32.tbl_2011

Page 3

3

VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurinn 18. ÁGÚST 2011

LISTDANSSKÓLI REYKJANESBÆJAR

BRYN BALLETT AKADEMÍAN

Skráning er hafin á www.bryn.is

Skólanámskrá BRYN tekur breytingum frá og með hausti 2011 til samræmis við kröfur menntamálaráðuneytisins um kennslu í listdansi. Boðið er uppá fjölbreytt og metnaðarfullt nám við skólann og verður skólanum skipt í 4 námsleiðir: Klassíska listdansbraut, Nútímalistdansbraut, Almenna braut og Forskóla.

FRAMHALDSSKÓLADEILD – LISTDANSBRAUT hefst þriðjudaginn 23. ágúst Krefjandi og árangursríkt nám fyrir þá sem hafa áhuga á listdansi. Listdansnámið er samkvæmt aðalnámskrá Mennta - og menningamálaráðuneytisins á framhaldsskólastigi. Æskilegt er að nemendur hafi lokið grunnnámi í listdansi eða sambærilegu námi. Áfangar í boði: Klassískur ballett, táskór, nútímalistdans, jazzdans og spuni Ef þú ert 16 ára og eldri og búin að velja kjarna áfanga hjá FS þá getur þú tekið valáfanga sem er metin til eininga hjá Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Nemendur geta sótt um nám á framhaldsstigi á þrenns konar forsendum: 1. 2. 3.

Nemandi er skráður á listnámsbraut á listdanskjörsviði í framhaldsskóla. Nemandi er skráður á bóknámsbraut eða starfsnámsbraut í framhaldsskóla og tekur einingar í BRYN sem valgreinar. Nemandi er eingöngu skráður í nám í BRYN.

GRUNNSKÓLADEILD - LISTDANSBRAUT hefst mánudaginn 29. ágúst INNTÖKUPRÓF FARA FRAM í skólanum mánudaginn 22. ágúst Skráning er hafin á bryn@bryn.is 9-11 ára kl. 17:30-18:45 og 12-15 ára kl. 19:00-20:15 Listdansnám á grunnskólastigi fyrir 9-15 ára. Inntökuskilyrði er á listdansbrautina til þess að meta samstarfsvilja nemanda og áhuga hans á dansi. Námið er krefjandi og samkvæmt aðalnámsskrá Mennta- og menningarmálaráðuneytsins fyrir grunnnám í listdansskóla. Frá 9 ára er kenndur klassískur ballett og karakter, 10-11 ára stunda klassískan ballett, karakter og jazzdans/spuna. 12-15 ára aldurshópur stundar klassískan ballett, karakter, táskór/repertoire, nútímadans, jazzdans og tækni.

ALMENN BRAUT - TÓMSTUNDABRAUT hefst mánudaginn 5. september

Almenna brautin er fyrir þá sem eingöngu vilja stunda dans sem tómstund, einu sinni til tvisvar sinnum í viku. Áfangar í boði: Jazzballett og klassískur ballett. Skemmtilegir og metnaðarfullir tímar fyrir þá sem vilja ná árangri í dansi og jafnvel undirbúa sig undir enn meira dansnám á listdansbraut sem er krefjandi nám. Aldurshópar: 7-8 ára, 9-11 ára, 12-15 ára og 16 ára og eldri.

FORSKÓLI hefst mánudaginn 5. september Forskóladeild skólans skiptist í fjóra flokka: 1. Flokkur: 3-4 ára ballett 2. Flokkur: 5 ára ballett og steppdans 3. Flokkur: 6 ára ballett og steppdans 4. Flokkur: 7-8 ára klassískur ballett/karakter og jazzdans (fornám fyrir listdansbraut). HEIMSÆKIÐ VEFSÍÐU SKÓLANS OG FÁIÐ FREKARI UPPLÝSINGAR UM NÁMIÐ WWW.BRYN.IS Bryn Ballett Akdemían er listdansskóli Reykjanesbæjar, viðurkenndur til kennslu á grunnnámi í listdansi og einnig á framhaldsskólastigi af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Skólinn hefur það að markmiði að veita nemendum þekkingu og sterka undirstöðu í klassískum ballett og nútímalistdansi á heimsvísu.

Sími: 426 5560 - www.bryn.is - bryn@bryn.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
32.tbl_2011 by Víkurfréttir ehf - Issuu