Flórgoðin - mars

Page 3

FLÓRGOÐINN

SAMVINNA - ÁBYRGÐ - TILLITSEMI - TRAUST

HEIMURINN OKKAR MENNINGARHÁTÍÐ ÁSLANDSSKÓLA

SIGUR Í STÓRU UPPLESTRARKEPPNINNI

Karen Hrönn Guðjónsdóttir og Agnes Sigríður Magnúsdóttir báðar úr 7. LÖG kepptu fyrir hönd Áslandsskóla í Stóru upplestrarkeppninni í Hafnarfirði og stóðu sig með stakri prýði við lestur og framkomu.

Það fór svo að Karen Hrönn stóð uppi sem sigurvegari keppninnar í ár og óskum við henni innilega til hamingju með þennan frábæra árangur. Keppendur byrjuðu á að lesa texta úr bókinni Blokkin á heimsenda. Ljóðskáld keppninnar var Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og flutti Karen ljóðið Heilsaðu einkum eftir hann. Að lokum fluttu keppendur ljóð að eigin vali og fór Karen Hrönn með ljóðið Haust eftir Davíð Stefánsson.

Við höldum áfram að safna í landsliðið í upplestri og þökkum öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við kennslu, æfingar og utanumhald.

Þess má geta að nemendur í 4.bekk fluttu talkór í upphafi keppninnar. Það tókst einstaklega vel og þau voru frábærir fulltrúar skólans.

Unnur Elfa og Karen Hrönn Linda Ösp, Karen Hrönn og Agnes
- ÁBYRGÐ - TILLITSEMI - TRAUST
Verðlaunahafar Stóru upplestrarkeppninnar
SAMVINNA

BARNASÁTTMÁLI UNICEF INNLEIDDUR

Í HAFNARFIRÐI

Hugmyndafræði barnvænna sveitarfélaga byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities, sem hefur verið innleitt í hundruðum sveitarfélaga út um allan heim frá því 1996. Íslenska líkanið byggir jafnframt á efni frá umboðsmönnum barna í Noregi og Svíþjóð og UNICEF í Finnlandi. Með innleiðingu Barnasáttmálans samþykkir sveitarfélag að nota Barnasáttmálann sem rauðan þráð í gegnum alla starfsemi sína. Segja má að starfsmenn og stjórnmálamenn sveitarfélagsins setji upp „barnaréttindagleraugu” og rýni og skoði verk- og ákvarðanaferla með hliðsjón af sáttmálanum. Sáttmálinn er þannig nýttur sem gæðastjórnunarverkfæri í stefnumótun og þjónustu með tilliti til barna. Barnvænt sveitarfélag skuldbindur sig til þess að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og að vinna markvisst eftir hugmyndafræði verkefnisins - sem byggir á eftirfarandi grunnþáttum:

· Þekkingu á réttindum barna innan sveitarfélagsins.

· Að haft sé að leiðarljósi það sem barninu er fyrir bestu.

· Jafnræði - að horft sé til réttinda allra barna.

· Að þátttaka barna sé markviss í starfi og ákvörðunum bæjarins.

· Að barnvæn nálgun sé viðhöfð innan sveitarfélagsins.

Innleiðingarferlið

Innleiðingarferli Barnasáttmálans er ferli sem tekur tvö ár og skiptist í átta skref, sem sveitarfélag stígur með það að markmiði að virða og uppfylla réttindi barna. Að tveimur árum liðnum, getur sveitarfélagið sótt um viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi að undangenginni úttekt. Til að viðhalda viðurkenningunni þarf sveitarfélagið að halda innleiðingunni áfram, setja sér ný markmið og óska eftir nýju mati á tveggja ára fresti.

Samráð við börn og ungmenni

Einn mikilvægasti þátturinn í innleiðingu Barnasáttmálans í Hafnarfjarðarbæ er kortlagning á stöðu og velferð barna í sveitarfélaginu. Kortlagningin byggir á mörgum þáttum en ekki síst því að leita eftir skoðunum og upplifunum barna á því hvernig hægt sé að gera bæinn að enn betri stað fyrir öll börn. Börn búa yfir mjög verðmætri þekkingu á því hvað sé vel gert og hvað sé hægt að gera betur – þessa þekkingu vill sveitarfélagið nýta í innleiðingarvinnunni.

Það var því ánægjulegt að sjá að á þessu skólaári var haldið ungmennaþing þar sem 16 fulltrúar Áslandsskóla (tveir og tveir úr hverjum bekk í unglingadeild) sóttu skólaþing á vegum Hafnarfjarðarbæjar í Kaplakrika. Þar voru líka fulltrúar allra grunnskóla í Hafnarfirði mættir til að hafa áhrif á eftirfarandi umræðuefni og koma með tillögur út frá þeirra sýn og þörfum: Skólamál, Félagslíf- og menning, Forvarnir, Umhverfi og skipulag. Þess má einnig geta að í ár tengjum við Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna við þema menningardaga sem er að þessu sinni Heimurinn okkar með það í huga að auka auka vitund og dýpka skilning á umhverfisvitund meðal nemenda og starfsfólks.

HEIMURINN OKKAR

Nemendur unnu að þemaverkefnum varðandi Heiminn okkar mánudag - miðvikudags með Heimsmarkmið Sameinuðuþjóðanna að leiðarljósi. Verkefnin voru síðan sýnd á menningardaginn.

MENNINGARDAGURINN

Menningadagurinn var haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 30. mars. Leiksýningin Ávaxtakarfan var sýnd, skemmtiatriði á sal sem og sýning á fjölbreyttum verkum nemenda á göngum og í stofum skólans.

Ellý með verðlaunin og Ísak kynnir kvöldsins

BRUNAÆFING

ELLÝ VANN SÖNGKEPPNI HAFNARFJARÐAR

Söngkeppni Hafnarfjarðar var haldin hátíðlega núna í mars. Það voru 10 atriði skráð frá 7 skólum og því ekki öfundsvert fyrir dómara keppninnar að þurfa að velja úr þessum flotta hópi. Áslandsskóli átti frábæran fulltrúa Ellý Hákonardóttur sem fór alla leið. Hún var ein af tveimur flytjendum sem komust áfram og mun syngja fyrir hönd Hafnarfjarðar í söngkeppni Samfés sem fram fer í byrjun maí. Ellý flutti lagið Strange með söng konuninni Celeste.

Ísak Gunnarsson var kynnir á keppninni og stóð sig alveg frábærlega eins og við var að búast.

Við eigum svo marga hæfileikaríka unglinga hjá okkur. Áfram Áslandsskóli

Nemendur og starfsfólk voru ekki lengi að koma sér á sína staði á brunaæfingunni 18. mars 16. mars var brunaæfing haldin við Áslandsskóla. Allir nemendur og starfsfólk skólans fylgdu brunaáætlun sem hafði verið undirbúin og brugðust við af kostgæfni er brunabjallann fór af stað. Arkað var í röðum á útisvæði skólans þar sem nemendur komu sér fyrir á sínum stöðum og kennar höfðu nafna tal. Það tók 4 mín. og 18 sek. að rýma skólann og koma öllum á sína staði sem er afbragðs tími og verður gaman að bera tímann saman við næstu æfingu sem verður ekki undirbúin.

GLÆSILEGUR ÁRANGUR Á GRUNNSKÓLAMÓTI Í SKÁK

Skáksveit Áslandsskóla ásamt þjálfara sínum og fulltrúum Kivanisklúbbsins Hraunborga

Áslandsskóli tók þátt í grunnskólaskákmóti miðdeilda í Hafnarfirði sem haldið var í Hvaleyrarskóla af Kiwanisklúbbnum Hraunborgum. Sex drengir úr miðdeild mynduðu skáksveit Áslandsskóla og tefldu þeir við allar hinar skáksveitirnar alls sjö viðureignir. Sveitin okkar náði í 19 og hálft stig úr þeim viðureignum sem skilaði þeim þriðja sæti. Við megum svo sannarlega vera stolt af okkar skáksveit. Áslandsskóli fékk svo að gjöf tvö sett af taflborðum, taflmönnum og skákklukkum frá Kiwanisklúbbnum Hraunborgum. Helgi Ólafsson stórmeistari í skák var viðstaddur og tók þátt í að dæma á mótinu og sinnti almennri yfirsýn, gaman fyrir strákana að sjá stórmeistara í eigin persónu. Það eru því spennandi tímar framundan og um að gera að virkja skák áhugann enn meira og mæta aftur sterk til leiks á næsta ári.

FÉLAGSLÍFIÐ

Opið mánudaga – miðvikudaga – föstudaga frá kl. 19:30 – 22:00

Það hefur ýmislegt verið í gangi hjá okkur í Ásnum sem dæmi má nefna Rafíþróttamót Samfés og Elko, Grunnskólahátíðin, Söngkeppni Hafnarfjarðar, heimsóknir hingað og þangað, almenn dagskrá Ássins og fleira og fleira. Skólaárið er þó ekki liðið og er fullt á dagskrá hjá okkur næstu vikur og mánuði – Fylgist með!

Við sendum út fréttabréf í hverjum mánuði sem heitir Spilastokkurinn og hvetjum við ykkur til að kíkja á það. Þar má finna ýmsar upplýsingar og myndir frá starfseminni okkar. Við erum líka á facebook undir nafninu Ásinn – unglingadeild og Ásinn – miðdeild, þar setjum við inn dagskrá og ýmislegt annað gagnlegt. Endilega fylgið okkur þar.

Árshátíð unglingadeildar mun fara fram fimmtudaginn 27. apríl og er nemendafélag skólans í fullu fjöri að undirbúa hana. Öll að taka kvöldið frá! Við erum spennt fyrir hækkandi sól og meiri útiveru. Eigið gott páskafrí.

ÞJÓNUSTA VIÐ

SAMFÉLAGIÐ

ÁSLANDSSKÓLI STYRKIR MÆÐRASTYRKSNEFND

HAFNARFJARÐAR

Einn af jólasiðum Áslandsskóla er að sýna í verki þjónustu við samfélagið sem er ein af hornstoðum skólans. Nemendur og starfsmenn hafa komið með frjálst framlag í desember í skólann til að sýna samhug í verki. Við munum eins og undanfarin ár styrkja Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar og Í morgun kom fulltrúi frá þeim til að taka við styrknum en styrkurinn fer í að aðstoða þær fjölskyldur í Hafnarfirði sem þurfa á aðstoð að halda í desember. Hér eru nemendur í 5. bekk með okkur við afhendingu og fulltrúi Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar sagði frá og fræddi þau um í hvað styrkurinn fer.

Frá upphafi verkefnisins hafa safnast yfir 4 milljónir.

PERLAÐ AF KRAFTI

Stuðningsfélagið Kraftur hefur það að leiðarljósi að aðstoða og styðja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Helsta fjáröflunarleið Krafts er sala perluarmbanda með áletruninni “Lífið er núna” Armböndin eru eingöngu framleidd af sjálfboðaliðum. Þetta er í þriðja sinn sem nemendur Áslandsskóla perla með Krafti á Öskudag en þetta er skemmtilegt verkefni þar sem nemendur koma saman og perla armbönd til styrktar félaginu. Fulltrúar frá Krafti mættu á staðinn með efni í armböndin og leiðbeindu nemendum. Afrakstur nemenda var hægt að kaupa og með því styrkja Kraft. Armbandið kostar 2900,-kr. og er gaman að segja frá því að í ár perluðu nemendur í unglingadeild armbönd fyrir samtals 1.603.200 kr.

Stílbrögðin leyndu sér ekki Lífið er núna Vandað til verka Við afhendingu styrksins til Mæðrastyrksnefndar

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Flórgoðin - mars by florgodinn - Issuu