Cecilie B. H. Björgvinsdóttir, cecilie@hjukrun.is
KJARASAMNINGAR 2014 Síðustu miðlægu kjarasamningar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga voru undirritaðir í júní 2011. Gildistími samninganna var 1. maí 2011-31. mars 2014. Við endurskoðun forsenduákvæða í janúar 2013 var ákveðið að allir kjarasamningar skyldu styttir til 31. janúar 2014.
samningarnir sem gerðir eru við sveitar félögin og Reykjavíkurborg eru heildar kjarasamningar þar sem samið er um launa taxta, réttindi, röðun í launaflokka og persónubundnar hækkanir, svo sem vegna reynslu og menntunar. Ekki eru gerðir stofnana s amningar við þessa aðila. Kosið er um miðlæga hluta kjara samninga. Við gerð seinni hluta kjara samninga, þ.e. stofnanasamninga, gildir friðarskylda.
Friðarskylda, hvað þýðir það? Meðan kjarasamningar eru í gildi ríkir svokölluð friðarskylda með aðilum. Eins og hugtakið ber með sér er hér um að ræða skyldu til að halda friðinn og vettvangurinn er vinnumarkaðurinn. Skilgreina má friðarskyldu þannig að aðilar, sem bundnir eru af kjarasamningi, megi ekki á samningstímabilinu knýja fram breytingar með vinnustöðvun á þeim þáttum sem um hefur verið samið.
Af þessu má sjá að fyrir liggur að gera nýja kjarasamninga á næstu mánuðum og undirbúningsvinna vegna þeirra er þegar hafin. Hluti af undirbúningsvinnunni er breitt samstarf við önnur stéttarfélög vaktavinnu manna vegna sameiginlegra áherslu atriða fyrir vaktavinnumenn. Megináherslan í komandi kjara samningum verður á: 1. Hækkun launa, aukinn kaupmátt. 2. Vinnutíma. Fyrsta skrefið við endurnýjun kjarasamninga er gerð viðræðuáætlunar. Í lögum nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnu deilur, segir að samningsaðilar skuli setja fram áætlun (viðræðu áætlun) um skipulag viðræðna vegna endurnýjunar kjarasamnings í síðasta lagi tíu vikum áður en gildandi kjara
24
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 4. tbl. 89. árg. 2013
samningur er laus. Báðir samnings aðilar skulu undirrita viðræðuáætlunina og senda hana til ríkissáttasemjara. Kjarasamningum hjúkrunarfræðinga má skipta í tvo þætti, miðlæga kjarasamninga og stofnanasamninga. Félag íslenskra hjúkrunar fræðinga gerir mið læga kjara samninga við eftirfarandi viðsemjendur: • Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. • Samband íslenskra sveitarfélaga. • Reykjavíkurborg. • Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV). • Reykjalund. Kjarasamningar FÍH við ríkið, SFV og Reykjalund skiptast í tvo þætti, miðlæga samninga og stofnanasamninga. Kjara
Miðlægir samningar Í miðlægum kjarasamningum er samið um eftirfarandi þætti: 1. Kaup (launatöflu, yfirvinnutaxta, vaktaálag o.fl.). 2. Vinnutíma. 3. Matar- og kaffitíma, fæði og mötuneyti. 4. Orlof. 5. Ferðir og gistingu. 6. Aðbúnað og hollustuhætti. 7. Tryggingar. 8. Áhöld og vinnuföt. 9. Afleysingar. 10. Endurmenntun, eftirmenntun. 11. Stofnanaþátt. 12. Rétt vegna veikinda og slysa. 13. Fæðingarorlof. 14. Fjölskyldu- og styrktarsjóð. 15. Lífeyrissparnað. 16. Launaseðil. 17. Uppsagnarfrest. 18. Gildistíma og samningsforsendur.