ARTHÚR Fréttabréf Round Table Ísland – Maí 2022
Nýliðakynning: Bjarni Pétursson Komið þið sælir félagar. Bjarni Pétursson heiti ég, ég er 38 ára gamall og ég er meðlimur í Round Table 7 Akureyri. Ég var formlega tekinn inn í klúbbinn á haustdögum á því herrans ári 2021. Ég er uppalinn Húsvíkingur en er búsettur á Akureyri, ásamt eiginkonu, þrem börnum og tveimur hundum. Ég er menntaður vélfræðingur og fyrrverandi sjómaður, en í dag starfa ég sem verkstjóri hjá Slippnum á Akureyri. Samhliða vinnu er ég að klára meistaraskóla og klára ég það nám nú á vordögum 2022. Ég hef brennandi áhuga á veiði og líður mér allra best ýmist með veiðistöng eða skotvopn í hendi. Hef ég stundað veiðar frá blautu barnsbeini, stóð vart fram úr hnefa þegar ég fór í mínar fyrstu veiðiferðir. Einnig hef ég tileinkað mér furðuleg áhugamál síðustu ár eins og að nostra við eitthvað skemmtilegt á grillinu, hvort sem það er við pizzaofninn, kolagrillið, eða gasgrillið. Einnig að spjalla við súrdeigsmóðurina og breyta henni í eitthvað gómsætt brauð, eða að setjast niður við fluguhnýtingar með gott rauðvín og góða músík. En fátt er samt betra en samverustundir með fjölskyldunni og þá sérstaklega eftir að ég hætti sjómennskunni. Það hefur gefið mér alveg heilann helling að hafa gengið í Round Table og hef ég kynnst gríðarlega skemmtilegum hópi manna innan Round Table 7. Ég hef ekki farið á marga fundi
utan klúbbsins en sem komið er, en ég er fullur tilhlökkunar með komandi árum að sækja fleiri fundi og kynnast en fleirum. Það hefur gefið mér mikið að mæta á fundi og einkunnarorðin „tileinka, aðlaga, bæta“ segja svo ofboðslega mikið þegar maður er farinn að uppgötva mikilvægi þeirra almennt í lífinu. Við í RT-7 erum flottur og samheldinn hópur og ég er gríðarlega stoltur að vera meðlimur hreyfingarinnar. Það var enginn annar en kóngurinn Geddi Ara sem kynnti mig fyrir hreyfingunni og á ég honum miklar þakkir fyrir, sem og náttúrulega öðrum meðlimum fyrir frábær kynni. Það er mér mikilvægt að mæta á fundi og hitta félagana og eiga góða stund saman. Það hefur hjálpað mér mikið í leik og starfi og tel ég að það geti bætt alla að ganga í Round Table. Takk fyrir mig og njótið sumarsins kæru félagar.