu þriðja ári í Round Table og var það vinnufélagi minn sem kynnti mig fyrir þessum félagsskap. Þessi tími sem ég hef verið í Round Table hefur gefið mér svo mikið. Að stækka tengslanetið, fara út fyrir þægindarammann og að fá að kynnast mönnum sem maður hefði annars ekki fengið tækifæri til þess að kynnast.
Það eru margir sem mæta eingöngu á fundi og viðburði hjá sínum klúbbi en ég mæli svo eindregið með því að menn kynnni sér og taki þátt í alþjóðastarfinu. Sjálfur hef ég tvisvar sinnum farið út á vegum Round Table. Í október árið 2021 fór ég á NEAR í Helsinki og þessi helgi verður seint toppuð. Ég var á mínu örðu ári í Round Table og var það Ragnar Bjarni Jónsson fyrrum IRO landsstjórnar sem hvatti mig til þess að sækja um styrk, sem ég gerði. Við vorum tveir úr RT9 sem fengu styrk til þess að fara á NEAR og þarna sá maður hvað Round Table er í raun og veru. Menn voru mættir til Helsinki í þeim eina tilgangi að hafa gaman og það voru allir að vilja gerðir til þess að hjálpa.
Í maí á þessu ári fór ég ásamt 30 manna hópi frá RT9 á Euromeeting í Sviss. Að fá að kynnast landi og þjóð á vegum Round Table eins og við fengum upplifa í Sviss er ekki það sama og fara út á eigin vegum. Félagar okkar í RT9 í Schaffhausen tóku á móti okkur með opnum örmum og voru búnir að skipurleggja dagskrá fyrir okkur frá mánudegi til sunnudags og var gestrisnin til fyrirmyndar.
Það er satt sem menn segja um Round Table félagsskapinn, að þetta sé eins og að hitta gamla vini í fyrsta sinn og það eru margir sem öfunda mig að eiga góð 15 ár eftir af þessari veislu en ég tók þá ávörðun strax að vera all in og sé ég ekki eftir því.
Ég hvet svo alla til að fjölmenna á fulltrúaráðsfundinn á Eiðum í febrúar og lofa ég mikilli veislu þessa helgi!
7 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland Desember 2022
Nýliðakynning
Pierre Mörck NEA Chairman 2022/23
Dear Icelandic Brothers!
Hope this text finds you well in the land of volcanoes. And like the volcanoes, it is time for Round Table to erupt and release the potential we have.
We have been given the torch of Round Table. The torch was lit almost 100 years ago and has sparked ever since. Now it is your time to give the next generation of young men the same opportunity and favour as you and I have had. The fact is, that Round Table has struggled a bit in the last few years and we have lost members. One of the best ways to turn this around is to think what Round Table has meant to me (and you) and ask yourself if you believe that more young men should have the same chance, if our sons should have the same chance. If so, it is up to us to make that come true. Everything starts with us, the tablers. Don't ask what Round Table can do for you, ask what you can do for Round Table. And I want to be clear: Round Table needs your support! We need all of us to take the torch that we have been given from the previous generation of tablers, and pass it on burning bright, or even brighter! We need to adopt, adapt and improve, and stay on our toes to be attractive to the younger generation. In times of uncertainty, I believe that we need organisations like Round Table now more than ever! A place for brotherhood, fellowship and support. A place where we can talk about both happy things and rougher experiences. Where we can laugh and cry, share stories and help each other. Dare to reach out!
I would also like to promote that you dare to do more! To travel, to engage, to step up and take action. We need more brothers who are willing to contribute to this beautiful organisation. We have awesome role models all around us to be inspired by. Take my friend Daníel Sigurður Eðvaldsson for example, a great tabler, who stood up and ran for NEA Chairman with his burning heart for Round Table. I am so grateful to everyone that are willing to give back a bit extra, because we need that! We need tablers that engage a bit more, otherwise Round Table will not be. I have always said that there is no better place to go a bit outside your comfort zone than Round Table, becouse there will always be friends there to support you. If you said to me some years ago that I would sit as NEA Chairman in a big organisation like Round Table, I would say that you are mad. But my journey in Round Table has taught me that We Can if We Will! And we do it together! So if you feel hungry for more, don’t hesitate! Take the opportunity to give and to get!
8 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland Desember 2022
In all of this, don't forget to make the best of your time in Round Table. Regardless if that is to contribute to interesting club meetings, to discussions with your fellow brother in your home club, or if that means that you engage a bit more and discover other areas of our organisation. I hope that you don't look back in anger and ask ”What would have been”, but instead look back with a feeling of fulfilment and take the torch and pass it on with a big smile and the feeling of gratefulness and warmth.
See you around, and don't forget: Stay hungry – Stay foolish!
All the best
Yours in International Tabling
Pierre Mörck
NEA Chairman 2022/23
9 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland Desember
2022
Svipmyndir úr starfinu
10 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland Desember 2022
11 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland Desember 2022 crewsevice@simnet.is 692 8995 Helstu bakhjarlar okkar Crew ehf crewservice@simnet.is 692 8995