ARTHÚR Fréttabréf Round Table Ísland – September 2022






Nú eru flestir félagar með hina ýmsu samfélagsmiðla tengt Round table. Hinsvegar engin af þeim sýnir það litríka starf sem umræðir. Heimasíðan sýnir í grunninn um hvað teiblið snýst um enn ekki það daglega starf sem er í gangi. Facebook RTÍ er eðlilega lokað fyrir almenningi, Snapchat er fyrir takmarkaðan hóp teiblara og sýnir ekki starf okkar út á við, og allt myndefni eyðist út Sagan okkar.
Sókn er besta vörnin
Ekki er þó bara nóg að stækka klúbba, þá þarf formfesta fundar og góð dagskrá að vera til staðar sem sýnir nýjum meðlimum að Round Table er ekki bara einhver sullhittingur í bakherbergi á hverfiskránni að spila pool eða pílu. Fjölbreytni og sköpunargleðin á að ráða ríkjum þegar dagskrá fundar ásamt hini margumtalaðri formfestu.
Instagram er markaður sem við ættum að sækja enn frekar í. Insta; roundtableisland er með rúma 600 fylgjendur og fer ört stækkandi. Um 90% fylgjenda eru aðrir round table klúbbar sem eru nokkuð virkir Þetta að mínu viti er sá miðill sem við ættum að vera sækja í til að sýna okkar vinnu líkt og aðrir hreyfingar gera úti í hinum stóra heimi.
Til þess að þetta gangi upp, þá vantar mig ykkar hjálp.

Hvet ég því félaga að vera duglegri að senda myndir gunnarrt7@gmail.com eða koma þeim á facebook sem birtast þá áfram á Instagram.
segja að eftir prísundina er komin áhugavert skrið á hreyfinguna sem vert að fylgja eftir og hlúa að.
Sókn er það sem ætti að vera okkur efst í huga á komandi starfsári. Vera enn sýnilegri, og óhræddir að stækka klúbba sem eru að dala eða hafa staðið í stað með lágmarksfjölda til lengri tíma Nú er tíminn.
Teiblarar er svo sannarlega komnir á ferðina og því spennandi nýtt starfsár að hefjast með nýjum Mátækifærummeðsanni
Gunnar A. Njáll Gunnarsson, Ritstjóri RTÍ 2021 2023, skrifar
Tek þó fram að auðvitað er þetta misgáfulegt efni sem kemur þar fram, enn inn á milli eru stórgóðar myndir sem sýna rétta hlið á starfinu.
2 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September
Því miður er það svo komið að okkur fer ögn fækkandi, ekkert þannig að okkur verður útrýmt eftir nokkur ár, heldur áminning að færa okkur frekar uppá skaftið og reyna sem um munar að sækja í nýja aðila til að taka þátt í þessum framúrskarandi, mannbætandi og skemmtilega félagsskap sem þessi hreyfing er.

3 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September

Fyrrum ritstjóri gerði fína grein um árið sem vert er að spá betur í . Enn þar er komið inná þau svæði sem möguleiki er á að fjölga klúbbum, Enn líkt og RT 5 gerði varðandi stofnun á RT 15 þá þurfa klúbbar að taka á skarið sem og hlutverk landstjórnar og fulltrúaráðs að skoða þennan möguleika enn frekar.
„Þegar íslandskortið er skoðað sést að það eru tækifæri á landinu sem ekki hafa verið skoðuð. Samkvæmt þjóðskrá eru nægilega margir karlar á aldrinum 20 45 bæði á Ísafjarðasvæðinu en einnig í Stykkishólmi til að geta viðhaldið klúbbstarfi.“

Þessi mynd er nokkuð umhugsunarverð og nokkuð augljóst að sjá að tækifærin leynast víða. Til þess að fjölga klúbbum er þetta augljós kostur sem þarf að skoða. Spurning um að líta nú fjær sér í stað nær sér?
Afhverju ekki Hella? Afhverjur ekki Borgarnes? Afhverju ekki Ísafjörður, Stykkishólmur eða bara
EinsMosfellsbær?ogstaðan er núna þá eru það einmitt rótgrónir landsbyggðarklúbbar sem standa vel að vígi og hafa gert lengi.

Ásar á ferð og flugi

Hótelið var staðsett við höfnina með fallegu útsýni út á hafið og nálægt miðbænum. Undir kvöldmatarleytið mættu nokkrar rútur fyrir utan hótelið og ferjuðu mannskapinn í móttökupartý. Staðsetningin kom skemmtilega á óvart, gömul stígvélaverksmiðja í útjaðri Tallinn sem búið var að breyta í ''roofbar’’ með útsýni yfir borgina. Þarna fengu nýliðarnir gott tækifæri til að kynnast mannskapnum og mynda tengsl. Undir miðnætti var síðan haldið niður í miðbæ til að skoða næturlífið aðeins betur. Föstudagurinn byrjaði með skipulagðri gönguferð um gamla miðbæinn. Haldið var af stað um 10 leytið frá hótelinu og gengið saman í einum hóp að miðbænum. Þegar þangað var komið var okkur skipt upp í minni hópa og var einn leiðsögumaður sendur með hverjum hóp.
Undirritaðir voru að fara í sína fyrstu ferð erlendis í tengslum við Round Table starfið og var spennan mikil enda búnir að heyra margar kappasögur frá vanari mönnum. Markmið ferðarinnar var að sjálfsögðu að kynnast öðrum ásum en ekki síður að bjóða Ísland fram sem fundarstað Europe one 2024.
Eftir nokkurra ára bið var loks komið að því að hægt var að halda Europe one mót og fór það fram í Tallinn dagana 26 28 maí og vorum við fimm samtals sem mættum frá Íslandi.
Eftir að hafa verið sóttir á flugvöllinn seinnipart fimmtudags lá leiðin beint upp á hótel þar sem við vorum boðnir velkomnir.
Tallinn er falleg borg með mikla sögu. Gamli miðbærinn er ein af best varðveittu borgum Evrópu frá miðöldum og er á heimsminjaskrá UNESCO. Háir virkirveggir einkenna svæðið sem gengið var um ásamt steinlögðum götum. Leiðsögukonan var einstaklega ánægð að heyra að við værum frá Íslandi þar sem Ísland var fyrst til að viðurkenna sjálfstæði Eistlands frá Sovétríkjunum árið 1991. Eftir um 3 tíma göngu var tími til kominn að skella sér í gufubað. Gengið var niður að höfninni og líktist svæðið sem við vorum á gömlum slipp sem breytt hafði verið í afþreyingarsvæði. Fjöldi gufubaða, svokölluð igloo voru þarna enda kallast svæðið igloopark. Menn skelltu sér í sundskýluna, opnuðu einn kaldan og hækkuðu vel í gufunni. Þegar sviminn var farinn að segja til sín var hægt að kæla sig niður með því að hoppa í kaldan sjóinn. Mátti greinilega sjá að menn voru misjafnlega vanir kulda.


4 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September

5 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September

Ferðasaga skrifuð af Auðunni Inga Ragnarssyni RT1 og Sigurði Kristinssyni RT1


Loks var komið að laugardagsfundinum sem haldinn var um morguninn. Byrjað var á að velja siðameistara fundarins og því næst farið yfir ýmis málefni. Formenn klúbbanna sögðu frá starfsárinu og því næst var komið að stóru stundinni, kosning um staðsetningu fundarins árið 2024. Tvö lönd voru í framboði, Ísland og Rúmenía. Við frá Íslandi vorum búnir að láta vita ágætlega af okkar framboði með límmiðum sem líklega sjást enn á ljósastaurum og brunahönum víðsvegar um Tallinn. Hlaðið var í eitt gott kynningarmyndband sem sýnt var á fundinum ásamt því að bjóða mönnum upp á bjór áður en fundurinn hófst. Rétt fyrir myndbandskynninguna og kosningu var síðan öllum sem voru viðstaddir fundinn boðið upp á staup af íslensku brennivíni sem lagðist misvel í menn. Niðurstaðan varð síðan sú að Ísland vann kosninguna og heldur Europe One 2024 og var mikið fagnað þegar það varð ljóst. Viljum við trúa því að íslenska brennivínið hafi haft úrslita atkvæðið enda leitun að betri drykk. Siðameistarar fundarins voru öflugir í sínu starfi og sektuðu grimmt. Menn voru ýmist sektaðir fyrir að vera of hávaxnir eða lágvaxnir og allt þar á milli. Var sektarsjóðurinn látinn ganga til málefna Úkraínu. Sólin var hátt á lofti þennan daginn og var hann nýttur í rölt um bæinn og skoðunarferð á hverfiskrárnar fram að gala kvöldverðinum. Mannskapurinn var mættur tímanlega niður í anddyri um kl 18 og fórum við í rútum í stóran grasagarð í Tallinn. Þar var stór veislusalur og var öll umgjörðin í kringum þennan viðburð virkilega flott. Skemmtiatriði voru langt fram á kvöld og síðan var haldið í miðbæinn þar sem menn dönsuðu fram undir morgun. Það er mjög gaman að sjá og upplifa hvað Round Table hreyfingin getur fært menn frá ólíkum löndum og með ólíkan bakgrunn saman. Það var eins og við værum að hitta gamla vini sem við hefðum ekki séð í langan tíma. Eldri félagar voru einnig duglegir að mæta og sýnir það vel hversu sterk tengsl menn mynda sín á milli í þessum félagsskap.

Eftir að búið var að sjóða sig nægilega í gufunni var haldið upp á hótel og farið í fínni föt fyrir heimboðin. Þau fara þannig fram að gestgjafarnir bjóða nokkrum gestum heim til sín (5 8 manns) og þar er eldað og spjallað fram á kvöld. Reynt er að hafa þannig háttinn á að engir tveir frá sama landi fara í sama heimboð. Þarna náðist að mynda góð tengsl við aðra ása og var spjallað og hlegið langt fram á kvöld.

6 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September

Vilmundur Aðalsteinn Árnasson skrifar

Þriggja ára afmæli mitt í hreyfingunni.
Ég var einmitt tekinn inn á jólafundinum þrem árum áður en ég kynntist Round table haustið Eftir2018.fundinn fékk ég áskorun, að birta þessi orð einhvers staðar innan hreyfingarinnar.En hér kemur þetta, örlítið slípað til
Þessi ár eru búin að líða hratt en mér finnst samt einhvern veginn vera mikið lengra síðan ég kom inn. Það er sennilega vegna þess að í Round table gerast sumir hlutir mjög hratt. Eða eins og einn orðaði það, þegar þú byrjar ertu samdægurs að hitta fullt af vinum þínum sem þú vissir ekki að þú þekktir.
Svo mætir maður út fyrir klúbbinn, fundi annara klúbba og svo stærri viðburði Útileguna í Varmahlíð, fulltrúaráðsfundi og árshátiðir Hittir aðra teiblara á ferðalagi eða bara hvar sem er. Og maður fattar það allt í einu hvað umhverfið manns og vinahópurinn er orðinn fjölbreyttari og tengslanetið og baklandið okkar orðið mun stærra og sterkara en nokkru sinni áður
Ég tók mína þrjá og þá var ekki aftur snúið.
Ég ætla að stökkva aðeins í gegnum þessi þrjú ár sem ég hef verið með ykkur en ég gekk inn í hreyfinguna á jólafundi 2018 og er því þriggja ára í kvöld.
En hvað gerir mann að góðum teiblara ? Það er ekki flókið Jákvætt hugarfar, áhugi á að sjá og upplifa eitthvað nýtt og áhuga á að gera gott betra hvort sem það er maður sjálfur eða klúbburinn og hans starf Það er líka mjög gott að eiga konu sem hefur skilning á því að okkur langi að vera strákar aðeins lengur en aðrir Round table er virkilega gefandi félagsskapur og árgjaldið er án nokkurs vafa besta fjárfesting sem ég hef hent í. Round table er á allan hátt þannig að allt sem menn leggja út, kemur margfalt til Égbaka.vissiekkert
hvað Round table væri. Aldrei heyrt um það. En svo var ég staddur í brúðkaupi. Veisla sem ég vildi alls ekki missa af en ég var með brjósklos í þrem hryggjarliðum og sárkvalinn. En mætti búinn að drekka vel ofan í morfínið og ástandið á manni þannig að ég hefði sennilega gengið til liðs við Al qaeda ef einhver hefði stungið upp á því sem góðri hugmynd. Stuttu síðar er mér svo boðið á fund. Búið að segja mér gróflega hvað stæði til Ég var búinn að bíta það í mig að ákveða ekkert fyrr en eftir þrjá fundi. Sem var gott því minn fyrsti fundur var svo leiðinlegur að Hemmi Gunn hefði farið í vont skap
Sælir félagar Ég setti saman nokkur orð fyrir okkar árlega jólafund í fimmunni
Ég væri ekki búinn að kynnast svona vel þessu samfélagi sem við búum í og öðlast meiri skilning á því eins og maður sannarlega gerir þegar maður heimsækir fyrirtæki eða stofnanir sem fram að því voru bara enn eitt húsið sem maður hafði keyrt framhjá margoft án þess að spá nánar í því Hef kynnst mönnum sem ég hefði aldrei kynnst annars, menn úr svo allt annarri átt en ég kem sjálfur Menn sem ég er afskaplega þakklátur fyrir og stoltur af því sem við höfum gert saman. Ég hef lært margt um sjálfan mig, virða allar skoðanir og bera meiri virðingu fyrir náunganum. Ég mátti vel við því, eftirá að hyggja.
En hvað svo ?
Kv. Villi. RT5 Akureyri.

Ég hef lært eitt og annað bæði um sjálfan mig og aðra. Gert hluti sem ég hefði aldrei annars upplifað Ekkert nema Round table hefði komið mér í Zumba, Gong Yoga, siglingu út í Flatey eða að enda óvænt í því að bera nýtt orgel inn í kirkju kaþólikka á Akureyri Ég vissi ekki einu sinni að þessi kirkja væri þarna.
Ég er andskoti stoltur af mörgu sem við höfum gert saman, nota bene, mörgu. Ekki kannski stoltasta moment lífsins að arka í pottinn á Hótel Örk í g streng innan um aðra hótelgesti en djöfull var samt gaman hjá okkur ! En kassinn fyllist oft af lofti, td þegar við komum að góðgerðarmálum og látum þannig gott af okkur leiða, í félagsskap þar sem allir eru jafnir við borðið Ég er sannfærður um að ef við höldum áfram því sem við gerum og leitum samt leiða til að gera gott enn betra bíður Round table ekkert nema glæsileg framtíð
7 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September

Ég er í frábærum klúbbi sem tekur vel á móti sínum mönnum sem og öðrum í hreyfingunni
Fjölgum okkur, stækkum hreyfinguna, fáum inn nýja gaura, unga menn, hressa menn og setjum þessa gaura í embættin því þar eru fersku hugmyndirnar, og þá er ekkert framundan nema góðar stundir og fleiri geggjaðar minningar
Sennilega væri ég enn sjómaður ef ekki væri fyrir þennan félagsskap. Mér fannst alltaf bölvað að missa af fundum og því sem var að gerast á meðan ég var í burtu Þannig á það líka að vera, það er leiðinlegt að missa af þessum viðburðum stórum sem smærri
8 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September

Mín helstu áhugamál eru líkamsrækt, fótbolti og víndrykkja.
Nýliðakynning

Í lokin vil ég segja að mig hlakkar mikið til að halda áfram að kynnast starfseminni betur, bæði innanland og erlendis sem og fleiri meðlimum innan round table. Áfram Arsenal.
Haraldur Bergvinsson heiti ég, 30 ára gamall Norðfirðingur, og er stoltur meðlimur í RT 3 Seinustu 3 ár hef ég unnið í Landsbankanum og samhliða því verið að læra viðskiptafræði í HÍ, þar sem ég er að klára mína seinustu önn til BS gráðu.
Á mínu fyrsta ári var brallað ansi mikið og stóð þar upp úr eyjarferðin í lok starfsársins, sem var gríðarlega skemmtileg.

Á undan því vann ég 5 ár í aðhlynningu í hjúkrunarheimilum vítt um landið. Ég bý á stúdentagörðum með kærustunni minni sem er að læra doktorsnám í jarðaskjálftaverkfræði.
Ég er að byrja mitt annað ár í round table, en það var frændi minn, Haraldur Sólmundsson sem bauð mér að mæta í fyrra og ég er gríðarlega þakklátur fyrir það boð.

Gunnar Ingi Reykjalín Sveinsson, RT1.

9 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September

Þetta nafn er þokkaleg langloka en um það bil eins langt og maður kemst upp með að gefa þá ásýnd að maður beri virðulegt ættarnafn án þess að það sé þó raunin. Ég er 38 ára, kvæntur, þriggja barna faðir, gæludýralaus en held mikið upp á nokkrar húsflugur sem hafa fundið sér samastað einhversstaðar í íbúðinni hjá mér. Þær taka glaðar á móti mér á morgnana og finnst fátt skemmtilegra en að trufla væran nætursvefninn þegar svo ber undir. Ég varði fyrstu árum lífsins á malbikinu í póstnúmeri 105 en hóf á unglingsárum þá löngu vegferð að verða farsæll úthverfapabbi í húsi sem er nokkrum númerum of stórt og el nú manninn í Mosfellsbæ og uni vel. Ég hef aldrei fundið taktinn í miklu íþróttaáhorfi, en stuðningur minn er ávallt falur fyrir réttan félagsskap og góðar veitingar. Ég lýsi þannig gjarnan yfir stuðningi við Chelsea og KR fyrir safaríkar kjúklingabringur af grillinu hjá
árið að ég hafi kynnst Roundtable allt of seint, en ég fékk smjörþefinn af starfinu í gegnum minn kæra vin Pál Inga, formann RT1 Reykjavík. Ég tengi mikið við lýsinguna um að innganga í Roundtable sé eins og að hitta gamla vini í fyrsta skipti. Ég hef einungis þekkt þetta starf í eitt ár en finnst ég hafa myndað gríðarlega mikil tengsl við menn sem ég annars hefði farið á mis við í lífinu Allsstaðar er manni mætt af mikilli góðvild og áhuga Mönnum er gefið svigrúm til að vera þeir sjálfir í hópnum Ég finn það bæði á starfinu með ásunum mínum, en líka í landsstarfinu sem ég er mjög spenntur fyrir að kynnast betur Það er mikilvægt í þessu lífi að skora á sjálfan sig og ögra þolmörkum þægindarammans og mér finnst ég fá mörg tækifæri til þess í Roundtable.
Égtengdapabba.hefsagtundanfarið
Nýliðakynning

Svissneskir ostar, súkkulaði og einstök gestrisni
10 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September

Kjartan Róbersson skrifar Laugardaginn 21. maí 2022 lagði stór hópur Egilsstaðabúa upp í langþráð ferðalag. Þar voru á ferð 16 félagar úr RT 9 ásamt mökum og var ferðinni heitið til Sviss, nánar tiltekið til borgarinnar Schaffhausen þar sem Euromeeting Roundtable 9 skyldi fara fram Ferðin var langþráð af þeim sökum að upphaflega hafði staðið til að fundurinn yrði haldinn árið 2020 en heimsfaraldurinn kom í veg fyrir að svo mætti verða Það voru því liðin tvö og hálft ár frá því að fulltrúar RT 9 í Schaffhausen heimsóttu Egilsstaði og kynntu fundinn og pre túrinn fyrir félögum í klúbbnum og óhætt að setja að eftirvæntingin eftir því að komast í ferðina hafi farið stöðugt vaxandi allan þennan tíma. Það var því góð stemmning og mikil tilhlökkun í flugi Icelandair til Zurich þennan fallega maímorgun Allur íslenski hópurinn hafði skráð sig í pre túrinn sem Svisslendingarnir buðu upp á og reyndust Íslendingar í miklum meirihluta þeirra sem hann sóttu. Hinn fimm daga pre túr var fjölbreyttur og vel skipulagður. Hópurinn fékk leiðsögn heimamanna um borgina Schaffhausen, heimsótti borgina Luzern, fór í siglingu á Rín og sumir skelltu sér til sunds í ánni að hætti heimamanna. Síðast en ekki síst lagði hópurinn leið sína upp í svissnesku alpana þar sem gist var í ekta svissneskum fjallakofa og boðið upp á þjóðarréttinn fondue sem lagðist misvel í mannskapinn enda íslendingar ekki vanir því að borða brauð með bræddum osti í kvöldmat. Daginn eftir kleif hluti hópsins fjallið Grosser Mythen en þaðan er einstakt útsýni yfir hið stórkostlega svissneska landslag. Þeir sem ekki kusu fjallgöngu sátu ekki auðum höndum heldur fengu leiðsögn um klaustrið, ostagerðina og fleira. Auk alls þessa nutum við þess að gæða okkur á góðum mat og veigum.
Euromeeting roundtable 9 í Schaffhausen 22 – 29 maí 2022



11 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September


Evrópfundurinn sjálfur hófst á fimmtudegi. Auk hefðbundinna fundarhalda þar sem klúbbarnir skiptust á fánum og gjöfum var boðið upp á skotmót þar sem þátttakendur skutu með svissneskum herrifflum á 300 metra færi án sjónauka og röðuðu Egilsstaðabúar sér í flest efstu sætin, þar með talið það efsta

Gestgjafarnir buðu fundargestum einnig í heimapartý og skiptu gestirnir sér niður á gestgjafana. Þar vorum við stútfyllt af mat og veigum og mynduðum tengsl bæði við gestgjafana sem og aðra gesti Það er gaman að segja frá því að gestgjafar okkar hjóna hafa nú þegar heimsótt Egilsstaði þar sem við gátum launað þeim gestrisnina með því að sýna þeim það helsta sem okkar heimasvæði hefur uppá að bjóða. Eldri svissnesku tablararnir skipulögðu sérstakt þjóðakvöld þar sem hver þjóð átti að mæta í sínum fánalitum og vera með skemmtiatriði. Þar steig íslenski hópurinn á stokk og söng tvö lög og heillaði viðstadda upp úr skónum. Síðast kvöldið var svo blásið til hátíðarkvöldverðar sem fór fram í stóru brugghúsi sem einn gestgjafanna á.
Gestrisnin sem hópurinn mætti í Sviss var einstök. Allan tímann lögðu gestgjafarnir sig fram við að láta hópnum líða sem best. Þeir voru mættir á brautarpallana á morgnana með nýbakað brauð og kaffi, þeir opnuðu heimili sín fyrir okkur og gerðu allt til þess að greiða götu okkar. Það var einstaklega ánægjulegt að hitta aftur gamla félaga eftir langt hlé og kynnast nýju fólki Við erum þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í þessum viðburði og vonum sannarlega að við munum aftur fá tækifæri til að mæta á ættarmót RT 9 fjölskyldunnar Þá er óhætt að setja að við hlökkum til að launa Svisslendingunum móttökurnar þegar Euromeeting RT 9 verður haldinn á Egilsstöðum innan fárra ára.

12 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September

Árni Heiðar Guðmundsson skrifar
Table Ísland vill hvetja alla til að sækja erlenda fundi til að kynnast starfinu betur og opna Hægtheiminner
heimsfundurinn svo haldinn í Suður Afríku en enn vantar dagsetningu á
Sjóðurinn er ætlaður til niðurgreiðslu á kostnaði við að fara á erlenda fundi. Einu skilyrðin sem sjóðurinn er með er að styrkurinn sé nýttur á yfirstandandi ári og ferðasögu sé skilað inn. Félagar sem hafa verið færri en 3 ár í klúbbnum hafa forgang Það má lesa allt um sjóðinn í
Roundhann


Ef menn eru mikið á ferð og flugi þá er líka hægt að sjá á tabler.world undir events erlenda fundi. Einnig er komin ný síða sem heldur utanum allar árshátíðir og stóra erlenda fundi: tabler.events
* NEAR fundur í Hammerfest í Noregi 27 30 Október, www.neartm2022.com
Margir eru skráðir á heimsfundinn í Kaupmannahöfn og líkur á að þetta sé hreinlega met!
Umsóknarfresturfélagatalinu.ertil
* Heimsfundur í Kaupmannahöfn 22 25 September,
Ferðahappdrættið er svo á sínum stað en tilkynnt verður um það síðar
Nú þegar eru svo nokkrir bókaðir á NEAR fundinn (Northern Europe og Americas region) sem fram fer dagana 27 30 Október í Hammerfest í Noregi

Ferðaárið lítur þá svona út:
1. mars og skal senda umsókn til IRO hreyfingarinnar, Árna Heiðars Guðmundssonar, iro@roundtable.is. Í umsókninni þarf að koma fram nafn, klúbbnúmer og hvaða ár þú gekkst í hreyfinguna.
Yit, Árni Heiðar Guðmundsson IRO RTÍ 2022 2024
Það stefnir allt í frábært ferðaár!
að fá styrki í Ferðasjóð Round table sem var stofnaður til að opna á erlenda starfið.

* Hálfsársfundur í Tallinn í Eistlandi 1 5 Mars, https://www.rtihym2023.com/

Svipmyndir úr starfinu






13 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September






14 Arthúr –Fréttabréf Round Table Ísland 2022September 692crewsevice@simnet.is8995 Helstu bakhjarlar okkar Crew ehf 692crewservice@simnet.is8995






















