Hleðsla rafbíla

Page 10

SPURT OG SVARAÐ • Hvað tekur rafmagnsbíll mikinn straum við hleðslu? Rafbílar taka mismikinn straum við hleðslu en hleðslustraumur fer aðallega eftir hleðslutæki og bíltegund. Flestir rafbílar taka 6-13 A straum við hleðslu meðhleðslukapli sem tengist heimilisinnstungum. • Er óhætt að stinga hleðslukapli fyrir rafbíla í allar heimilisinnstungur? Almennt eru einfasa innstungur fyrir heimili merktar sem 16 A tenglar en þolaþann straum þó aðeins í skamma stund. Hafa skal í huga að innstungur þolatöluvert minni straum við hleðslu í lengri tíma. Einnig hefur aldur og slit áhrif áhitamyndun í innstungu. Við 13 A hleðslustraum getur myndast mikill hiti í innstungum sem jafnvel leiðirtil íkveikju. Mannvirkjastofnun mælir með að hleðslustraumur sé takmarkaðurvið 10 A að hámarki. Verkís mælir ekki með að heimilisinnstungur séu notaðarnema búnaður, uppsetning og stillingar hafi verið yfirfarnar af fagaðila. • Er í lagi að nota framlengingarsnúru við hleðslu rafbíls? Töluverður hiti getur myndast í framlengingarsnúrum, sérstaklega ef þær eru vafðar upp. Hér á landi eru dæmi um að kviknað hafi í vegna notkunar á framlengingarsnúru við hleðslu rafbíla. Því ætti aldrei að nota slíka snúru þegar rafbíllinn er hlaðinn. • Hvaða leiðir geta húsfélög húsa sem eru ekki með einkabílastæði farið? Húsfélög sem eiga sameiginleg ómerkt bílastæði geta t.d. komið fyrir aðgangsstýrðum hleðslutækjum. Í þeim tilvikum virkja íbúar hleðslu með aðgangskorti. Með aðgangsstýringu er einnig mögulegt að halda utan um og rukka fyrir orkunotkun hvers og eins notenda. Verkís ráðleggur húsfélögum að fá fagaðila til þess að útfæra uppsetningu.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Hleðsla rafbíla by Verkís Consulting Engineers - Issuu