

Gleðilegt sumar Gleðilegt sumar
SAMVINNA - ÁBYRGÐ - TILLITSEMI - TRAUST

FLÓRGOÐINN

Brgi Valdimar ljóðahöfundur, Axel Høj Madsson og Guðni Th. Jóhannsson forseti íslands.


STÓRA UPPLESTRARKEPPNIN OG
SMÁSAGNASAMKEPPNIN
Axel Høj Madsson og Kolbrún Hilmarsdóttir voru glæsilegir fulltrúar Áslandsskóla á Stóru upplestrarkeppninni í ár er haldin var í Víðistaðarkirkju 19. mars. Átján nemendur úr 7. bekkjum grunnskóla Hafnarfjarðar tóku við viðurkenningu úr hendi Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands eftir að hafa flutt sína texta og ljóð. Nemendurnir fluttu brot úr skáldverkinu Hetja, eftir Björk Jakobsdóttur og ljóð úr bókinni 2. umferð eftir skáld keppninnar, Braga Valdimar Skúlason. Það fór svo að Axel Høj hreppti 2. sætið í keppninni og var vel að því kominn.
Samhliða Stóru upplestrarkeppninni voru veitt verðlaun fyrir bestu smásögurnar í unglingadeild grunnskóla Hafnarfjarðar. Þar var viðfangsefnið alveg opið þetta árið. Gaman er að segja frá því að einn af fulltrúum Áslandskóla hún Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir í 9. bekk HHR hlaut önnur verðlaun í keppninni. Sagan hennar nefnist Ýsurnar Hafnarfirði og segir frá tveimur vinum sem fara í veiðiferð niður á höfn og ýmislegt óvænt gerist í ferðinni. Glæstur árangur hjá þessum bráðefnilega höfundi.
Hjördís Hrund umsjónakennari, Arnheiður Ísleif og Fanney Dóróthe sviðsstjóri.LESTRARSPRETTUR
HARRY POTTER
MEÐ NEMENDUM ÁSLANDSSKÓLA
Yndislegur afrakstur lestrarspretts nemenda úr sögum Harry Potter í Áslandsskóla prýðir þar veggi. Tveggja vikna lestrarspretturinn skiluðu sér í því að nemendur í 1.-6. bekk byggðu kastalann í Harry Potter. Nemendur í 7.-10. bekk byggðu upp heimavistirnar.
Þetta gerðu nemendurnir fyrir hvern þann múrsstein sem þeir unnu sér inn fyrir lesturinn — einn fyirr hverjar 15 mínútur lesnar. Markmið sprettsins var að þjálfa lestur, efla íslenskan orðaforða sem og að auka yndislestur allra nemenda. Í lok sprettsins hélt hver bekkur sína Harry potter veislu.







ÍÞRÓTTIR
Menningardagar 2024 voru haldnir 18. - 22. mars og tókust þeir einstaklega vel. Þemað í ár var íþróttir og unnu deildir skólans í fjölbreyttum verkefnum er sett voru upp og var skólinn skreyttur hátt og lágt.











MENNINGARDAGURINN
Dyrnar voru síðan opnaðar öllum þeim sem vildu koma og njóta afrakstursins og gleðinnar fimmtudaginn 21. mars. Glæsileg dagskrá var á sal þar sem hápunkturinn var uppsetning 3. bekkja á Grease söngleiknum en einnig stigu nemendur miðdeildar upp með tónlistaratriðum, söng og dansi.











ÞJÓNUSTA VIÐ SAMFÉLAGIÐ
ÁSLANDSSKÓLI FÓR ÚT AÐ PLOKKA
Föstudagurinn 26. apríl er dagurinn sem við í Áslandsskóla sýndum í verki eina af hornstoðum skólans, Þjónusta við samfélagið. Við byrjuðum daginn á að horfa á myndbönd gera verkefni tengd jafnrétti, fjölbreytileika og hvernig við getum tekið sem best á móti nýjum nemendum með flóttabakgrunn í Áslandsskóla. Í frímínútum fóru allir nemendur út á skólalóð og sungu saman Burtu með fordóma og fleiri lög undir dyggri stjórn nemenda í 10. bekk. Í framhald af því fóru nemendur út í hverfið okkar að týna rusl og hreinsa okkar nærumhverfi.
Dagurinn heppnaðist mjög vel.

















LÆK KOMIN ÚT
Mikil útgáfugleð var þann 24. apríl er rithöfundarnir
Gunnar Helgason og Bergrún Íris Sævarsdóttir afhenntu bók sína LÆK nemendum mið- og unglingadeildar. Hann vann eftir hugmyndum nemenda á unglingastigi og hún með nemendum á miðstigi, níu sögur hvort.
LÆK er samstarfsverkefni milli Mennta- og lýðheilsusviðs
Hafnarfjarðar og rithöfundanna tveggja. Bókinni er ætlað að efla lesskilning, orðaforða, læsi og lestraráhuga nemenda á mið- og unglingastigi í grunnskólum
Hafnarfjarðar, á öllum getustigum. Smásögurnar tengjast hverjum skóla og voru tvær sögur samdar í hverjum þeirra.
Við útgáfu á LÆK var áherslan sett á vandaða uppsetningu texta, góða leturgerð og leturstærð sem hentar nemendum í lestrarvanda. Bókin kemur samtímis út sem hljóðbók hjá Hljóðbókasafninu. Auk smásagnanna er stutt umfjöllun í bókinni ætluð foreldrum og kennurum um hvernig dýpka má lesskilning nemenda.
Saga miðdeildar Áslandsskóla heitir Brjálaði Húsvörðurinn og saga unglingadeildar nefnist Guðbðanduð og eru fyrstu tvær sögur bókarinnar.




Sumarið er tíminn!
Sumarstarf fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði sumarið 2024
Í Hafnarfirði er boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og ungmenni yfir sumartímann. Á vefnum tomstund.is er hægt að skoða fjölbreytt námskeið og sumarfrístund á vegum Hafnarfjarðarbæjar og annarra félaga og samtaka í Hafnarfirði.
Sumarnámskeið
Fjölbreytt námskeið og sumartómstund standa börnum og ungmennum á aldrinum 6-13 ára til boða í Hafnarfirði sumarið 2024. Fagleg þjónusta með uppeldisgildi frítímastarfs að leiðarljósi. Mikil áhersla er lögð á sköpun, samveru, útiveru, hreyfingu og leiki. Þátttökugjaldi er stillt í hóf og skráning fer fram í gegnum Völu.
Dæmi um námskeið:
Sumarfrístund fyrir 7-9 ára við alla grunnskóla
SumarKletturinn fyrir börn í 9–13 ára með sértæka stuðningsþörf
Sumarfrístund fyrir útskriftarhópa leikskólanna Tómstund fyrir 10-13 ára
Sumarnámskeið í Hafnarborg fyrir 6-12 ára
Sumarlestur og skapandi námskeið á Bókasafni Hafnarfjarðar
hfj.is/sumarnamskeid
Gleðilegt sumar
Nánar á: hafnarfjordur.is

Fjölskyldugarðar
hfj.is/fjolskyldugardar
Vinnuskóli Hafnarfjarðar
hfj.is/vinnuskolinn
Frístundastyrkir
Hafnfirsk börn og ungmenni, sem nýta ekki frístundastyrk í hefðbundin æfingargjöld júní, júlí og ágúst, geta nýtt mánaðarlega styrkupphæð í sumarnámskeið. Námskeiðin þurfa samtals að vera átta daga eða lengur á mánuði. Tímalengd námskeiðs þarf að koma fram á reikningi.
hfj.is/fristundastyrkir
Skólaslit Áslandsskóla vorið 2024
Fimmtudagur 6. júní
Kl. 17:00 10.bekkur
Föstudagur 7. júní
Kl. 8:30 1.-2.bekkur
Kl. 9:00 3.-4. bekkur
Kl. 9:30 5.-7.bekkur
Kl.10:00 8. og 9.bekkur

