FLÓRGOÐINN des2024

Page 1


HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS

Sjúkrabíllin var mjög spennandi

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom að vanda með fræðslu fyrir 3. bekk. Það fer þannig fram að þeir koma á akandi á slökkviliðs og sjúkrabíl og nemendum gefst tækifæri á að skoða þá innan sem utan. Nemendur sýna þessu alltaf mikinn áhuga og þykir þetta afar spennandi og skemmtileg heimsókn. Mikið er spurt og hápunkturinn er yfirleitt þegar ljósin eru sett á ásamt sírenum.

Slökkvuliðsbíllinn vakti mikla lukku
Nemendur fengu að kanna innviði sjúkrabílsins

David Walliams í Áslandsskóla

Rithöfundurinn, leikarinn og Íslandsvinurinn David Walliams kom óvænt í heimsókn í Áslandsskóla ásamt forráðamönnum Bókafélagsins sem gefa hann út á Íslandi. Hann sagði skemmtilegar sögur og lýsti því hvar hann sækir innblástur í bækurnar sínar.

David Walliams fór einnig í leik með nokkrum nemendum er hann valdi af handahófi til að fá hugmyndir að nýrri sögu og gaf þeim bók að launum. Óhætt er að segja að hann hafi vakið mikla lukku hjá nemendum sem og starfsfólki enda með eindæmum skemmtilegur og alþýðlegur í allri framkomu.

DESEMBER

Desember er mánuður skreytinga, samveru og samvinnu á milli bekkja og deilda. Skólinn fær á sig annan brag og nemendur og kennarar kappkosta að gera hann fallegan yfir aðventuna.

AÐVENTAN

Á aðvenntunni gera nemendur sér glaðan dag og klæða sig í jólapeysur, dansa og syngja fyrir hvert annað til þess að fanga gleði jólanna. Þetta er síðan fært í hátíðlegan búning með sýningu 5. bekkjar á helgileiknum.

RATLEIKUR UM ÁSLANDIÐ

Ratleikurinn í byrjun desember er skemmtileg hefð hér í Áslandsskóla. Íþróttakennarar skólans halda utan um viðburðinn og hafa útbúið verkefni sem á að leysa víðsvegar um hverfið fyrir öll stig nemenda. Eftir hvert verkefni koma þeir aftur upp í skóla og leysa eina þraut til að fá næstu vísbendingu. Oft er mikill handagangur í öskjunni og mikill keppnisandi meðal bekkjanna. Þetta er frábær hefð sem reynir á marga

þætti náms en auðvitað er það gleðin sem ræður för ásamt hressandi útiveru. Nemendum er síðan boðið upp á heitt kakó og pylsur þann dag og allir skilja við sáttir og glaðir.

Dagurinn heppnaðist mjög vel.

JÓLASAGAN GJÖFIN

Maður nokkur skammaði 6 ára gamla dóttur sína fyrir það að eyða heilli rúllu af gylltum pappír. Ekki var mikið til af peningum og reiddist hann þegar barnið reyndi að skreyta lítið box til að setja undir jólatréð. Engu að síður færði litla stúlkan föður sínum boxið á jóladagsmorgun og sagði: “þetta er handa þér pabbi”. Við þetta skammaðist faðir stúlkunnar sín fyrir viðbrögð sín daginn áður. En reiði hans gaus upp aftur þegar hann áttaði sig á því að boxið var tómt. Hann kallaði til dóttur sinnar, “veistu ekki að þegar þú gefur einhverjum gjöf, þá á eitthvað að vera í henni?” Litla stúlkan leit upp til pabba síns með tárin í augunum og sagði: “Ó pabbi boxið er ekki tómt. Ég blés fullt af kossum í það. Bara fyrir þig pabbi.” Faðirinn varð miður sín. Hann tók utan um litlu stúlkuna sína og bað hana að fyrirgefa sér. Það er sagt að mörgum árum seinna, þegar faðir stúlkunnar lést og hún fór í gegnum eigur hans hafi hún fundið gyllta boxið frá því á jólunum forðum við rúmstokkinn hans. Þar hafði hann haft það alla tíð; þegar honum leið ekki vel gat hann tekið upp ímyndaðan koss og minnst allrar ástarinnar sem barnið hans hafði gefið honum og sett í boxið.

Í vissum skilningi höfum við allar lifandi mannverur tekið á móti gylltum boxum frá börnunum okkar, fjölskyldum og vinum, fullum af skilyrðislausri ást og kossum. Það getur enginn gefið dýrmætari gjöf. Í dag skaltu gefa þér augnablik og njóta stórrar handfylli af minningum. Mundu að þær verma hjarta þitt og bráðna þar, en ekki í höndum þínum.

GENGIÐ Í SKÓLANN

Í upphafi hvers skólaárs þá tekur Áslandsskóli þátt í Göngum í skólann og í ár tóku 77 skólar þátt í átakinu um allt land. Það voru nemendur í yngri- og miðdeild sem þrömmuðu, hlupu og hjóluðu af kappi í 2 vikur í skólann og allt var vandlega skráð. Í yngri deild var það 2. bekkur árgangur fæddur 2017 sem átti flest skrefin og í miðdeild var það 6. bekkur árgangur fæddur 2013. En til gamans má geta að 2013 árgangurinn varð einnig hlutskarpastur 2023. Að meðaltali gengu 73% nemenda Áslandsskóla í skólann.

STARFSFÓLK ÁSLANDSSKÓLA ÓSKAR ÖLLUM

GLEÐILEGRA JÓLA

OG FARSÆLD Á KOMANDI ÁRI

6. bekkur hlaut gullskóinn í ár
2. bekkur voru göngugarpar yngri deildar

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.