Arthúr 2021-10

Page 1

ARTHÚR Fréttabréf Round Table Ísland – Maí Október 2021

Arthúr sem seinkaði Daníel Sigurður Eðvaldsson, Ritstjóri RTÍ 2019-2021, skrifar Þetta blað hefur heldur betur þurft að bíða eftir sér en upphaflega átti það að koma út í maí á þessu ári og átti að vera kveðjurit mitt úr embætti ritstjóra. En eftir smá samtal við arftakan var ákveðið að þetta blað myndi líta dagsins ljós enda var það nánast tilbúið utan við nokkrar greinar sem beðið var eftir. Þessi þrjú ár sem ritstjóri hafa verið einstaklega lærdómsrík ár fyrir mig og búið að vera gaman að geta

líka mótað þetta embætti. Fyrrum ritstjórar skiluðu sínu og gerðu það vel en með nýjum tímum koma nýjar áskoranir. Nú þremum árum síðar er hreyfingin komin með Facebook síðu, erum komnir á instagram og linkedin. Að auki var heimasíðan endurgerð sem upplýsingasíða frekar en fréttasíða. Enda tilgangur hennar að mestu að kynna hreyfinguna. Aftur á móti eru þar sögur úr starfinu, sérvaldar sögur sem lýsa því hvað við gerum. Verkefni nýs ritstjóra verða mörg og vill ég biðja ykkur að vera dugleg að deila efni til hans sem hægt er að koma út á miðlum okkar. Sýnum hvað við gerum á fundum, skrifum stuttar greinar og kynnum okkur

rækileg. Það er svo margt skemmtilegt sem við gerum, skulum ekki hafa það bakvið lás og slá. Vill þakka fyrir þessi þrjú ár og aldrei að vita hvað næstu skref verða hjá manni. Óska nýjum ritstjóra velfarnaðar í starfi !


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Arthúr 2021-10 by rt_iceland - Issuu