Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd (Sjá) gengust fyrir helgar-vinnuferðum á Lakasvæðið í Skaftárhreppi, í samvinnu við Skaftárhrepp, Náttúruverndarráð, Ferðamálaráð, Vegagerðina o.fl. sumurin 1992, 1995 og 1997.
Þetta voru flókin og mjög vel undirbúin verefni; aðallega að afmarka, merkja og lagfæra ökuslóða, bílastæði og gönguleiðir, þ.e. að vernda náttúruna og gera hana um leið aðgengilegri. Verkstjóri Sjá í öllum ferðunum var Jóhanna B. Magnúsdóttir. Hún var formaður Sjá fyrsta áratuginn og öllum hnútum kunnug hjá Náttúruverndarráði, Ferðamálaráði og Skaftárhreppi. Hún, ásamt Ólafíu Jakobsdóttur í sveitarstjórn Skaftárhrepps, voru aðal driffjaðrirnar.
Ferðin 1992 var í samvinnu við Feráklúbbinn 4x4, geysifjölmenn, og var unnið á mörgum stöðum samtímis. Hinar ferðirnar einnig mjög öflugar. Sjá nánar hér í skýrslunum.