2 minute read

ELLÝ VANN SÖNGKEPPNI HAFNARFJARÐAR

Söngkeppni Hafnarfjarðar var haldin hátíðlega núna í mars. Það voru 10 atriði skráð frá 7 skólum og því ekki öfundsvert fyrir dómara keppninnar að þurfa að velja úr þessum flotta hópi. Áslandsskóli átti frábæran fulltrúa Ellý Hákonardóttur sem fór alla leið. Hún var ein af tveimur flytjendum sem komust áfram og mun syngja fyrir hönd Hafnarfjarðar í söngkeppni Samfés sem fram fer í byrjun maí. Ellý flutti lagið Strange með söng konuninni Celeste.

Advertisement

Ísak Gunnarsson var kynnir á keppninni og stóð sig alveg frábærlega eins og við var að búast.

Við eigum svo marga hæfileikaríka unglinga hjá okkur. Áfram Áslandsskóli

Nemendur og starfsfólk voru ekki lengi að koma sér á sína staði á brunaæfingunni 18. mars 16. mars var brunaæfing haldin við Áslandsskóla. Allir nemendur og starfsfólk skólans fylgdu brunaáætlun sem hafði verið undirbúin og brugðust við af kostgæfni er brunabjallann fór af stað. Arkað var í röðum á útisvæði skólans þar sem nemendur komu sér fyrir á sínum stöðum og kennar höfðu nafna tal. Það tók 4 mín. og 18 sek. að rýma skólann og koma öllum á sína staði sem er afbragðs tími og verður gaman að bera tímann saman við næstu æfingu sem verður ekki undirbúin.

Gl Silegur Rangur Grunnsk Lam Ti Sk K

Skáksveit Áslandsskóla ásamt þjálfara sínum og fulltrúum Kivanisklúbbsins Hraunborga

Áslandsskóli tók þátt í grunnskólaskákmóti miðdeilda í Hafnarfirði sem haldið var í Hvaleyrarskóla af Kiwanisklúbbnum Hraunborgum. Sex drengir úr miðdeild mynduðu skáksveit Áslandsskóla og tefldu þeir við allar hinar skáksveitirnar alls sjö viðureignir. Sveitin okkar náði í 19 og hálft stig úr þeim viðureignum sem skilaði þeim þriðja sæti. Við megum svo sannarlega vera stolt af okkar skáksveit. Áslandsskóli fékk svo að gjöf tvö sett af taflborðum, taflmönnum og skákklukkum frá Kiwanisklúbbnum Hraunborgum. Helgi Ólafsson stórmeistari í skák var viðstaddur og tók þátt í að dæma á mótinu og sinnti almennri yfirsýn, gaman fyrir strákana að sjá stórmeistara í eigin persónu. Það eru því spennandi tímar framundan og um að gera að virkja skák áhugann enn meira og mæta aftur sterk til leiks á næsta ári.

F Lagsl Fi

Opið mánudaga – miðvikudaga – föstudaga frá kl. 19:30 – 22:00

Það hefur ýmislegt verið í gangi hjá okkur í Ásnum sem dæmi má nefna Rafíþróttamót Samfés og Elko, Grunnskólahátíðin, Söngkeppni Hafnarfjarðar, heimsóknir hingað og þangað, almenn dagskrá Ássins og fleira og fleira. Skólaárið er þó ekki liðið og er fullt á dagskrá hjá okkur næstu vikur og mánuði – Fylgist með!

Við sendum út fréttabréf í hverjum mánuði sem heitir Spilastokkurinn og hvetjum við ykkur til að kíkja á það. Þar má finna ýmsar upplýsingar og myndir frá starfseminni okkar. Við erum líka á facebook undir nafninu Ásinn – unglingadeild og Ásinn – miðdeild, þar setjum við inn dagskrá og ýmislegt annað gagnlegt. Endilega fylgið okkur þar.

Árshátíð unglingadeildar mun fara fram fimmtudaginn 27. apríl og er nemendafélag skólans í fullu fjöri að undirbúa hana. Öll að taka kvöldið frá! Við erum spennt fyrir hækkandi sól og meiri útiveru. Eigið gott páskafrí.

This article is from: